Víkurfréttir - 28.10.2004, Side 12
Varnarliðið á Keflavíkurflugvel
Nær öll vopn flotastöðvar Banda-
ríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafa
verið flutt úr landi. Starfsemi
stöðvarinnar nnm dragast mikið
saman á næstu árum. Langstærstur
hluti sjóhða flotastöðvarinnar mmi
flytjast frá íslandi á næstu 18
mánuðum. Ljóst er að mörg' störf
íslendinga munu tapast við
niðurskurðinn. Gert er ráð fyrir að
flugherinn táki yfir starfsemi
stöðvarinnar árið 2006.
*
Igrein sem birtist í dag-
blaðinu Stars and Stripes
sem gefið er út af banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu
kemur fram að miklar
breytingar séu í vændum innan
hcrstöðva Bandaríkjahers í
Evrópu. í grcininni kemur
fram að starfsemi flotastöð-
varinnar á Kcflavíkurflugvelli
muni dragast verulega saman
og að hluti starfsemi stöðvar-
innar verður flutt til herstöðva
í Evrópu.
Scott Schonauer, annar blaða-
mannanna sem skrifaði greinina í
Stars and Stripes segir heimildar-
menn sína fullyrða að starfsemi
stöðvarinnar í Keflavík muni
breytast rnikið á næstunni.
„Heimildarmenn mínir segja að
þrátt fyrir að stöðin loki ekki
alveg þá verði starfsemi hennar
mun minni í framtiðinni en hún
er í dag,” sagði Scott i samtali við
Víkuríréttir.
Vopnin til Spánar og ftalíu
Nær engin vopn eru eftir á
flotastöðinni. Síðustu vikur hafa
vopnin verið flutt með Hercules
flutningavélum til herstöðva
Bandaríkjamanna á Spáni og
Ítalíu. Víkurfréttir hafa undir
höndum gögn sem sýna ná-
kvæma lista yfir vopn sem flutt
hafa verið, alls tæp 30 tonn á 46
vörubrettum. A listunum má sjá
tugþúsundir byssukúlna, mikið af
sprengjum, skotvopnum og
öðrum vopnabúnaði. Mikillar
leyndar gætti við flutning vopn-
anna og í gögnum Víkurffétta er
lýst ánægju yfir því hve lítil
athygli beindist að flutningunum
og að ailt hafi gengið vel fyrir
sig.
Nýryfirmaðurkemurúr
flughernum í fyrsta sinn
„Aðmirállinn sem er æðsti
ntaður flotastöðvarinnar lætur
senn af störfum og í hans stað
kemur lægra settur yfirmaður
flughersins. Það sem er óvenju-
legt við þetta er að alla tíð hafa
yfirmenn flotastöðvarinnar
komið úr bandariska flotanum en
ekki úr flughemum eins og nú er
að gerastsegir heimildarmaður
Víkurfrétta. Gert er ráð fyrir að
yfirmannsskiptin fari fram í
nóvember.
Sami heimildarmaður segir að
innan flughersins sé lögð á það
mikil áhersla að Islendingar fái
ekki að vita af fyrirætlunum þess
efnis að flugherinn taki yfir starf-
semi stöðvarinnar. „Flugherinn
mun taka yfir öryggisþátt stöðv-
arinnar sem haldið verður í lág-
marki. Sjóliðarnir fara heim;
þoturnar verða eftir og deildirnar
sem tilheyra þeim.”
Niðurskurður - 24 sagt upp
Nær allir viðmælendur Víkur-
frétta innan Bandaríkjahers segja
það á allra vörum að flotadeildin
sé á förum frá stöðinni og að
flugdeildin muni taka yfir starf-
semina. Hermenn og fjölskyldur
þeirra sem koma frá Keflavík til
annarra herstöðva í Evrópu fúll-
yrða að verið sé að skera starf-
semi stöðvarinnar mikið niður.
Tuttugu og fjórum starfsmönnum
flugþjónustudeildar flotastöðv-
arinnar á Keflavíkurfiugvelli
verður sagt upp á næstu vikum.
Þann 1. rnars verður rekstur
deildarinnar boðinn út og mun
nýr verktaki taka við 1. maí.
Helstu verkefhi þessarar deildar
liafa verið að þjónusta vöruflutn-
ingavélar hersins.
Innan deildarinnar starfa vara-
slökkviliðsmenn sem liafa verið
þjálfaðir með það að markmiði
Vopn á tugum
vörubretta úr landi
Víkurfréttir hafa undir höndum gög'n sem sýna
nákvæma lista yfir vopn sem flutt hafa veriö, alls
tæp 30 tonn á 46 vörubrettum. Á listunum má sjá
tugþúsundh’ byssukúlna, mikiö af sprengjum,
skotvopnum og öörum vopnabúnaði. Mikillar
leyndar gætti viö flutning vopnamia og í gögnum
Víkm’frétta er lýst ánægju yfir því hve lítil
athygli beindist aö flutningunum og aö allt hafi
gengiö vel fyrir sig.
að geta tekið þátt i björgunar- og
slökkvistörfum ef flugslys ber að
höndum.
Gert ráð fyrir 26 sjóliðum
Háttsettir yfinnenn Vamarliðsins
hafa rætt það opinberlega á fúnd-
um að árið 2006 verði einungis
26 sjóliðar á vamarstöðinni. Hafa
yfirmennimir látið hafa það eftir
sér að reynt verði að draga úr
þessari fækkun. Heimildannaður
Víkurfrétta segir hinsvegar að
það sé einungis gert til mála-
mynda; verið sé að friða starfs-
menn stöðvarinnar. A Ijórða
hundrað manns, sjóliðar og fjöl-
skyldur þeirra fóru af varnar-
stöðinni i sumar. Ekki hafa neinir
sjóliðar komið í stað þeirra sem
fóru og segja heimildarmenn
Víkurfrétta það almenna stefnu
Varnarliðsins að sjóliðar séu
hægt og rólega að yfirgefa stöð-
ina.
Verið að skoða kostnaðarliði vegna
yfirtöku íslendinga á fiugbrautum og
rekstri þjónustudeilda
Flugbrautir Keflavíkurflugvallar
hafa frá upphafi verið undir
umsjón flotastöðvarinnar og
kostnaður vegna þjónustudeilda
flugbrautarinnar verið greiddur
af Bandaríkjastjóm. Davíð Odds-
son utanríkisráðherra hefúr sagt
að það væri eðlilegt að það yrði
skoðað að Islendingar tækju þátt
í kostnaði vegna reksturs flug-
brautanna í kjölfar aukinnar
alþjóðlegrar flugumferðar um
Keflavíkurflugvöll.
Víkurfréttir hafa heimildir fyrir
því að nú þegar sé hafin vinna
12
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!