Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2006, Page 21

Víkurfréttir - 30.03.2006, Page 21
Aðsent efni: postur@vfis Auður Sigurðardóttir skrifar: Eldri borgarar í Reykjanes- bæ eiga heiður skilinn Samkvæmt slysaskrá ís- lands eru 75% slysa hjá öldruðum heima og iiafa ofl alvar- legar afleiðingar. Ljóst er að slysatíðni meðal aldraðra er alltof há en með aðgát og fyrir- byggjandi aðgerðum má draga úr slysum og auka öryggi. Kvennasveitin Dagbjörg heim- sótti á dögunum eldri borgara í Reykjanesbæ, þ.e. 75 ára og eldri, og færði þeim bækling- inn „Örugg efri ár“. Það er bæk- lingur gefinn út af Slysavarnafé- laginu Landsbjörg. Miðað við hvað eldri borgarar í Reykja- nesbæ tóku vel á móti okkur þá vitum við að þeir hafa skoðað bæklinginn og yfirfarið öryggis- atriði á sínu heimili. Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli og fékk Slysavarnarfé- lagið skýrslu um framkvæmd og niðurstöður verkefnisins. Slysavarnarfélagið hefur síðan verið að fara í saumana á verk- efninu, taka út hvað reyndist vel og hvað mætti gera betur með það að markmiði að efla þetta verkefni. 1 haust nánar tiltekið 8. og 9. október ætlar Slysavarnarfélagið að fá sem flestar deildir innan Slysavarn- arfélagsins víðs vegar um landið til að feta í fótspor Kvennasveit- arinnar og heimsækja eldri borg- ara í sínum heimabæ. Eldri borgarar í Reykjanesbæ eru frábærir einstaklingar sem tóku vel á móti okkur og fögn- uðu þessu verkefni, þeir eiga heiður skilið. Það er þeim að þakka að verkefnið verður nú keyrt á landsvísu. Jákvæðni þeirra og þakklæti varð til þess að við gátum miðlað til annarra hvað þetta hafi verið skemmti- legt og gefandi. Við efumst ekki um að slysum muni fækka í kjöl- farið og vonum að aðrar deiídir fái sömu móttökur og við. Anður Sigurðardóttir formaður Kvennasveitarinnar Dagbjörg BffS búMeNN jataaaaaamaaaaaaiaBaaamaaammaaaaaaamaamaaaaa'mBk buni F írv Reykjanesbær Til endurúthlutunar er búseturéttur í einni íbúð við Stekkjargötu í Innri Njarðvík. Um er að ræða 3ja herb. íbúð ásamt bílskúr og garðskála. Heildarflatarmál íbúðar ásamt bílskúr er um 120m2 og er garðskáli um 14m2. Um er að ræða íbúð í parhúsi sem tilheyrir fyrsta áfanga af þremur sem byggðar verða við Stekkjargötu. íbúðin var afhent í febrúar s.l. íbúðin getur verið til afhendingar strax. Garður Eigum til sölu búseturétt í tveimur þriggja herbergja parhúsaíbúðum ásamt bílskúr í Garði. Eigum til sölu búseturétt í eins og tveggja herbergja íbúðum í Sandgerði. Umsóknafrestur ertil 5. apríln.k. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 54 eða í síma 552 5644 milli kl. 9-15. Búmenn hsf Húsnæðisfélag Suóurlandsbraut 54 108 Reykjavík Sími 552 5644 Fax 552 5944 bumenn@bumenn.is www.bumenn.is búMeiMN STÆRSTA FRÉTTA- 0G AUGLÝSiNGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM STÓR - TÓNLEIKAR FORSKÓLADEILD OG LÚÐRASVEIT Tónlistarskóli Reykjanesbæjar heldur tónleika í íþróttamiðstöð Njarðvíkur, þriðjudaginn 4. apríl kl. 19:30 Fram kemur Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, C - sveit. Auk þess koma fram Lúðrasveit Tónlistarskólans, A+ og B sveitir ásamt 2. bekk For- skóladeildar Tónlistarskólans. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Skólastjóri. Karlakór Rangæinga og Karlakc Keflavíkur halda sameiginlega tónleika í Kirkjulundi föstudaginn 31. mars nk. VÍKURFRÉTTIR FIMMTUDAGURINN 30. MARS 20061 21

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.