Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2006, Page 6

Víkurfréttir - 30.03.2006, Page 6
MANNI RÆNTÍ GARÐI Maður á sjötugs- aldri var numinn brott af heimili sínu í Garðinum af fjórum mönnum á laugardags- kvöld. Mennirnir stungu honum í farangursgeymslu bifreiðar, létu hann dúsa þar í sjö klukku- stund ir og gengu í skrokk á honum. Lögregla fer með málið sem mann- rán. NFS greindi frá mál- inu. Kristinn Óskarsson sat ásamt börnum sínum og horfði á sjónvarpið um kvöldmatar- leitið á laugardag þegar dyra- bjallan hringdi. Fjórir menn biðu við húsið, spurðu Krist- inn að nafni og létu hnefana dynja á honum. Kristinn, sem var skólaus, segist hafa sloppið við illan leik frá mönnunum, í frosti um hánótt. Hann kom að bænum Múla í Biskups- tungum, um 5 kílómetra frá Geysi, um klukkan 2 uni nótt- ina, eða sjö klukkustundum eftir að ofbeldismennirnir námu hann á brott. Múli í Biskupstungum. Þar gat Kristinn leitað sér hjálpar. Myndir frá NFS, en nánar verður fjallað um málið í Kompási á sunnudagskvöld. Varnarliðsmál til umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar: Snörp orðaskipti urðu um Varnarliðs- málin á bæjarstjórnarfundi í Reykja- nesbæ í síðustu viku og gengu ásak- anir á víxl. Jóhann Geirdal (S) sakaði bæj- aryfirvöld um að vera að nota málið til að skapa sér ímynd fremur en að undirbúa viðbrögð, þegar hann talaði fyrir bókun sem minnihlutinn lagði fram á fundinum. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, lagði fram bókum þar sem segir að ekki sé ástæða til að svara þeim dylgjum er fram koma í bókun minnihlutans. Þeir bæjarfulltrúar sem til máls tóku voru þó sammála um það eitt að umræðan um Varnarliðsmálin yrði að vera hafin yfir pólitiskt argaþras. I bókun minnihlutans segir að nú þegar Ijóst sé að Bandaríkjaher ætli að loka herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, sé mikilvægast að gæta hagsmuna þeirra starfsmanna VL, sem nú eru að missa atvinnu sína. „Fyrstu viðbrögð eftir að þessi tíðindi bár- ust bera vottt um að ekki hafi verið unnin áætlun um hvernig bregðast ætti við þeim. Mönnum hættir til að sjást yfir það sem nú skiptir mestu máli, en leggja meiri áherslu á að vera fljótir að taka saman upptalningu á þeim hugmyndum sem nefndar hafa verið að gætu tekið við þegar herinn hverfur á brott“, segir í bókun minnihlutans, og er þá greinilega verið að vísa til þeirrar sam- antektar sem Árni Sigfússon, bæjarstjóri, kynnti á fundi sem hann hélt með starfs- mönnum Varnarliðsins. I bókuninni segir ennfremur: „Það sem við teljum að eigi að hafa algjöran forgang er, að stofnað verði til samvinnu þeirra sem veitt geta stuðning og aðstoð við þessar aðstæður. Nefna má í því sambandi stéttarfélög þeirra sem fá uppsagnarbréf, vinnumiðlun, kirkj- una og félagsmálaþjónustu sveitarfélaganna þar sem umræddir starfsmenn búa. Tryggja þarf að haft verði samband við alla þá sem fá uppsagnarbréf þegar þau hafa verið undirrituð. Þá þarf að tryggja að hratt sé unnið að því að fá upplýsingar um hverjir muni fá störf sín aftur þó hjá öðrum atvinnurekanda sé. Sá hópur mun búa við minni vanda. Þegar ljóst er hverjir eru að missa vinnu sína varanlega er nauðsynlegt að hópurinn verði greindur og leitað leiða til að útvega störf sem henta þeim hópi, m.a. verði fólki tryggður aðgangur að endurmenntun til að styrkja stöðu þess á vinnumarkaði. Verði einhverjir án vinnu þegar kemur að lokum uppsagnarfrests er nauðsynlegt að til verði fjármagn til að tryggja því fólki eftirlaun þar til úr þeirra málum rætist, með atvinnu eða töku lífeyris, það getur kallað á sérstækar að- gerðir sem þá verður að grípa til. Samhliða verði unnið að því að skýra hvaða mannvirki verða tiltæk til atvinnuuppbygg- ingar. Hvernig þau mannvirki sem ekki munu nýtast verða fjarlægð og jafnframt hvernig verður gengið frá viðskilnaði við landið. Þegar það liggur fyrir er ekki vafi á að fjöl- margir aðilar, einstaklingar og fyrirtæki munu sjá sér hag í að hefja starfsemi í þeim mannvirkjum". Snarpar umræður urðu um bókunina á fundinum. Sakaði Jóhann Geirdal (S) bæj- aryfirvöld um áralangt aðgerðar- og skiln- ingsleysi í þessum málum, þar sem löngu var ljóst í hvað stefndi varðandi VL. Núver- andi meirihluti hafi neitað að horfast í augu við raunveruleikann og að halda röngum upplýsingum að almenningi, annað hvort til að gæta pólitískra hagsmuna eða þá að hann hafi einfaldlega ekki skilið hvað var að gerast. Jóhann átaldi einnig meirihlutann fyrir að vera að nota erfiðleika starfsfólks VL til að beita þrýstingi á yfirvöld. I samtali við VF sagði Jóhann að tilefni þessara orða væru þau ámæli sem hann hefði lengið legið undir frá hálfu meirihlutans að honum bæri að þakka hvernig þessi mál hefði þróast. Árni Sigfússon, bæjastjóri, lagði síðan fram svohljóðandi bókun: „Sjálfstæðismenn taka undir megininn- tak bókunar Samfylkingar og Framsóknar sem snýr að verkefnum í þágu starfsfólks Varnarliðsins og hefur þegar haflst undir- búningur í þá veru. Sjálfstæðismenn leggja áherslu á samstöðu um þau verkefni sem nú eru framundan gagnvart starfsfólki á varn- arsvæðinu og nýjum verkefnum sem þar verður sinnt! Því verður ekki svarað öðrum dylgjum sem fram koma í bókun minnihlutans“. Gólfflötur verslunarmiðstöðvar eins og þrír knattspyrnuvellir Gert er ráð fyrir að franikvæmdir við nýtt 23 þúsund fermetra verslunarhúsnæði Smáratorgs í Reykjanesbæ hefjist á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. Vinna að teikningum á húsunum er á frumstigi en fyrstu teikn- inga er að vænta í maí. Fram- kvæmdum á að ljúka haustið 2008, ef allt gengur að óskum. Verslunarmiðstöðin verður byggð á lóð Gokart-brautar- innar, en Smáratorg hefur keypt lóðina. Auk 23 þúsund fermetra verslunarhúss er gert ráð fyrir 1500 fermetrum fyrir bensín- stöð og 1000 fermetrum fyrir veitingastað. Smáratorg hyggst byggja samskonar verslunarhús á Selfossi. Smáratorg rekur m.a. Rúmfatalagerinn. Til að átta sig á stærð verslunar- miðstöðvarinnar þá er gólfflötur í Reykjaneshöllinni um 8000 fermetrar, þannig að verslunar- miðstöðin er af gólffleti eins og þrjár Reykjaneshallir. Smárartorg ætlar að byggja á gókartbrautinni í Innri Njarðvík: I VfKURFRÉTTIR t B.TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 6

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.