Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 17
iARFA HJÁ FRIÐARGÆSLULIÐI SÞ í LÍBERÍU Allt vatn er borið á höndum enda ekkert rennandi vatn i borginni. sjá hvarvetna, eins og þessi sundurskotni bíll ber glöggt vitni um. Birgir og glottir út í annað við tilhugsunina. „Sjómennska“ í Sahara Biggi hefur upplifað ýmislegt í starfi sínu hjá SÞ og um tíma var hann á þeirra vegum í Sa- hara-eyðimörkinni. Þar var hann í sveit sem hafði það verkefni fylgja bílalestum inn í eyðimörkina, sem fluttu vistir og vatn til friðargæslu- liðsins. Þessar ferðir gátu tekið 5 til 6 daga við mjög erfiðar aðstæður í steikjandi hita og stundum í sandstormum, sem máðu út allar slóðir. „Ég stundaði sjómennsku hér heima á sínum tíma og þetta minnti mann stundum á hana. Maður var með sömu siglinga- tækin en í staðinn fyrir að finna ' . ' IHHlil ■ I mj Hér sést yfir hluta þeirra 1.800 ökutækja SÞ sem Birgir og hans deild hefur umsjón með. baujur var maður að leita að tjaldbúðum", segir Biggi. „Við urðum mikið til að reiða okkur á tækin því einn sand- stormur gat breytt öllu lands- laginu og máði út allar slóðir. Einnig notuðum við tækin til að sneiða fram hjá jarðsprengju- svæðum. Það gat komið fyrir að stærsti sandskaflinn myndaðist einmitt í leið okkar. Við gátum ekki sneitt framhjá vegna hættu á jarðsprengjum heldur urðum við að fara í gegn, hvað sem tautaði og raulaði. Erfiðast var að koma fyrsta farartækinu yfir en eftir það var hægt að nota keðjur og kaðla til að toga hin í gegn. Þetta var oft óttalegt streð sem tók mikinn tíma“, segir Biggi. „Þetta er bara eins og með innsiglinguna í Sandgerði eða Grindavík, ef þú ert ekki akkúrat í línunni þá lendirðu í vandræðum“. Vel tekið af heimamönnum Eins og skýrt er á heimasíðu SÞ í Líberíu (unmil.org) er megin- hlutverk SÞ að koma á lögum og reglu, þjálfa her og lögreglu og komu hlutunum í þann far- veg að heimamenn geti tekið alfarið við stjórninni síðar. En hvernig taka heimamenn liði SÞ, eru menn öryggir um líf sitt og limi á slóðum sem þessum? „Heimamenn taka okkur vel og eru vingjarnlegir í okkar garð. Það er búið að koma á góðu jafnvægi og nokkuð friðvænlegt um að litast í landinu. Mesta spennan er úr sögunni og þrátt fyrir að það búi 16 þjóðflokkar í landinu er ekki mildð um róstur enda hefur að mestu leiti tekist að afvopna landsmenn", segja þeir félagar. Varðandi aðrar hættur segjast þeir aðspurðir hafa að mestu sloppið við sjúkdóma eins og malaríu, sem er mjög skæð á þessum slóðum, en þeir eru búnir að fara í ófáar bólusetn- ingarnar. Menn eru þó aldrei ör- yggir því malarían lagði Bigga í rúmið haustið 2003. Varð hann all veikur að eigin sögn, en náði blessunarlega að jafna sig. í haust fóru fram kosningar í landinu, þær fyrstu síðan 1997 og eru bundnar miklar vonir við nýjan kvenforseta, Ellen Johnson Sirleaf. Landsmenn eru bjartsýnir á að undir hennar stjórn takist að koma á endan- legum friði og umbótum í land- inu. Að sögn þeirra félaga hefur mikill árangur náðst síðan SÞ komu til skjalanna í Líberíu og það gefi starfinu gildi. Að sjá og flnna slíkan árangur sé mjög gefandi. Strembið á stundum En nú eruð þið búnir að vera í þessu lengi, kynnst afar mis- jöfnum aðstæðum og orðið vitni að mannlegum hörmungum á stríðshráðum svæðum, séð af- leiðingar stríðs, fátæktar og ör- brigðar. Koma ekki þær stundir að menn langi mest til að hætta þessu og drífa sig heim? „Jú vissulega hafa þær stundir komið að maður hefur spurt sjálfan sig maður sé eiginlega að gera hérna“, segir Þórður og hlær. Birgir tekur undir það. „Þetta starf getur verið strembið á köflum og stundum langar mann mest til að vera heima á Is- landi í öryggi og notalegheitum “, segir Biggi og brosir. Þeir eru sammála um að af þeim verkefnum sem þeir hafa verið í, sé Líbería mest gefandi. Ekki síst vegna nálægðarinnar og samvinnunnar við fólkið í landinu sem tekur þeim vel og vingjarnlega, eins og áður sagði. Það sé ólíkt því sem gerist sums staðar annars staðar þar sem litið er á SÞ sem aðskota- hlut. Það að sjá árangur og breyt- ingar sé mjög gefandi, einnig að finna að einstaklingsframtakið í starfmu fái að njóta sín. Þetta verkefni sé t.d. gjörólíkt öðrum af sama toga, t.d. í írak þar sem sama óöldin ríkir mánuð eftir mánuð og engin árangur er sjá- anlegur. „Þrátt fyrir að starfið geti stundum verið strembið eins og áður sagði, þá bítur maður á jaxlinn og heldur áfram. Þegar maður er líka búinn að gera starfssamning, þá klárar maður hann. Maður er búinn að taka að sér ákveðnar skyldur og þá labbar maður ekki bara í burtu þó á móti blási. Líka vegna þess að þetta er hugsjónastarf sem knýr mann áfram“, sögðu þeir félagar að lokum. Barnungir með byssur - þetta var algeng sjón í Monróvíu fyrir nokkru en nú hefur SÞ tekist að afvopna flesta landsmenn með því að grelða þeim fyrir vopnin. STÆR5TA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIO Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN12. APRIL 20061 17

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.