Víkurfréttir - 12.04.2006, Side 16
BIRGIR GUÐBERGSSON OG ÞORÐUR OSKARSSON ST
Suðurnesjamennirnir Birgir Guðbergsson og Þórður Óskarsson hafa valið sér starfsvettvang sem okkur meðaljóninum
þætti nokkuð framandi og jafnvel viðsjárverður en þeir starfa hjá friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líberíu um þessar
mundir. Þeir hafa áralanga reynslu af störfum á þessum vettvangi, allt frá byrjun síðasta áratugar þegar þeir fóru til starfa
hjá SÞ við upphaf stríðsátakanna á Balkanskaga. Þeir Biggi og Doddi, eins og þeir eru kallaðir, voru í stuttri heimsókn á landinu
núna í vikunni og Ellert Grétarsson hitti þá við það tækifæri.
inni felst í því að kenna fólki
að aka við þessar aðstæður
og takast á við þær en margir
hverjir hafa aldrei haft kynni af
jeppum. Þegar þú situr fastur
í leirsandi eða leðju einhvers
staðar út í skógi er kannski ekki
hægt að hringja í einhvern til að
sækja mann og þvi verða menn
að læra bjarga sér“, segir Biggi.
„Jú, alveg örugglega. Þó það
snjói aldrei þarna þá gilda sömu
lögmálin um jeppaakstur við
erfiðar aðstæður. Einnig hef
ég farið á námskeið á vegum
bílaframleiðanda og aflað mér
þannig nokkurrar þekkingar á
þessu sviði sem ég miðla svo
áfram“, svarar Birgir.
Þórður starfar hins vegar hjá
Hún var ekki upp á marga fiska, aðstaðan sem Birgir og félagar
hans höfðu fyrstu vikurnar í Líberiu. Gist var í tjöldum í yfirgefnum
byggingum og allt upp i 20 manns deildu herbergi.
Þá liggur beinast við að spyrja
hvort bakgrunnur Islendings-
ins, í landi þar sem jeppamenn-
ingin á sér sterkar rætur, hafi
ekki nýst honum vel i starfi?
ljósavéladeild, innan Verk-
fræðideildar SÞ sem annast
uppsetningu, eftirlit og viðhald
með díselrafstöðvum víða um
landið. Engar starfshæfar raf-
mangnsveitur eru í landinu,
sem hefur verið rafmagnslaust
síðan 1989, og því þarf að styðj-
ast við dísel rafstöðvar sem eru
urn 600 í notkun eingöngu fyrir
stafsemi SÞ, að sögn Þórðar. Þá
felst starfið einnig í því að þjálfa
heimamenn til geta annast raf-
stöðvarnar SÞ.
Óspennandiaðkoma
Sameinuðu þjóðirnar fóru
inn í landið haustið 2003 eftir
að Charles Taylor lét stjórnar-
taumana af hendi og var Birgir
í för með fyrstu sveitunum sem
komu á vettvang til að hefja upp-
byggingastarfið og annast frið-
argæslu. Þórður kom svo til Lí-
beríu í mars 2004. SÞ átti mikið
starf fyrir höndum þar sem nán-
ast allt var í rúst og aðstæður
gríðarlega erfiðar eftir margra
ára óöld og þrengingar. í borg-
inni var allt í niðurníslu og sóða-
skapur mikill, ekkert rennandi
vatn og ekkert skólpkerfi. Að
sögn þeirra félaga hefur mikið
ánunnist í starfi SÞ í landinu, þó
talsvert sé í land ennþá.
„Aðkoma SÞ var mjög vel undir-
búin í New York og valinn starfs-
maður í hverri stöðu. Engu
að síður var allur aðbúnaður
frekar erfiður til að byrja með
þar sem við höfðum við nánast
ekkert í höndunum. Til dæmis
höfðum mjög takmarkað val
um staði til að sofa á eftir vinnu-
Minjar stríðs og óaldar má s
lögum gistum á hóteli sem bar
það virðulega nafn Hollyday
Inn. Það kom nú í ljós að þetta
hafði ekkert með þá þekktu
hótelkeðju að gera. Aðbúnaður-
inn þar og óþrifnaður var alveg
hræðilegur en við höfðum þó
allavega öruggan stað til að sofa
ár. Vatnið borið inn í fötum
fyrir okkur, sem við notuðum
til að þvo okkur og baða, segir
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
-af jeppamennsku
Hugsjónir og
ævintýramennska
Þórður hóf störf hjá SÞ árið
1993 í fyrrum Júgóslavíu og ári
seinna kom Birgir þangað til
starfa. Síðan þá hafa þeir verið
samferða í störfum sínum á
þessum vettvangi. Þórður hvarf
reyndar til starfa á öðrum vett-
vangi 1998 en réði sig aftur til
SÞ fyrir tveimur árum þegar SÞ
tók við stjórninni í Líberíu.
En hvað er það sem togar
menn til slíkra starfa á stríðs-
hrjáðum svæðum við misjafnar
aðstæður?
„Það má segja að þetta sé ákveð-
inn lífstíll, þar sem blandast
saman hugsjónir og ævintýra-
mennska. Af hverju menn fest-
ast í þessu er ekki gott að segja,
en hluti af því er eflaust það að
finna að maður er hluti af stærri
heild og gerir eitthvað gagn“,
segir Þórður. „Við fórum báðir
til Júgóslavíu þegar stríðið stóð
sem hæst og ætluðum að vera
í þessu í stuttan tíma. En ein-
hverra hluta vegna erum við í
þessu ennþá og það eru mörg
dæmi um fólk sem hefur ílengst
í þessu árum saman, hætt oft en
alltaf togast í þetta aftur. Þannig
að eflaust er þetta einskonar
bakteríá', bætir Biggi við.
íslensk jeppamennska
nýtist í Afríku
Birgir fór til Júgóslavíu sem
bílstjóri á sínum tíma. I dag
vinnur hann við faratækja- og
flutningadeild sem hefur með
höndum umsjá þeirra 1.800 öku-
tækja sem SÞ eru með í Líberíu.
Allir starfsmenn og hermenn
SÞ þurfa að undirgangast sér-
stakt bílpróf að undangenginni
þjálfun þar að lútandi og hefur
deildin sem hann stjórnar yfir-
umsjón með því, ásamt ýmsu
öðru tengdu ökutækjaflotanum,
s.s. öryggismál, skráningu slysa
og tjóna hvernig hægt er að
draga úr þeim.
Að sögn Birgis þarf að þjálfa
menn sérstaklega til að aka á
þeim lélegu vegum sem liggja
um landið, t.d. verði allir vegir
fljótandi leir yfir regntímabilið.
„ Við erum nær eingöngu með
aldrifsbíla og spil á flestum
stærri farartækjum því aðstæður
til aksturs geta oft á tíðum verið
alveg afleitar. Hluti af þjálfun-
í Líberíu, íslenskri „sjómennsku" í Sahara og misjöfnum aðstæðum friðargæsluliða.
daginn og komum okkar fyrir
á dýnum og í tjöldum í þeim
byggingum sem SÞ höfðu flust
inn í. Einhvern veginn tókst að
koma upp mjög takmarkaðri
skrifstofuaðstöðu á fyrstu dög-
unum og sumir sváfu þar líka.
Oryggis vegna var okkur ráðlagt
að hafast við í þeim byggingum
sem SÞ hafði fengið til umráða
og þar sem það húsnæði var af
skornum skammti sváfum við
20 saman í einu litlu herbergi",
segir Birgir þegar hann rifjar
upp fyrstu dagana í Monróvíu,
höfuðborg Líberíu.
„Mér er það minnistætt þegar
ég ásamt nokkrum vinnufé-
í snjókomunni heima á íslandi: Þórður Óskarsson og Birgir
Guðbergsson starfa á öllu heitari slóðum hjá friðargæsluliði
SÞ í Afríku.
16 | VIKURFRÉTTIR ! 15. TÖLUBLAÐ ■ 27. ÁRGANGUR