Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2006, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 30.03.2006, Qupperneq 16
Séra Sigfús Baldvin Ingvason kom til Kefla- víkur fyrir tœpum 13 árum og hóf störf við kirkjuna, fyrst sem aðstoðarprestur, en síðar með breyttum lögum sem prestur. Óvcent fráfall sr. Ólafs Odds Jónssonar var mikið áfallfyrir állan söfnuðinn. Sr. Sigfús var settur tímabundið sem sóknarprestur og hefur gegnt því embætti síðan. Það mun hann gera þar til nýr sóknarprestur verður ráðinn en einmitt núna stendur yfir val á honum. Sr. Sigfús er á meðal þeirra tíu umsœkjenda sem sótt hafa um stöðuna. Þrátt fyrir mikið annríki gaf sóknarpresturinn sér tíma til að setjast niður í smá spjall við Ellert Grétarsson, blaða- mann Víkurfrétta, um komuna til Keflavíkur, starfið í kirkj- unni, bœnina og vonina og ekki síst þátttöku kirkjunnar í starfinu sem hafið er til stuðnings þvífólki sem er að missa vinnuna og lífsviðurvcerið á Keflavíkurflugvelli. Byrjaði að pútta með eldri borgurum Sr. Sigfús á rætur sínar að rekja til Akureyrar. Eftir námið í guðfræðideildi Hl flutti hann ásamt konu sinni, Laufeyju Gísladóttur, Keflavíkur. Eitt það fyrsta sem hann tók sér fyrir hendur við komuna hingað, var að spila pútt við eldri borgara bæjarins. „Ég var að keyra fram hjá Mánaflötinni þegar ég sá þar hóp fólks vera að pútta. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera skemmtilegt og þessu fólki yrði ég kynnast. Þannig að ég fór út í golfskála og keypti mér pútter”, segir Sig- fús aðspurður urn fyrstu kynni sín af bæjarbúum. Að sögn var honum strax vel tekið af pútturum bæjarins, þó aldursmunurinn væri tals- verður en Sigfús segist fjótt hafa eignast afar góða vini á púttvell- inurn. „Hvað varðar bæjarbúa almennt þá fór ég fljótt tengjast fólki hér í samfélaginu. Það tók mig samt nokkurn tíma að öðl- ast fullt traust sem prestur, enda eru verk presta oft á tíðum vand- meðfarinn og viðkvæm. Það er því eðlilegt að ég hafi þurft tíma til að sanna mig sem slíkur”, segir Sigfús. Að hans sögn hefur fjölskyldunni liðið vel hér í Reykjanesbæ, en til gamans má geta að þegar Sigfús fékk námsleyfi og dvaldi ásamt fjöl- skyldu sinni í Bandaríkjunum í 10 mánuði, töluðu dæturnar um bæinn sinn á hverjum degi fyrstu mánuðina og vildu bara komast heim í Fagragarðinn. Fjölskyldan heima í stofu. F.v. Hanna Björk, Birta Rut, Laufey og Sigfús. Prestur í önnum Preststarfið er erilsamt og titr- ingur farsímans veldur glamri á viðarborðplötunni. Við gerum hlé á meðan Sigfús svarar í sím- ann. „Jú, þetta er yfirleitt alltaf svona og búið að mæða svolítið mikið á um tíma” segir Sigfús að loknu símtalinu. „Prestsstarfið er þjónusta við fólkið. Ég finn mikinn mun á þessum 13 árum sem ég hef verið hér við störf, t.d. varðandi sálgæsluna. Hér áður leitaði fólk oft ekki aðstoðar fyrr en allt var komið í þrot en í dag finnst mér fólk vera meira opið fyrir að leita ráða og það er mjögjákvætt. Með auknum fjöl- breytileika í helgihaldi erum við sífellt að reyna að koma til móts við mismunandi þarfir fólks en það er alltaf hægt að gera betur. Ég hef mikinn áhuga fyrir því að vinna að stefnumörkun t.d. varðandi helgihald, fræðslu, menningarleg tengsl og fleira”, segir Sigfús sem segist sjá spenn- andi tíma framundan. Fótbolti þrisvar í viku En hvað gerir önnum kafinn presturinn til að slaka á frá dag- legu amstri og annríki - „kúpla sig út” eins og það er kallað? „Eg spila knattspyrnu með nokkrum góðum félögum í há- deginu þrisvar í viku og reyni alltaf að mæta, sama hversu mikið rnæðir á”, svarar Sigfús. Hann hefur líka gaman af að VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAG’LEGA! 16 I ViKURFRÉTTIR ' 13. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRCANGUR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.