Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 16
BIRGIR GUÐBERGSSON OG ÞORÐUR OSKARSSON ST Suðurnesjamennirnir Birgir Guðbergsson og Þórður Óskarsson hafa valið sér starfsvettvang sem okkur meðaljóninum þætti nokkuð framandi og jafnvel viðsjárverður en þeir starfa hjá friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líberíu um þessar mundir. Þeir hafa áralanga reynslu af störfum á þessum vettvangi, allt frá byrjun síðasta áratugar þegar þeir fóru til starfa hjá SÞ við upphaf stríðsátakanna á Balkanskaga. Þeir Biggi og Doddi, eins og þeir eru kallaðir, voru í stuttri heimsókn á landinu núna í vikunni og Ellert Grétarsson hitti þá við það tækifæri. inni felst í því að kenna fólki að aka við þessar aðstæður og takast á við þær en margir hverjir hafa aldrei haft kynni af jeppum. Þegar þú situr fastur í leirsandi eða leðju einhvers staðar út í skógi er kannski ekki hægt að hringja í einhvern til að sækja mann og þvi verða menn að læra bjarga sér“, segir Biggi. „Jú, alveg örugglega. Þó það snjói aldrei þarna þá gilda sömu lögmálin um jeppaakstur við erfiðar aðstæður. Einnig hef ég farið á námskeið á vegum bílaframleiðanda og aflað mér þannig nokkurrar þekkingar á þessu sviði sem ég miðla svo áfram“, svarar Birgir. Þórður starfar hins vegar hjá Hún var ekki upp á marga fiska, aðstaðan sem Birgir og félagar hans höfðu fyrstu vikurnar í Líberiu. Gist var í tjöldum í yfirgefnum byggingum og allt upp i 20 manns deildu herbergi. Þá liggur beinast við að spyrja hvort bakgrunnur Islendings- ins, í landi þar sem jeppamenn- ingin á sér sterkar rætur, hafi ekki nýst honum vel i starfi? ljósavéladeild, innan Verk- fræðideildar SÞ sem annast uppsetningu, eftirlit og viðhald með díselrafstöðvum víða um landið. Engar starfshæfar raf- mangnsveitur eru í landinu, sem hefur verið rafmagnslaust síðan 1989, og því þarf að styðj- ast við dísel rafstöðvar sem eru urn 600 í notkun eingöngu fyrir stafsemi SÞ, að sögn Þórðar. Þá felst starfið einnig í því að þjálfa heimamenn til geta annast raf- stöðvarnar SÞ. Óspennandiaðkoma Sameinuðu þjóðirnar fóru inn í landið haustið 2003 eftir að Charles Taylor lét stjórnar- taumana af hendi og var Birgir í för með fyrstu sveitunum sem komu á vettvang til að hefja upp- byggingastarfið og annast frið- argæslu. Þórður kom svo til Lí- beríu í mars 2004. SÞ átti mikið starf fyrir höndum þar sem nán- ast allt var í rúst og aðstæður gríðarlega erfiðar eftir margra ára óöld og þrengingar. í borg- inni var allt í niðurníslu og sóða- skapur mikill, ekkert rennandi vatn og ekkert skólpkerfi. Að sögn þeirra félaga hefur mikið ánunnist í starfi SÞ í landinu, þó talsvert sé í land ennþá. „Aðkoma SÞ var mjög vel undir- búin í New York og valinn starfs- maður í hverri stöðu. Engu að síður var allur aðbúnaður frekar erfiður til að byrja með þar sem við höfðum við nánast ekkert í höndunum. Til dæmis höfðum mjög takmarkað val um staði til að sofa á eftir vinnu- Minjar stríðs og óaldar má s lögum gistum á hóteli sem bar það virðulega nafn Hollyday Inn. Það kom nú í ljós að þetta hafði ekkert með þá þekktu hótelkeðju að gera. Aðbúnaður- inn þar og óþrifnaður var alveg hræðilegur en við höfðum þó allavega öruggan stað til að sofa ár. Vatnið borið inn í fötum fyrir okkur, sem við notuðum til að þvo okkur og baða, segir VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! -af jeppamennsku Hugsjónir og ævintýramennska Þórður hóf störf hjá SÞ árið 1993 í fyrrum Júgóslavíu og ári seinna kom Birgir þangað til starfa. Síðan þá hafa þeir verið samferða í störfum sínum á þessum vettvangi. Þórður hvarf reyndar til starfa á öðrum vett- vangi 1998 en réði sig aftur til SÞ fyrir tveimur árum þegar SÞ tók við stjórninni í Líberíu. En hvað er það sem togar menn til slíkra starfa á stríðs- hrjáðum svæðum við misjafnar aðstæður? „Það má segja að þetta sé ákveð- inn lífstíll, þar sem blandast saman hugsjónir og ævintýra- mennska. Af hverju menn fest- ast í þessu er ekki gott að segja, en hluti af því er eflaust það að finna að maður er hluti af stærri heild og gerir eitthvað gagn“, segir Þórður. „Við fórum báðir til Júgóslavíu þegar stríðið stóð sem hæst og ætluðum að vera í þessu í stuttan tíma. En ein- hverra hluta vegna erum við í þessu ennþá og það eru mörg dæmi um fólk sem hefur ílengst í þessu árum saman, hætt oft en alltaf togast í þetta aftur. Þannig að eflaust er þetta einskonar bakteríá', bætir Biggi við. íslensk jeppamennska nýtist í Afríku Birgir fór til Júgóslavíu sem bílstjóri á sínum tíma. I dag vinnur hann við faratækja- og flutningadeild sem hefur með höndum umsjá þeirra 1.800 öku- tækja sem SÞ eru með í Líberíu. Allir starfsmenn og hermenn SÞ þurfa að undirgangast sér- stakt bílpróf að undangenginni þjálfun þar að lútandi og hefur deildin sem hann stjórnar yfir- umsjón með því, ásamt ýmsu öðru tengdu ökutækjaflotanum, s.s. öryggismál, skráningu slysa og tjóna hvernig hægt er að draga úr þeim. Að sögn Birgis þarf að þjálfa menn sérstaklega til að aka á þeim lélegu vegum sem liggja um landið, t.d. verði allir vegir fljótandi leir yfir regntímabilið. „ Við erum nær eingöngu með aldrifsbíla og spil á flestum stærri farartækjum því aðstæður til aksturs geta oft á tíðum verið alveg afleitar. Hluti af þjálfun- í Líberíu, íslenskri „sjómennsku" í Sahara og misjöfnum aðstæðum friðargæsluliða. daginn og komum okkar fyrir á dýnum og í tjöldum í þeim byggingum sem SÞ höfðu flust inn í. Einhvern veginn tókst að koma upp mjög takmarkaðri skrifstofuaðstöðu á fyrstu dög- unum og sumir sváfu þar líka. Oryggis vegna var okkur ráðlagt að hafast við í þeim byggingum sem SÞ hafði fengið til umráða og þar sem það húsnæði var af skornum skammti sváfum við 20 saman í einu litlu herbergi", segir Birgir þegar hann rifjar upp fyrstu dagana í Monróvíu, höfuðborg Líberíu. „Mér er það minnistætt þegar ég ásamt nokkrum vinnufé- í snjókomunni heima á íslandi: Þórður Óskarsson og Birgir Guðbergsson starfa á öllu heitari slóðum hjá friðargæsluliði SÞ í Afríku. 16 | VIKURFRÉTTIR ! 15. TÖLUBLAÐ ■ 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.