Víkurfréttir - 28.10.2004, Blaðsíða 14
> Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Námskeið fyrir sykursjúka
Námskeið fyrir sykur-
sjúka og aðstandendur
þeirra verður haldið á
vegum Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja dagana 11. - 13.
nóvember nk.
Fyrr á þessu ári var haldið í
fyrsta sinn námskeið fyrir
Ævintýrale^ heilsulind
íVrir líkama o» sál
þriðjudaga klukkan 19:30
4 vikna námskeið hefst 2. nóvember
Sjóðheitir danstímar
með Bangoura!
www.pulsinn.is
Púl/inn
cevintýrahús
Víkurbraut 11
Sandgerði
Símar: 423 7500
848 5366
sykursjúka og aðstandendur
þeirra á vegum Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja (HSS).
Námskeiðið heppnaðist vel og er
fyrirhugað að siík námskeið
verði haldin reglulega og standi
öllum skjólstæðingum göngu-
deildar fyrir sykursjúka HSS til
boða.
Markmið með námskeiðunum er
að fræða sykursjúka og aðstand-
endur þeirra um sjúkdóminn,
meðferð og aukaverkanir með
áherslu á lífsstílinn og ábyrgð
einstaklingsins i meðferðinni.
Með fræðslu og stuðningi er
stuðlað að bættri meðferð og
færri aukaverkunum sjúkdóms-
ins og auknum lífsgæðum.
Námskeiðið verður haldið í
Eldborg og gist í Northern Light
Inn við Bláa lónið.
Skráning stendur yfir og lýkur
föstudaginn 29. október.
LEIKFELflG KEFLAVíMffi
Sýnir EFTIRLITSMANNINN
eftir Gogol
M
Leikstjóri Bergur IngóLfsson
Aðgangseyrir kr. 1500
Hópar, 10 eða fleiri kr. 1000
SYNINGAR:
Frumsýning fimmtudaginn 28. okt. kl. 20 uppselt
föstudaginn 29. okt. kL. 20.
sunnudaginn 31. okt. kL. 20.
Miðapantanir i síma 421 2540 eftir kL. 18.00.
LEIKFÉLAG KEFLAVÍKUR I FRUMLEIKHÚSJNU IVESTURBRAUTJ7 KEFLAVÍK
Fjölmenni á opnum fundi
hjá Landsbankanum
Landsbanki íslands stóð
fyrir opnum fundi í
síðustu viku þar sem
nýju íbúðarlán bankans voru
kynnt. Mæting var með
besta móti og sagði Jóhanna
Óskarsdóttir, útibússtjóri, að
mikii ánægja hafi verið með
fundinn.
Sérfræðingar bankans héldu
stutt ávörp. Edda Rós Karls-
dóttir hjá greiningardeildinni
fjallaði um nýju lánin og áhrif
þeirra á fjármál heimilanna og
hvernig breyttir tímar kölluðu
á nýja hugsun varðandi
greiðslubyrði.
Hún sagði gríðarlega ásókn
hafa verið í lánin allt ffá því að
bankamir byijuðu með íbúða-
lán.
Pétur Bjami Guðmundsson hjá
fasteignadeild bankans fór yfir
ráðgjöfína sem bankinn býður
viðskiptavinum sínum og
skýrði hina ýmsu valkosti sem
væntanlegum lántakendum
bjóðast.
Að loknum framsögnum þeirra
Eddu og Péturs var opnað fyrir
spumingar úr sal. Spurt var út í
verðtryggingu lána og svaraði
Edda því til að bankamir hefðu
ekki í hyggju að afnema verð-
trygginguna íyrr en þeir sæju
fram á að sveiflur í verðbólgu
fæm minnkandi. Hún benti þó
á að Landsbankinn byði upp á
óverðtryggð lán en þau væm á
lakari kjörum en önnur.
Fundargestir virtust hinir
ánægðustu með svörin, en
fundir sem þessir hafa verið á
höfúðborgarsvæðinu og á Sel-
fossi og munu verða í flestu
útibúum bankans um allt land.
> Alþjóðlegi psoriasis dagurinn á morgun
Dagskrá í Bláa lóninu
Alþjóðlegi psoriasis dag-
urinn verður haldinn í
fyrsta sinn á morgun,
fostudag. Tilgangurinn er fyrst
og fremst að vekja athygli á
sjúkdómnum og fræða bæði
fólk með psoriasis og almenn-
ing um sjúkdóminn. Heims-
dagurinn verður einnig nýttur
til þess að kynna þá meðferðar-
kosti sem í boði eru. Þá verða
heilbrigðisyfirvöld víðsvegar
um heim hvött til þess að hlúa
betur að málefnum fólks með
psoriasis.
1 tilefni dagsins mun Bláa lónið -
húðlækningastöð bjóða upp á
fjölbreytta dagskrá. Laugardag-
inn 30. október verður opið hús á
milli klukkan 13.00 og 16.00 fyr-
ir þá sem hafa áhuga á að koma
og kynna sér starfsemina sem þar
fer fram. Klukkan 13.30 mun
starfsmaður Bláa lónsins bjóða
upp á skoðunarferð í nýja húð-
lækningastöð sem mun opna vor-
ið 2005. Fólk með psoraisis og
fjölskyldur þeirra fá frían aðgang
í heilsulón húðlækningastöðvar.
Einnig verður þeim boðið í
Gjána, sem er fræðandi upplýs-
ingamiðstöð um íslenska jarð-
fræði, staðsett í Eldborg, skammt
frá húðlækningastöðinni.
14
VÍKURFRÉTTIRÁNETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!