Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 27
Aðsent efni: postur@vf.is Sigríður Jóna Jóhannesdóttir skrifar: Sundlaugar í Reykjanesbæ í Njarðvíkurkirkju skírdag kl. 20.00 Fram koma: Gospellcór Suðurnesja og Gospel Invasion Group frá Krossinum. UPpbygging Íþrótta- mannvirkja í Reykja- nesbæ hefur verið mikil á und- an förn um árum sam- hliða fjölgun í b ú a o g miklum fram- kvæmdum í nýjum íbúa- hverf um í Innri Njarðvík. í næsta áfanga Akurskóla er gert ráð fyrir íþróttamiðstöð þ.e. íþróttasal og sundlaug. Með hliðsjón af annarri uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum s.s. 50 m innisundlaug og vatna- garðs auk áframhaldandi rekst- urs Sundhallarinnar hefur verið tekin sú ákvörðun að stærð Ak- urskólasundlaugar verði 16 og 2/3m líkt og í gömlu Sundhöll- inni en til samanburðar má jafn- framt nefna að Heiðarskólalaug er 8 m xl2.5 m. Ný 50m innisundlaug og vatna- garður verður opnuð á vor- dögum og ákveðið hefur verið að fresta lokun Sundhallarinnar a.m.k. þar til Akurskólalaugin verður tilbúin. Þannig er komið til móts við þarfir yngsta sund- fólksins og mætt óskum um aukna tíma vegna sundleikfimi eldri borgara. Við ákvörðun um skipulag og stærð Akurskóla var hönnun Heiðarskóla höfð til hliðsjónar, en tekið tillit til ábendinga kenn- ara og annars starfsfólks skólans um það sem betur mætti fara. I framhaldi var ákveðið að lengja Akurskólalaugina upp í 16 og 2/3m, stækka íþróttasalinn og fjölga búningsherbergjum. Með tilkomu nýrrar innisund- laugar og Akurskólalaugar verða eftirtaldar sundlaugar í bæjarfé- laginu: 1. Heiðarskólalaug ( 8 x 12,5) 2. Sundhöllin ( 7 xl6 og 2/3 ) 3. Njarðvíkurlaug ( 8 x 12,5) 4. Útilaug Sundmiðstöðvarinnar við Sunnubraut (12.5 x 25) + barnalaug 5. 50m innilaug ( sem er í raun 2 x 25 metra laugar því hægt verður að skipta lauginni með milliþili. Stærð alls 15.5 x 50) Að auki verður þar yfirbyggður vatnsleikjagarður 6. Akurskólalaug (8x16 2/3) Það hefur verið metnaður okkar í Reykjanesbæ að búa vel að sundfólkinu okkar ásamt því að bjóða almenningi góðar sund- laugar og svo mun verða áfram. Til að auðvelda fólki að komast á milli staða hefur ekkert gjald verið tekið í strætó og til að hvetja yngri kynslóðina til auk- innar sundiðkunar fá öll börn sem búa í Reykjanesbæ frítt í sund til 16 ára aldurs. Einnig tel ég nauðsynlegt að auka þjón- ustu við nýju hverfin með stræt- óferðum um helgar eftir því sem ný hverfi byggjast upp. Þegar næstu hverfi rísa austan Tjarnahverfis (Dalshverfi/ Stapahverfi) er gert ráð fyrir sérstökum þjónustukjörnum, leik- og grunnskólabyggingum, íþróttasvæði ásamt íþróttabygg- ingum og útivist. Margir íbúar hafa látið í ljós þá skoðun að við Akurskóla eigi að vera 25 metra innilaug. Staðreyndin er sú að ekkert sveitarfélag af svipaðri stærð og Reykjanesbær rekur jafnmargar sundlaugar og þar af leiðandi ekki talið rétt að fara í svo stóra framkvæmd að svo stöddu. Hinsvegar með tilkomu nýrra hverfa hlýtur að koma sterklega til greina að stærri laug verði byggð í tengslum við þjónustu- kjarna Stapahverfis. Sigríður Jóna Jóhannesdóttir Bœjarfulltrúi Sjálf- stœðisflokksins HörðurGuðbrandsson skrifar: Heilsugæslumál í Grindavík Opið bréf til þeirra sem málið varðar Sú þjónusta sem heilsu- gæslustöðin í Grindavík á að sinna er vægast sagt ekki boðleg. Það skal þó tekið fram að ekki er við starfsfólk stöðvarinnar að sakast, sem vinn ur sitt starf með miklum ágætum. Stöðin er undirmönnuð sem þýðir að ekki er hægt að sinna því fólki sem þangað leitar með kvilla sína. Dæmi er um allt að viku bið til að fá tíma hjá lækni og það segir sig sjálft að fæstir geta beðið í viku eftir úrlausn sinna mála. Fjöidinn allur af Grindvíkingum leitar því til læknamiðstöðvanna í Kópavogi eða næturvakt HSS í Reykjanesbæ með tilheyrandi fyrirhöfn og kostnaði. Búið er að sýna stjórnendum HSS mikið langlundargeð í því að koma þjónustinni í lag í Grindavík. Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa átt fjölmarga fundi með stjórnendum HSS til að þrýsta á betri þjónustu en ég held að útséð sé um að það ger- ist með núverandi stjórnendum. Þá hafa bæjaryfirvöld í Grinda- vík óskað eftir því að fá að reka heilsugæsluna hjá Jóni Kristjáns- syni fyrrverandi helbrigðisráð- herra sem vísaði því frá sér eftir að hafa legið á málinu í tvö ár. Bæjaryfirvöld hafa pantað tíma hjá nýjum heilbrigðisráðherra Siv Friðleifsdóttur og vonandi tekur hún betur í hugmyndir okkar. Því hlýtur það að vera krafa Grindvíkinga að þeir fái sjálfír að sjá um rekstur heilsugæsl- unnar og húkrunardeildarinnar í Víðihlíð með rekstraframlagi hjá ríkinu. Þetta er gert bæði á Akureyri og í Höfn í Horna- firði með góðu árangri einsog bæjastjórar þeirra hafa lýst yfir opinberlega. Kveðja Hörður Guðbrands- son,forseti bœjarstjórnar Grindavtkur og skipar 3 sœti S-listans í Grindavtk. STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGIÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Aðgangur ókeypis Hvítasunnukirkjan VINNUEFTIRLITIÐ — Grófinni 17a - 230 Reykjanesbæ - Sími 421 1002 Fax 421 4972 - www.vinnueftirlit.is Frumnámskeið Haldið verður Frumnámskeið íyrir lyftara og minni jarðvinnuvélar 25., 26. og 28. apríl n.k. (eitt námskeið). Þátttaka tilkynnist á skrifstofuna Grófinni 17a Keflavík eða í síma 421 1002. Skrifstofan er opin alla virka daga frákl. 8.15-12.00, einnig mánudaga og fimmtudaga 13-16. Fundarboð Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nógrennis ver&ur haldinn ó Víkinni að Hafnargötu 80 Keflavík, þriSju- daginn 25. apríl n.k. klukkan 20.00. Dagskrá. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. 3. Onnur mál. Kaffiveitingar verða á fundinnum. Félagar fjölmennum! Stjórnin Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis VIKURFRETTIR MIÐVIKUDAGURINN12. APRIL 20061 27

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.