Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2006, Side 25

Víkurfréttir - 30.03.2006, Side 25
Ihrevfttiimæqnfasamn gjaævinstriM Skoðaði íslenska leikmenn Bandaríski knattspyrnu- þjálfarinn Jason Kilby var staddur hér á landi í nokkra dag til þess að koma á fót tengslum við íslenska knatt- spyrnuþjálfara. Kilby er þjálf- ari í Wesleyan miðskólanum í Norður Karólínu í Bandaríkj- unum en Wesleyan er á meðal 20 bestu miðskóla Bandaríkj- anna í knattspyrnu. Kilby dvaldi hjá Frey Sverris- syni, landsliðsþjálfara og yngri flokka þjálfara í Njarðvík, og sóttu þeir saman leiki í deild- arbikarnum og að sögn Kilby hafa nokkrir ungir knattspyrnu- menn áhuga á því að kynna sér Wesleyan betur en skólinn hefur á fjölþjóðlegu knattspyrnu- liði að skipa. Deildarbikarinn í knattspyrnu er nú í fullum gangi og var Kilby ánægður með þá leikmenn sem hann sá til í veru sinni hérlendis og taldi að þónokkrir leikmenn hér á Is- landi gætu sómað sér ágætlega í atvinnumannadeildinni í Banda- ríkjunum. Besta leiðin til þess að komast í þær deildir sé að spila fyrir miðskóla í Bandaríkjunum. „Islendingar hafa verið að gera frábæra hluti í knattspyrnunni í bandarísku skólnum og þ.a.l. hefur áhugi bandarísku þjálfar- anna aukist á þeim,” sagði Freyr Sverrisson í samtali við Víkur- fréttir. „Mér flnnst það frábært að ungir knattspyrnumenn geti farið þessa leið, komast í gott nám í góðum skóla með sterkt knattspyrnulið. Ég mæli með því að ungir knattspyrnumenn kanni þennan möguleika,” sagði Freyr. Er þá von á fleiri banda- rískum knattspyrnuþjálfurum til landsins að fylgjast með ungum og efnilegum leikmönnum? „Á meðan íslensku strákarnir halda áfram að standa sig vel úti þá er aldrei að vita,” sagði Freyr að lokum. Vefsíða Norh Carolina Wesleyan: www.ncwc.edu Byrjar vel hjá GAIS Ióhann B. Guðmundsson, knattspyrnumaður hjá GAIS í Svíþjóð, hefur átt nandi góða byrjun hjá félag- inu en hann samdi til eins árs við GAIS. Liðið er nýkomið upp í sænsku úrvalsdeildina en hefur átt góðu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu. I síðustu viku lagði GAIS Nor- egsmeistara Válerenga að velli 2 - 1 í æfingaleik þar sem Jó- hann lagði upp annað markið og skoraði hitt. „Okkur er spáð falli og það er ágætt, þá er engin pressa á okkur. Aðstæðurnar hér eru ágætar en verið er að byggja upp nýja félagsaðstöðu og við spilum á sama velli og hin Gautaborgarliðin,” sagði Jó- hann. Varðandi samkeppni um stöður í liðinu sagði Jóhann að hópurinn hjá GAIS mætti vera stærri. „Ég geri ráð fyrir að spila mikið á komandi leiktíð,” sagði Jóhann sem er á vinstri kantinum og fær nokkuð frjáls- ræði þar. „Við spilum 4-5-1 og á vinstri kantinum fæ ég að vera aðeins frjáls og ber ekki mikla varnarskyldu en kem vitaskuld til baka og hjálpa til í vörninni.” Þjálfari GAIS er Roland Nilson en hann er nýhættur að spila og var í sænska landsliðinu á sínum tíma, einnig lék hann með Sheffield Wednesday í ensku deildinni og var um hríð stjóri hjá Coventry. „Roland er frekar varnarsinnaður þjálfari og því byggist okkar leikur mikið á vörninni en hann er gamall varnarjaxl,” sagði Jóhann. Æfing- arnar hafa verið strangar að und- anförnu enda undirbúningstíma- bilið að líða undir lok hjá GAIS. Liðið lék 8 leiki á undirbúnings- tímabilinu, sigraði í 7 leikjum og gerði eitt jafntefli en er engu að síður spáð falli á komandi leiktíð. Aðspurður um komandi leiktíð sagði Jóhann að honum fyndist raunhæft að liðið ætti að geta lokið næstu leiktíð um miðja deild en mikilvægast væri að halda nýfengnu sæti sínu í deildinni. Afram hja Keflavík Knattspyrnumennirnir Issa Abdulkadir og Branislav Milisevic verða áfram hjá Keflavík næstu misseri en nýverið var þeim sagt upp störfum hjá félaginu. Issa og Branco vilja vera áfram hjá Keflavík og sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvík- inga, að allt eins gott væri að hafa þá hjá félaginu eins og að borga þeim fyrir að fara. „Þeir báðu um að fá smá meiri séns til að sýna sig og sanna og við ætlum að leyfa þeim það. Við erum ekki með það stóran leik- mannahóp,” sagði Kristján. Krist- ján sagði enn fremur að vottur af metnaðarleysi hefði verið í Issa og Branco en að uppsögnin hafi kannski verið viðvörun sem þeir hefðu þurft á að halda. ÍG í 1. deild að ári Getraunaseðill Áfanf,„ ! vikunnar Hjördís Björk tippar fyrir Áfanga ásamt Smára. 1. Bolton - Man Utd x 2 x 2 2. Newcastle - Tottenham 2 1 X 3. Arsenal - Aston Villa 1 1 4. Fulham - Portsmouth 1 X 1 2 5. Iiverton - Sunderland 1 1 6. Reading - Derby 1 1 7. Stoke - Sheff. Utd x 2 x 2 8. Coventry - Preston 2 1 9. Plymouth - Wolves 2 X n 10. Southampton - Cardiff 2 2 11. Norwich - Leicester 1 1 12. Luton - Ipswich 1x2 1 x2 13. Sheff. Wed - Burnley x 2 1 Ingvar og Sigurður tippa fyrir BS Leikurinn er æsispennandi, Stuðlaberg tók forystu í 12. ieikviku með 17 stig, Spkef er í öðru sæti með 15 stig. Hjalti Guðmundsson, Sjúkraþjálfun Suðurnesja, Brunavarnir og Áfangar með 14 stig. Undanúrlsit lceland Express »deildin Ljónagryf]an Iþróttafélag Grindavíkur mun leika í 1. deildinni íkörfuknatt- leik að ári eftir að hafa lent í 2. sæti 2. deildar. Þeir lögðu Dímon að velli í undanúr- slitum síðustu helgi en töpuðu fyrir Ármann/Þrótti í úrslita- Ieiknum, 63-71. GIXJGG- Bæjarhrauni 12 - Hafnafirði Opið lauíiardaiía or sunnudaiía til 16:00 IÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU í BOÐI LANDSBANKANS VlKURFRÉTTIR I IÞRÓTTASIÐUR 25

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.