Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 15
FERMINGAR Á SUÐURNESJUM
í
!
Fermingarbörnin óhrœdd
að hafa skoðanir á
borðskreytingum
að hefur verið mikið
að gera í fermingarund-
irbúningnum í
Blómalandi og þær eru
ánægðar með viðtökurnar,
því þetta er í fyrsta skipti sem
Blómaland tekur þátt í ferm-
ingunum sem blómabúð.
Blómaland er í senn blóma-
búð sem selur mikið magn af
gjafavöru að auki. Það helsta í
borðskreytingum í fermingum
þetta árið eru látlausari skreyt-
ingar. Mikið úrval er af fallegu
skreytiefni eins og stráum og
greinum sem fallegt er að setja
með völdum blómum í vasa
fylltan af fallegum steinum.
Einnig eru steinarnir mikið not-
aðir í borðskreytinguna sjálfa og
svo að sjálfsögðu kertin notuð
mikið. Áður fyrr voru skreyting-
arnar mun fyrirferðameiri og
líktust oft brúðarskreytingum,
en nú eru þær mun breytilegri,
þar sem það er endalaust til af
skreytingarefni. Einnig er ótrú-
lega mikið úrval af sérvíettum
og kertum sem fullkomna borð-
haldið. Litirnir í ár eru skemmti-
legir og fallegir og eru það helst
stelpurnar sem taka bleiku litina
og appelsínugulan. Strákarnir
eru að taka límónu grænan og
íjólubláan, en einnig er það inn
í myndinni að köldum litum
eins og svörtum og appelsínu-
gulum er blandað saman og út-
koman er vægast geggjuð. Það
er alltaf gaman þegar fermingar-
börnin eru óhrædd við að hafa
skoðanir og vilja hafa áhrif á
útlit fermingarborðsins. Þetta
er jú þeirra ferming og mestu
skiptir að þau njóti hennar til
hins ítrasta.
Það er um að gera að kíkja á
blómastúlkurnar brosmildu í
Blómavali enda taka þær mið af
nýjustu straumum og stefnum
í borðskreytingum og blómaúr-
vali.
mangó
K E F L A V ( K
TÆMUM HUSNÆÐIÐ EFTIR HELGI
OPIÐ
FÖSTUD. 16-20
LAUGARD. 13 - 18
SUNNUD. 13-18
V&ÍA.M, &)3-3C£>&>
Grófin 8 Keflavík (gamla Bílanaust) xiam zjj-g&jq.
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGA8LAÐÍÐ Á SUÐURNESJUM
VtKURFRÉTTIR : FIMMTUDAGURÍNN 30. MARS 2006| 15