Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 12
Útvarpsstjarna íslands: „A/lest í húmornum" Páll Kristófersson gæti orðið næsta Útvarpsstjarna íslands en hann tekur einmitt þátt i þeirri keppni á útvarpsstöðinni Kiss FM. Rúmlega 100 manns skráðu sig til leiks í kcppnina en nú standa níu eftir og er Páll á rneðal þeirra. „Ég ákvað að skrá mig í þessa keppni þar sem ég hef verið að vinna í gröfum og þessu í sjö eða átta ár og korninn tími á að breyta til,” sagði Páll við Víkurfréttir. Páll starfar hjá A. Pálssyni í Sandgerði en ef hann vinnur þá verður hann dagskrárgerðar- maður í sprækari kantinum. „Ég er svona niest í húmornum, hef gaman af því að fá fólk til að brosa og hlæja og langar til þess að koma með eitthvað nýtt og frumlegt inn í útvarpsfól- runa,” sagði Páll sem þegar hefur farið tvisvar sinnum í loftið og nú síðast í gær. „Ef þetta gengur ekki upphjá mér þá held ég bara ótrauður áfram og reyni að fá vinnu við þetla annars staðar,” sagði Páll að lokum. Kosning um Útvarpsstjörnu ís- lands er á www.kissfm.is LISTAMENN SÝNA ÍBLINC BUNC Mikið er um dýrðir framundan hjá versluninni BÍing Bling Hafnargötu 26. Síðan 3. mars hefúr verið sýning hjá sannkölluðum listamæðgum, þeim glerlista- konunni Ingu Bjarna og myndlistarkonunni frisi Rós Þrastardóttur. Inga er með glervinnu- stofu í Hafnarfirði, en íris Rós býr í Keflavík og hefur einu sinni áður haldið sýningu, en sú sýning var haldin í Landsbankanum á Ljósa- nótt árið 2004. íris Rós er lærður útlitshönnuður frá Dupont skreytingarskólanum í Kaupmannahöfn. Eftir það fór hún að senda frá sér hin ýmsu listaverk. Hún þróar með sér hugmyndir og lætur þær verða að veruleika. Nú er nýr innblástur í verkum hennar og eru það svokallaðar „háramyndir" sem sýningargestir geta borið augum á listasýning- unni. Þetta eru gróf kúluverk þar sem hrosshár spila stórt hlutverk. Iris málar með blandaðri tækni, og notar lím, frauð og steypu til að skapa listaverkin. Inga Bjarna er með glervinnustofu í Hafnarfirði og vinna þær mægður mikið saman. Sýningin hefúr fengið góðar undirtektir og ein- róma lof sýningargesta. Eins og áður segir er margt skemmtilegt framundan hjá versluninni Bling Bling og er aug- ljóst mál að verslunareigandinn Björk mun leggja sitt af mörkunum til að auðga menningarlíf hér á Suðurnesjum. I apríl mun listakonan Dalla taka við af þeim mægðgum og sýna listaverkin sín í Bling Bling og í maí mun svo listakonan Bagga halda sýningu. Það má enginn láta þetta fram hjá sér fara og um að gera að skoða listasýninguna í Bling Bling við Hafnargötu 26. FSINGUR VIKUNNAR Ábendingar um FS-ing vikunnar eru vel þegnar og skulu þær sendast á vaigerdurbp@hotmaii.com UMSJÓN: VALGERÐUR BJÖRK FS-ingur vikunnar er Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, en kallar hún sig gjarnan Josie Anima þegar hún spilar tónlist, sem er ekki svo sjaldan. Tónlist er líf hennar og yndi hefur hún hlotið góða dóma fyrir lagið sitt „Josie“ sem hægt er að hlusta á m.a. á www.rokk.is... 5 UPPÁHALDS LÖG: First day ofmy life - Bright eyes I remember - Damien Rice 6 Lisa Hannigan Letter to Elise - The Cure Raining in Baltimore- Counting Crows Someone somewhere - Diktay núna í ár. Það var alveg magnað að sjá marga uppáhalds tónlistarmennina sína samankomna til að spila. Það hafði verið langþráður draumur að sjá Björk spila og síðan sá ég Damien Rice sem er uppáhalds tónlistamaðurinn minn. Uppáhalds borg sem þú hefur komið til? Kaupmannahöfn líklega. Hef samt ferðast lítið svo ég hef ekki úr miklu að velja. Uppáhalds verslun: Kolaportið, Hot Topic, og síðan er langbest að versla á Laugaveginum. Framtíðarplön? Draumurinn er að verða tónlistarmaður. Uppáhalds leikari/leikkona: Dominic Monaghan Land sem þig langar að heimsækja? England og flest Evrópulöndin. Hvaða bók lastu seinast? Lovestar fyrir íslensku. 5 UPPÁHALDS KVIKMYNDIR: Rocky Horror Picture Show Edward Scissorhands Spongebob Squarepants the movie Ace Ventura, Pet Detective Ace Ventura, When Nature Calls Aldur: 16 á 17 ári Staður: Garður Kærasti? Já Braut í FS: Félagsfræðibraut ffi Helsta afrek í lífinu: Líklega að hafa tekið ákvörðun um að spila á gítar þegar ég var yngri. Það hefur komið sér vel fyrir mig núna.. Vandræðalegasta atvik sem þú manst: Þau hafa nú reyndar verið mjög mörg yfir árin, því einhvern veginn tekst mér alltaf að koma mér í vandræðalegar aðstæður. Nýlegasta var kannski þegar ég kom í skólann um 8 og var rosalega þreytt þannig að ég stóð varla í fæturnar og tókst einhvernveginn að detta í stiganum fyrir framan alla sem voru að koma inn... hefði kannski ekki verið svona vandræðalegt nema að ég stóð upp og nokkrum sekúndubrotum seinna datt ég aftur. Skemmtilegustu/flottustu tónleikar sem þú hefur farið á?: HÆTTU tónleikarnir 7. janúar 12 I VfKURFRÉTTIR í 13.TÖLUBLAÐ i 27.ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.