Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 2
^smun
fri'Tlir
Bygginganefnd í
Garði slær met í
afgreiðslum
Afundi Skipulags-og
bygginganefndar
Garðs sl. þriðjudag
voru samþykktar teikn-
ingar fyrir 49 íbúðir. Þetta
mun vera mesti fjöldi sam-
þykktra teikninga á einum
fundi nefndarinnar frá upp-
hafi.
Á heimasíðu sveitarfélagsins
segir að á síðustu mánuðum
hafi verið mikil eftirspurn
eftir lóðum í bænum og sé
ánægjulegt að þessi þróun
haldi áfram og Garður sé
svo sannarlega sveitarfélag í
sókn.
Bónus hyggur á
tvöföldun á versl-
unarrými á Fitjum
Fasteignafélagið Stoðir
ehf. hefur óskað eftir
því við umhverfis-,
og skipulagsráð að skoðaðir
verði stækkunarmöguleikar
á lóðinni nr. 3 við Fitjar.
Um er að ræða lóð verslunar
Bónus og er fyrirhuguð við-
bygging 850m2. Umhverfis-
og skipulagsráð hefur tekið
jákvætt í erindið sem nú er í
vinnslu.
Núverandi húsnæðið er um
1100 fermetrar að flatarmáli
og verslunin sjálf um 900 fer-
metrar.
Landsbankinn
AAUNDI
Það verða bara vtkingar
á íslenditigi til varnar í
staðinnfyrir þoturnar...
Víkingar í Reykjanesbæ:
VÍKURFRÉTTIR I 13.TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Komin mynd á viðbyggingu
sundmíðstöðvarinnar
Iðnaðarmenn eru nú í óðaönn við að klæða
loftin á sundlaugasölunum og leggja sund-
laugardúkinn í nýju innisundlauginni
í Reykjanesbæ. Atafl (gömlu Keflavíkurverk-
takar) er byggingaraðili en Jón Guðmunds-
son, verkefnastjóri hjá Atafli, segir verkið hafa
gengið vel og illa.
„Utanhússvinnan er flókin á þessu húsi og veðrið
hefur ekki verið okkur hliðhollt og valdið vand-
ræðum í steypuvinnu," sagði Jón í samtali við
Víkurfréttir. Innisundlaugin verður 50 m að lengd
en þar verða einnig vaðlaugar o.fl. Nú þegar er
sundlaugarkerfið, allt sem snýr að vatnsdælubún-
aði og klórkerfmu tilbúið til notkunar. Atafl er á
verktíma til 10. apríl.
Áhöfnin um borð í íslendingi.
Áhöfn íslendings fagnar
10 ára sjósetningarafmæli
Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því
að víkingaskipið íslendingur var sjósett
með viðhöfn við Miðbakkann í Reykja-
vík. Af því tilefni kom áhöfn skipsins saman í
Njarðvík um sl. helgi, til hófs sem skipstjórinn,
Gunnar Marel Eggertsson bauð til.
Sigling íslendings var mikil frægðarför á sínum
tíma og hafði áhöfnin greinilega gaman af að riíja
hana upp. Eftir siglinguna til Ameríku árið 2000
lenti skipið á einskonar hrakhólum uns Reykja-
nesbær ákvað að ganga í málið og fá skipið til bæj-
arfélagsins. Var því valinn staður við Stekkjarkot
þar sem það stendur nú sem minnisvarði um hina
miklu þjóðflutninga og landafundi sem Islend-
ingar stóðu fyrir frá landnámi íslands og fram
eftir eftir öldum.
Á meðal gesta var Árni Sigfússon, bæjarstjóri,
Reykjanesbæjar, en svo skemmtilega vill til að
Árni rak fyrsta naglann í skipið þegar smíði þess
hófst 1996, en þá var Árni borgarstjóri í Reykja-
vík.
Gamla Bláalóns-
húsið gengur í end-
urnýjun lífdaga
Gamla Bláalónshúsið
eða það eina sem eftir
stóð af upprunalega
húsnæði fyrsta lónsins gengur
nú í endurnýjun lífdaga en það
var flutt i heilu lagi i hesthúsa-
hverfið í Grindavík.
Helgi Einar Harðarson festi kaup
á húsinu og ætlar að nota það
sem veitingaaðstöðu í tengslum
við hestaleigu sem hann mun
reka í Grindavík.
Suðurnesja-
maður fram-
kvæmdastjóri
hjá Landvernd
Bergur Sigurðsson hefur
verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Land-
verndar en Tryggvi Felixson lét
nýlega af störfum.
Berg ur var
áðursviðsstjóri
á umhverfis-
sviði og stað-
gengill fram-
kvæmdastjóra
Heilbrigðis-
eftirlits Suður-
nesja. Hann er
með Cand Scient (M.Sc.) í um-
hverfisefnafræði og Cand Mag
(B.Sc.) í efnafræði frá háskól-
anurn í Osló og leggur nú stund
á MBA nám við Háskóla íslands.
Bergur hefur verið Landvernd
innan handar í ýmsum málum
þegar samtökin hafa leitað til
hans undanfarin ár.
Við undirritun starfssamnings
sagði Bergur: “Ég vil þakka það
traust sem mér er sýnt af hálfu
stjórnar Landverndar. Starfið er
víðfeðmt, verkefnin eru mörg
og fjölbreytt. Ég hlakka mjög
til að vinna með hæfileikaríku
starfsfólki Landverndar sem og
öllum þeim aðilum sem fram til
þessa hafa starfað með samtök-
unum. Það er mikil áskorun að
taka við þessu starfi nú þegar far-
sæll framkvæmdastjóri lætur^af
störfum eftir margra ára starf.“
Bergur mun hefja störf 1. maí
n.k., strax eftir aðalfund sem
verður laugardaginn 29. apríl.