Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 24
ÍÞRÓTTIR í BOÐI LANDSBANKANS riggja ára sigurgöngu Keflavíkur í úrvalsdeild karla í körfuknattleik er nú lokið. Valur Ingimundar- son og leikmenn hans frá Borg- arnesi báru sigurorð af Kefla- vík 80-84 í oddaleik liðanna s.l. flmmtudag. Lokamínútur leiksins voru há- dramatískar þar sem Arnar Freyr Jónsson fékk dæmda á sig tæknivillu sem hafði afdrifarík áhrif. Þegar um 30 sekúndur voru til leiksloka braut Arnar Freyr á George Byrd og fékk villu fyrir vikið. Staðan var þá 80-80 en svo kom reiðarslagið þegar Rögnvaldur Hreiðarsson, annar dómara leiksins, dæmdi tæknivillu á Arnar Frey. Þá var staðan 80-80 og fjögur vítaskot framundan hjá Skallagrím og þeir fengu boltann aftur. Byrd brenndi af fyrstu vítunum en Pétur Már kom Skallagrím í 80- 82 og Jovan Zdravevski gerði sigurkörfu leiksins þegar um 6 sekúndur voru til leiksloka og það dugði Skallagrím til sigurs. Mikið hefur verið rætt um þetta örlagaríka tæknivíti sem byggt var á þessurn orðum: „Ertu að grínast?" Að sögn Arnars Freys Jónssonar voru þessi afdrifa- ríku orð ekki sprottin af reiði eða ögrandi á nokkurn hátt í garð dómarans. „Ég sagði þetta á leið minni á bekkinn og gerði það í rólegheitum. Ég hafði ekki fengið eina einustu aðvörun fram að þessu,“ sagði Arnar Freyr í samtali við Víkurfréttir og var hann, eins og gefur að skilja, mjög vonsvikinn. „Þú dæmir ekki tæknivillu þegar 30 sekúndur eru eftir af svona leik,“ sagði Arnar. „Það var búið að setja fordæmi í leiknum og leikmenn höfðu verið að rífast allan tímann og ekkert dæmt. Ég var ekkert svekktur út í vill- una sem ég fékk sem var mín fimmta villa og sagði þetta mjög sakleysislega," sagði Arnar Freyr og minnti réttilega á að körfubolti er leikur sem á að hafa gaman af og að hann væri búinn að jafna sig á öllu saman og horfði björtum augum fram á veginn. VF-sport molar Útisigur hjá Bayreuth LOGI Gunnarsson gerði 10 stig og tók 3 fráköst er Bayreuth lagði USC Freiburg 71-78 á útivelli í suðurriðli þýsku 2. deildar síðasta laugardag. Bayreuth er í 6. sæti deildarinnar með 16 sigra og 11 tapleiki. GAIS tapar JÓHANN B. Guðmundsson og félagar hans í sænska knattspyrnuliðinu GAIS urðu að játa sig sigraða 1-0 gegn Helsingborg á sunnudag. Jóhann var í byrjunarliði GAIS og lék allan leikinn. Sindri vann Njarðvík NJARÐVÍKINGAR mættu Sindra s.l. laugardag í deild- arbikarnum í knattspyrnu og lutu þá í gras 1-0. Njarð- víkingar eru í 5. sæti í 2. riðli B deildar í deildarbikarnum með einn sigurleik og tvo tapleiki en markatalan er 8:2 þar sem Njarðvíkingar burstuðu Huginn 8:0 fyrir skemmstu. Næsti leikur Njarðvíkinga er gegn Stjörn- unni á morgun kl. 20:00 á Stjörnuvelli í Garðabæ. Sreyndist Keflavik rSíída er hún JiJ'Maríu og Köru mynd. UMFG heldur til Tyrklands Knattspyrnulið Grinda- víkur heldur í dag til Tyrklands í 10 daga æf- ingaferð. Gengi liðsins í deild- arbikarnum var nokkuð brös- ugt en liðið vann aðeins einn leik af sjö, gerði 3 jafntefli og tapaði 3 leikjum. Eysteinn Húni Hauksson, leik- maður Grindavíkurliðsins, sagði gengi liðsins dapurt í deildarbik- arnurn undanfarin ár en að það hafi sýnt sig að engin bein teng- ing væri á rnilli árangurs í deild- arbikarnum og íslandsmótinu. „Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur en þó er hægt að segja að liðið geti miklu betur en það hefur verið að sýna í öllum keppnum undanfarin ár. Það hefur ekki verið fyrr en liðið er komið með bakið upp við vegg að menn bretti upp ermar og sýni hvað í þeim býr,“ sagði Ey- steinn í samtali við Víkurfréttir. Aðspurður um komandi leik- tíð í sumar sagði Eysteinn að þegar hann horfði til íeikmanna- hópsins og þjálfaranna þá væri tilfinningin góð. „Það er fagn- aðarefni fyrir okkur að Ray og Orri eru komnir á fullt að nýju eftir méiðsli, við munum leika nokkra æflngaleiki í Tyrklandi og þjappa hópnum vel saman úti,“ sagði Eysteinn. Grind- víkingar hafa verið nokkuð óheppnir með meiðsli en Ey- steinn sagði að ef Grindvíkingar næðu að stýra frá þeim í sumar þá væri liðið með sterkan 18 manna hóp. Landsbankadeildin hefst þann 14. maí n.k. á heilli umferð þar sem Grindvíkingar mæta ÍA á heimavelli. Grindavík lauk keppni í 7. sæti á síðustu leiktíð með 18 stig en Fram og Þróttur Reykjavík féllu í 1. deild. Haukar eru Islands- meistarar í kvenna- körfuknattleik tíma- bilið 2005-2006 eftir 3-0 sigur á Keflavík. Haukar burstuðu fyrsta leik liðanna en næstu tveir voru frábær skemmtun þó Islandsmeistarar síðustu þriggja ára hefðu þurft að láta frá sér titilinn. I þriðja og síðasta leik liðanna, sem fram fór að Ásvöllum í Hafnarfirði, var spennan mikil og skiptust liðin á því að hafa forystu. Haukar mættu grimmar til leiks og komust í 33-20 en Keflavík minnkaði muninn í 47-43 fyrir leikhlé. I þriðja leik- hluta voru það Margrét Kara Sturludóttir og Birna Valgarðs- dóttir sem stóðu fyrir góðu áhlaupi Keflavíkur sem hafði yfir 59-62 fyrir síðasta leiklrlut- ann. í fjórða Ieikhluta skiptust liðin á forystunni en hið unga og efnilega lið Hauka gerði sér lítið fyrir og kláraði leikinn 81- 77. „Við vorum að spila nokkuð vel og það var grátlegt að fá ekki meira út úr þessum síðasta leik,“ sagði Sverrir Þór Sverris- son, þjálfari Keflavíkur, í samtali við Víkurfréttir. „Það vantaði upp á sjálfstraustið hjá okkur í sókninni undir lokin til þess að klára þennan leik og við vorurn að missta boltann klaufalega á stundum en þetta bara datt ekki okkar megin,“ sagði Sverrir að lokum. mrirTTTTfi i * Haukar íslandsmeistarar VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU •www.vf.is- LESTU MÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA! 24 IVÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASlÐUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.