Víkurfréttir - 12.04.2006, Page 12
SANDGERÐI
Sigurður Valur í efsta
sæti sjálfstæðismanna
isti frambjóðenda Sjálfstæðisfélags Sandgerðisbæjar
fyrir sveitarstjórnarkosningar 2006 hefur verið lagður
f fram.
1. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri
2. Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, starfs-
maður í Grunnskóla Sandgerðis
3. Reynir Þór Ragnarsson, verkefnastjóri
4. Gróa Axelsdóttir, grunnskólakennari
5. Tómas Knútsson, kafari
6. Harpa Jóhannsdóttir, forstöðu-
maður Samkomuhúss
7. Ásgeir Þorbjörnsson, verktaki
8. Anna Lára Guðjónsdóttir,
húsmóðir/hársnyrtir
9. Kári Sæbjörn Kárason, rafvirki
10. Elín Björg Gissurardóttir, verkakona
11. Haraldur Jóhannesson, húsasmiður
12. Anna Hjaltadóttir, þroskaþjálfi/grunnskólakennari
13. Guðrún Ósk Ársælsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla
14. Reynir Sveinsson, forstöðumaður/bæjarfulltrúi.
Ólafur Þór leiðir Sam-
fylkinguna í Sandgerði
rófkjör Samfylkingarinnar og óháðra í Sandgerði
fór fram í gær, þann 8. apríl. Alls kusu 223 sem er
meiri þátttaka en hefur verið áður í prófkjöri v/sveitar-
stjórnakosninga í bænum að því er fram
kemur í tilkynningu frá framboðinu.
Kosningin fór fram í kosningamiðstöð
Samfylkingarinnar og óháðra við Vita-
t°rg-
I 1. sæti varð Ólafiir Þór Ólafsson með 104
atkvæði
I 2. sæti varð Guðrún Arthúrsdóttir með
115 atkvæði 1.-2. sæti
I 3. sæti varð Sturla Þórðarson 125 atkvæði
í 1.-3. sæti
Röð hinna þriggja sem buðu sig fram var Sigríður Jónsdóttir,
Þráinn Maríusson og Júlíus Einarsson.
Niðurstaða prófkjörsins er bindandi fyrir þrjú efstu sætin. í
tilkynningunni kemur frarn að prófkjörið var sérstaklega drengi-
legt og frambjóðendum öllum til sóma og telja aðstandendur
listans hann því orðinn að öflugu stjórnmálaafli í Sandgerði.
Illllil! mfí
15 'axck {ermim^rafnnúeji
Verður Ir.Mlð lútu^&rd&^skveldið 22. apríl á
skemmtist&ðriLim Vellc.
Húsid epmr ki. 20:30.
12 | VlKURFRETTiR 15.TÓLUBLAÐ i 27.ÁRGANGUR
Haraldur Hinriksson leiðir B-listann
Haraldur Hinriksson,
bæjarfulltrúi, mun
leiðalistaFramsóknar-
félags Sandgerðis í bæjarstjórn-
arkosningum í vor. B-listinn
tilkynnti framboðslista sinn á
félagsfundi í gær og var hann
samþykktur einróma.
Listinn er svohljóðandi:
1. sæti: Haraldur Hinriksson
2. sæti: Ester Grétarsdóttir
3. sæti: Jón Sigurðsson
4. sæti: Hanna Gerður Guð-
mundsdóttir
5. sæti: Anna Elín Björnsdóttir
6. sæti: Bjarki Dagsson
7. sæti: Helga Hrönn Ólafsdóttir
8. sæti: Hafsteinn Rúnar Helga-
son
9. sæti: Brynja Dögg Jónsdóttir
10. sæti: Unnur Sveindís Ósk-
arsdóttir
11. sæti: Pétur Guðlaugsson
12. sæti: Ingi Björn Sigurðsson
13. sæti: Elvar Grétarsson
14. sæti: Jóhannes Bjarnason
Haraldur sagði í samtali við Vík-
urfréttir að framsóknarmenn í
Sandgerði væru bjartsýnir fyrir
komandi kosningar. Aðalmark-
mið þeirra sé að halda sínum
tveimur bæjarfulltrúum.
Kosningaskrifstofa þeirra verður
í gamla húsnæði Tros við Strand-
götu, en opnunartími veður aug-
lýstur síðar.
Óskar Gunnarsson leiðir K-listann
Fremri röð f.v. Brynhildur Kristjánsdóttir, Anna María Guðlaugsdóttir,
Kolbrún Vídalín Grétarsdóttir, Þjóðbjörg Gunnarsdóttir, Agnieszka
Woskresinska og Árný Hafborg Hálfdánsdóttir. Aftari röð f.v. Ingþór
Karlsson, Sigursveinn Bjarni Jónsson, Davíð Benónýsson, Ari Gylfa-
son, Hafsteinn Þór Friðriksson og Óskar Gunnarsson. Á myndina
vantar Harald Birgi Haraldsson og Sigurbjörgu Eiriksdóttur.
Amjög fjölmennum
fundi Bæjarmálafé-
lags K - listans í Sand-
gerði sem haldinn var hinn 6.
apríl 2006, var samþykkt eft-
irfarandi tillaga uppstillingar-
nefndar um framboðslista til
bæjarstjórnar í kosningunum
27. maí 2006.
1. Óskar Gunnarsson, forseti
bæjarstjórnar og húsasmíða-
meistari.
2. Ingþór Karlsson, bæjarfulltrúi
og vélfræðingur.
3. Kolbrún Vídalín Grétars-
dóttir.deildarstjóriþjónustumið-
stöðvar eldri borgara.
4. Sigursveinn Bjarni Jónsson,
verkstjóri og formaður knatt-
spyrnudeildar Reynis.
5. Anna María Guðlaugsdóttir,
tómstundafulltrúi.
6. Ari Gylfason, öryggisfulltrúi.
7. Þjóðbjörg Gunnarsdóttir, iðn-
rekstrarfræðingur og leiðbein-
andi.
8. Haraldur Birgir Haraldsson,
blikksmiður.
9. Árný Hafborg Hálfdánsdóttir,
listamaður og verkakona.
10. Hafsteinn Þór Friðriksson,
raívirkjanemi.
11. Brynhildur Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri.
12. Davíð Benónýsson, húsa-
smíðanemi.
13. Agnieszka Woskresinska,
verkakona.
14. Sigurbjörg Eiríksdóttir, bæj-
arfulltrúi.
I rökstuðningi uppstillingar-
nefndar kom m.a. fram að
nefndin telur framboðslistann
skipaðan öflugum, traustum
og dugmiklum einstaklingum,
mörgum hverjum með mikla
og víðtæka reynslu af bæjar-
málum og fjölbreytilegum
félagsstörfum. Að mati nefnd-
arinnar sýnir listinn góða og
mikla breidd og er jafnt setinn
konum og körlum. Nú í fyrsta
sinn á fulltrúi erlendra ríkisþorg-
ara fulltrúa á listanum og er það
sjónarmið nefndarinnar að það
sé fyllilega tímabært með tilliti
til þess að stöðugt hefur íjölgað
fólki hér í bæjarfélaginu sem er
af erlendum uppruna. Þetta fólk
greiðir hér skatta og skyldur og
er sannarlega orðinn hluti af
okkar samfélagi.
Itarlegri kynning á frambjóð-
endurn K - listans verður send
bæjarbúum síðar.
Kosningastjórn
K - listans
Á fundinum var samþykkt
tillaga um 7 manna kosninga-
stjórn K - listans og skipa hana
eftirtaldir aðilar: Guðmundur
Gunnarsson, Fanney Dóróthea
Halldórsdóttir, Ina Dóra Hjálm-
arsdóttir, Egill Ólafsson, Jón
Norðíjörð, Sigurður Guðjóns-
son og Oddný Guðjónsdóttir.
Málefnavinna
K - listans, nýjar leiðir
Það hefur ætíð verið markmið
þeirra sem standa að K - list-
anum að leggja fram raunhæfa
og ítarlega stefnuskrá fyrir
hverjar kosningar. Stefnumál
K - listans fyrir kjörtímabilið
2006 til 2010 verða kynnt bæjar-
búum tímanlega. Á fundinum
var samþykkt að gefa öllum bæj-
arbúum sem vilja og hafa áhuga
á, tækifæri til að koma með
okkur í málefnavinnuna sem
framundan er og hafa þannig
bein áhrif á gerð stefnuskrár-
innar. Þeir málaflokkar sem
m. a. þarf að skapa markvissa
stefnu um eru: Stjórnun og
fjármálastefna bæjarfélagsins,
skóla- og fræðslumál, félags-
og fjölskyldumál, málefni eldri
borgara, æskulýðs- og íþrótta-
mál, ferða- og menningarmál,
umhverfismál, atvinnumál,
hafnarmál, skipulags- og bygg-
ingarmál, samgöngumál o.fl.
Þeir sem vilja og hafa áhuga á
að taka þátt í þessu starfi með
okkur geta snúið sér til Óskars
sími 660-8189, Ingþórs sími
862-3505, Kolbrúnar sími 699-
7754 eða Sigursveins sími 863-
1795.
Samþykkt var á fundinum að
opna kosningaskrifstofu K - list-
ans að Suðurgötu 5, hinn 1. maí
n. k.
Baráttukveðjur til ykkar allra, K
- listinn er kominn á fulla ferð!
Stjóm Bœjarmála-
félags K-listans
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!