Víkurfréttir - 28.10.2004, Qupperneq 16
Hópurinn fyrir utan rútuna á Sauðárkróki. Verðlaunahafar Nes ásamt þjálfurum. (miðið er Helgi Sæmundsson,
(slandsmeistari í 2. deild með slgurlaunin.
Frábær árangur Nes á íslandsmótinu í boccia
íþróttafólk úr Nes, íþróttafélagi
fatlaðra á Suðurnesjum, náði
frábærum árangri á íslandsmót-
inu í boccia sem fór fram á Sauð-
árkróki um síöustu helgi.
16 keppendur úr 37 manna hópi
Nesara komust í úrslit í sínum flok-
ki. í rennuflokki var það Astvaldur
Ragnar Bjamason, í 6. deild Dóra
Dís Hjartardóttir og Jósef Péturs-
son, í 5. deild Guðmundur Ingi
Einarsson, í 4. deild Bryndís Brynj-
I ólfsdóttir og Gestur Þorsteinsson
og í 3. deild voru það Ásmundur
Þórhallsson, Davíð Már Guð-
mundsson, Óskar ívarsson og
Ragnar Ólafsson sem komust í úr-
slit. Það gerðu einnig Helgi Sæ-
mundsson, Konráð Ragnarsson,
Róbert Aron Ólafs og Sigurður
Benediktsson sem voru í 2. deild
og Arnar Már Ingibjörnsson og
Sigríður Karen Ásgeirsdóttir í 1.
deild. Allir keppendur sem komast
í úrslit í keppninni færast upp um
deild á næsta ári.
Af þeim Nesurum sem komust i
úrslit fóm 5 á verðlaunapall. í 2.
deild varð Helgi Sæmundsson í
lýrsta sæti og er Islandsmeistari. Á
eftir honum í 2. sæti var Konráð
Ragnarsson og fékk hann silfur-
verðlaunin. í 3. deild fékk Davíð
Már Guðmundsson silfrið og í 3.
sæti var Ragnar Ólafsson. í 5. deild
varð Guðmundur Ingi Einarsson í
2. sæti og fékk silfurverðlaun.
Með í ferðinni voru foreldrar og
aðstoðarmenn yngri nemenda og 7
nemendur Fjölbrautaskóla Suður-
nesja sem aðstoðuðu þjálfarana
með hópinn bæði I keppni og utan
keppni. Er þetta hluti af námi þeir-
ra við FS en þeir em ásamt Qölda
annarra FS nemenda að læra þjálf-
un fatlaðra hjá Nes undir stjórn
Önnu Leu Björnsdóttur íþrótta-
kennara í FS. Þessi aðkoma nem-
enda FS er ómetanleg fyrir Nes og
starfþess.
5 Fræknar sigruðu á Þrekmeistaramóti íslands
Þróttur í Vogum féll út í 16-liða úrslitum SS-bikarsins í handknattleik er þeir
töpuðu 15-35 fyrir (R. Þeir höfðu áður lagt ÍBV 2 að velli á hetjulegan hátt og
virðist sem enn ein skrautfjöðurin hafi bæst í íþróttahatt Suðurnesja.
Örvar Kristjánsson lætur þrumufleyg vaða að marki ÍR. Mynd: Þorgils Jónsson
Fimm dömur úr líkamsræktarstöð-
inni Lífsstíl í Reykjanesbæ urðu Is-
landsmeistarar í liðakeppni á Þrek-
meistaramóti íslands sem fór fram
á Akureyri um helgina.
Keppnislið Lífsstíls, 5 Fræknar,
samanstóð af Kristjönu Gunnars-
dóttur, Katrinu Karen, Maríu Óla-
dóttur, Helenu, Ólafíu og Maríu
Kristinu en þær tóku einnig þátt I
einstaklingskeppni kvenna. Suður-
nesjakonur hlutu þrenn verðlaun í
einstaklingskeppni kvenna, Inga
Sigríður Harðardóttir varð í 2. sæti
og Kristjana Gunnarsdóttir varð í 3.
sæti í opnum flokki kvenna. Ólafía
Bragadóttir varð í 3. sæti í flokki
39 ára og cldri.
Alls kcpptu 132 keppendur frá æf-
ingastöðvum víðsvegar af landinu.
Pálmar Hreinsson frá Reykjavík og
Harpa Hlín Jónsdóttir frá Ólafsfirði
sigruðu í opnum flokkum einstak-
linga.
„Við kepptum síðast í vor og lent-
um þá I öðru sæti, þessi titill um
helgina var okkar þriðji,” sagði
Kristjana Gunnarsóttir i samtali við
Víkurfréttir. „Við erum búnar að
æfa grimmt síðan í ágúst en keppn-
in harðnar með hverju árinu. Það
var ein breyting á liðinu okkar í ár,
Helena kom inn fyrir Ernu Lind
sem gat ekki keppt því hún var
stödd erlendis,” sagði Kristjana.
Úrslit vikunnar
Intersport-deild karla
Grindavík-Njarðvík 64-87
Grindavík: Justin Miller 21/11,
Páll Axel Vilbergsson 17, Darrel
Lewis 15.
Njarðvík: Páll Kristinsson
31/15, Matt Sayman 15/9/12,
Brenton B. 14/11, Friðrik Stef-
ánsson 10/10.
KFÍ-Keflavík 80-89
Keflavík:Magnús Gunnarsson
22, Michael Matthews 16/11,
Anthony Glover 16, Jón Nordal
Hafsteinsson 10
(6 stolnir boltar).
KFÍ: Josh Helm 37/13, Pétur
Sigurðsson 15.
Keflavík-Haukar 89-82
Keflavík: Glover 34/12, Amar
Freyr Jónsson 14, Matthews 13,
Gunnar Einarsson 11.
Haukar: John Waller 24, Predrag
Bojovic 15.
Njarðvik-KR 92-69
Njarðvík: Páll 21, Friðrik 17/10,
Brenton 14, Sayman 14/3/10,
Jóhann Ólafsson 14, Guðmund-
ur Jónsson 10.
KR:Cameron Echols 30.
Skallagrímur-Grindavík 81-80
Grindavik: Lewis 36, Páll Axel
24.
Skallagrímur: Clifton Cook 23,
Hafþór Gunnarsson 16.
1. dcild kvenna
KR-Njarðvík 51-62
Njarðvik: Jamie Woudstra
24/12, Ingibjörg Vilbergsdóttir
22, Helga Jónasdóttir 7/10.
KR:Gréta Grétarsdóttir 13/10.
Haukar-Grindavík 48-50
Grindavík: Erla Reynisdóttir 13,
Petrúnella Skúladóttir 11, Ólöf
Pálsdóttir 8/11.
Haukar: Helena Sverrisdóttir
25/19.
Safna fyrir Evrópukeppni
Karlalið Keflavíkur í körfuknattleik stendur þessa dagana í
fjáröflun fyrir þátttöku liðsins í Evrópukeppni félagsliða. Þeir
munu standa fyrir kökusölu í Sparisjóðnum í Keflavík á morg-
un í Jteim tilgangi og eru stuðningsmenn hvattir til að láta sjá
sig. Arangur iiðsins í þessari keppni í lyrra var framar vonum
og er stefnt að því að ná svipuðum árangri nú. Salan hefst kl.
13 á morgun.
EVRÓPUKARFAN
ÍGANGÁNÝ!
Keflvíkingar leika sinn fyrs-
ta leik í Evrópukeppni
félagsliða þegar þeir taka á
móti franska liðinu Reims
Champagne. Árangur Iiðsins í
sömu keppni í fyrra var óhemju
góður þar sem þeir unnu alla
sína hcimalciki í riðlakeppninni
og vöktu mikla athygli á íslen-
skum körfubolta.
Andstæðingarnir eru svipaðir að
getu og frönsku liðin Toulon og
Dijon sem Keflavík atti kappi við í
fyira og verður því svo sannarlega
um hörkuleik að ræða.
Sigurður Ingimundarson sparar
ekki stóru orðin fyrir leikinn. „Við
ætlum okkur að vinna þessa kepp-
ni. Við ætlum að hitta á toppleik á
miðvikudaginn og stólum á að fá
áhorfendur með okkur eins og í
fyrra. Það var rosalega góð
stemmning þá og við búumst ekki
við minni látum í þetta skiptið!”
16
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!