Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 15
Tenórinn Rúnar Þór:
Rúnar Þór Guðmundsson
lauk nýverið þátttöku
sinni í óperrettunni
Nótt í Feneyjum sem sýnd var
í íslensku Operunni í Reykja-
vík. Þar fór Rúnar með hlut-
verk Caramelo sem var einka-
ritari aðalpersónunnar í verk-
inu, Party Hans. Rúnar Þór er
Keflvíkingur og starfar
sem smiður hjá ÍAV og
hefur söngur skipað æ
stærri sess í lífi hans síð-
ustu misseri. Uppfærslan
á Nótt í Feneyjum var
nemendasýning og komu
um 60-70 söngvarar í
áheyrnarprufur og hlaut
Rúanar eitt af fjórurn að-
alhlutverkunum.
„Ég hóf minn feril í Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar
en hélt svo til Reykjavíkur
og söng hjá Sigurði Dem-
etz í Reykjavík en hann
kvaddi nýverið þennan
heim,“ sagði Rúnar í sam-
tali við Víkurfréttir. „Nú
sæki ég tíma hjá Guðbirni
Guðbjörnssyni í Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar
en hann er einstaklega
góður söngkennari og frá-
bært að hafa hann í bæj-
arfélaginu,“ sagði Rúnar
sem ætlar að ljúka 8. stigs prófi,
burtfararprófi, frá Tónlistarskól-
anum í Reykjanesbæ um næstu
áramót. „Söngbakterían er orðin
ansi slæm og eftir sýningarnar á
Nótt í Feneyjum, sem voru mjög
vel sóttar, hefur þetta bara ágerst
hjá mér,“ sagði Rúnar sem er
vinnandi fjölskyldufaðir. „Ég á
yndislega konu sem stendur þétt
við bakið á mér og gæti þetta
ekki án hennar.“ Rúnar notar
hvert tækifæri til þess að æfa sig
og segir að vinnufélagarnir hafi
bara gaman af því þegar hann sé
að góla í nýbyggingunum. „Ég
tók mér frí frá vinnu til þess að
taka þátt í Nótt í Feneyjum og
sótti því um styrki til á
meðan þessu stóð. Ég
vil korna á framfæri inni-
legu þakklæti til Glitnis
og Hitaveitu Suðurnesja
og sérstakar þakkir fær
Sparisjóðurinn í Kefla-
vík,“ sagði Rúnar auð-
mjúkur. Stefnan er eins
og áður greinir sett á
burtfararpróf um ára-
mótin en eftir það ætlar
Rúnar að meta aðstæð-
urnar. „Að loknu burt-
fararprófi fara margir
söngnemar í einkatíma
hjá nafntoguðum kenn-
urum úti í heimi eða í
söngnám við háskóla,"
sagði Rúnar að lokum.
Það gæti því vel farið
svo að Suðurnesjamenn
myndu á næstu árum
eignast enn eina rósina í
litríkt hnappagat tónlist-
arsögunnar.
Rúnár Þór Guðmundsson
lauk nýverið þátttöku sinni
i óperrettunni Nótt i Fen-
eyjum. Þar fór Rúnar með
hlutverk Caramelo.
Opnunartími yfir hátiðarnar
Gámastöðvar Kölku fyrir íbúa Suðurnesja
Berghólabraut 7
Skírdagur: 13.00 -19.00
Föstudagurinn langi: Lokað
Laugardagur: 13.00 - 19.00
Páskadagur: Lokað
2. páskadagur: 13.00 - 19.00
Grindavík
Skírdagur: 13.00 - 18.00
Föstudagurinn langi: Lokað
Laugardagur: 13.00 -18.00
Páskadagur: Lokað
2. páskadagur: 13.00 - 18.00
Vogar
Skírdagur: 13.00 - 18.00
Föstudagurinn langi: Lokað
Laugardagur: Lokað
Páskadagur: Lokað
2. páskadagur: 13.00 - 18.00
Móttökustöð fyrirtœkja
Lokað frá skirdegi til 2. páskadags
Með kveðju, starfsmenn Kölku
- Við vinnum með umkverfinu!
s
KALKA
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
Berghólabraut 7 • 230 Reykjanesbær • Sími 421 8010 • Netfang kalka@kalka.is • www.kalka.is
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGA8LAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN12. APRÍL 20061 15