Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 20
 STJORNMAL / REYKJANESBÆR VIÐTAL OG MYND: ÞORGILS JÓNSSON „Ég vona að þetta verði skemmtileg og ábyrg kosningabarátta. Það er mikilvægt að við munum það að allir bæjarstjórnarmenn bera mikla ábyrgð hvort sem þeir eru í meirihluta eð minnihluta. Við eigum öll að vera að vinna að þ\ hlutverki að byggja upp bæinn okkar og benda á þá kosti sem hann hefur umfram aðra sem vii erum í samkeppni við,“ segir Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í viðtali við Víkurfréttir í aðdraganda bæjarstjórnarkosning; MEÐFYLGJANDI VIÐTAL VIÐ BOÐVAR JONSSOI VAR TEKIÐ SEM SJÓNVARPSVIÐTAL OG ER BIRT í HEILD SINNIÁ VEF VÍKURFRÉTTA. SJÓNVARPSVIÐTALIÐ ER UM 20 MÍNÚTUR OG MÁ NÁLGAST Á VF.IS UNDIR STJÓRNMÁL. ■ Hvernig lýst þér á kom- andi kosningabaráttu i Ijósi þess að nú eru aðeins tveir listar komnir fram sem berjast um völdin? Þaö eru bara tveir listar ennþá en það eru ef til vill fleiri sem eru að kanna framboð, en mér líst vel á að það séu skýrir valkostir fyrir kjósendur. ■ Hver verða stærstu kosn- ingamálin i vor að þínu mati? Ég held að það hljóti að snúast um það hvort menn vilji áfram þá sókn og þann kraft sem hafa verið í okkar sveitarfélagi á síðustu fjórum árum. Við sjálfstæðismenn viljum halda áfram þeirri uppbyggingu sem við höfum verið í og halda Reykjanesbæ í hópi öflugustu sveitarfélaga landsins eins og við höfum verið að minnsta kosti síðasta kjörtímabil. Þetta er stóra málið, en menn eiga örugglega eftir að takast á um einstök útfærsluatriði varðandi málefni eldri borgara eða leikskóla og svo framvegis, en þau hljóta að koma fram í stefnuskrám flokkanna þegar þær birtast. ■ Hversvegna ætti hinn almenni borgari að kjósa ykkur fremur en A-listann? Ég held að við höfum sýnt á síðustu fjórum árum hvað við höfum verið að gera. Við settum það skýrt fram að við vildum breyta viðhorfi landsmanna til okkar samfélags. Við lögðum það skýrt fram í síðustu kosn- ingum að við vildum gera Reykja- nesbæ að eftirsóknarverðum kosti fyrir fólk sem er að leita sér að búsetu utan höfuðborg- arsvæðisins til frambúðar. Stóru málin á næsta kjörtímabili eru í raun að fylgja eftir þessum verkefnum. Við setjum fjölskyld- una fram sem stórt mál. Þar má nefna uppbyggingu leikskóla og grunnskólanna, menntamálin og íbúðahverfin sem og svæði eldri borgara sem nú er að fara í gang á Nesvöllum við Stapa. Þar má líka nefna menningarlífið sem við erum einmitt að byggja upp í kringum Stapann, með við- byggingu þess húss og flutningi tónlistarskólans þangað. Svo er það íþróttabærinn Reykjanesbær sem við erum að byggja upp. Því segi ég að ef menn vilja halda áfram að sækja fram með þeim hætti sem við höfum verið að gera sé ég ekki ástæðu fyir fólk til að skipta um áhöfn. ■ Hver voru stóru málin á því kjörtímabiii sem er að liða og hvernig munu þau skila sér inn í kosningabaráttuna? Stærstu málin voru umhverf- ismál og skólamál. Það urðu miklar breytingar í umhverfi Hafnargötunnar sem var öll tekin í gegn. Einnig á Fitjunum og því svæði við innkomuna í bæinn. Þetta hafði þau áhrif að fólk fór að líta okkar sveit- arfélag bjartari augum. Það er hins vegar ekki nóg að bjóða upp á fallegt umhverfi heldur verður að vera í lagi með samfélagið. Viö erum búin að byggja ofan á það sem var búið að gera. Á kjörtímabilinu 1998- 2002 lögðum við til dæmis gríð- arlega peninga í skólamálin og uppbyggingu skólanna. Á þessu kjörtímabili höfum við svo verið að bæta innra starf skólanna. Við höfum komið fram með ýmsar nýjungar og breytingar á kennslu- háttum og ég held að þaö sé óum- deilt að meðal skólasamfélagsins er oft litið til Reykjanesbæjar sem fyrirmyndar í alls konar þróunar- verkefnum innan skólanna. Mann- gildissjóður var einmitt settur fram í þessum tilgangi svo hægt væri að sækja í hann peninga til að vinna að þróunarverkefnum. Sama er með frístundaskól- ann sem er sérstakt mál sem sveitarstjórnarmenn víða um land hafa skoðað. Þetta var eitt stærsta málið sem við settum fram fyrir síðustu kosningar og fjölmargir sögðu við okkur á vinnustaðafundum að þetta væri ekki hægt. Við réðumst hins vegar í þetta verkefni og það hefur tekist gríðarlega vel. Ég vona að menn sjái það að við höfum fylgt vel eftir málefna- skrá sem við settum fram fyrir kosningarnar 2002. Við höfum gert það sem viö lögðum upp með í þeirri kosningabaráttu og þannig fært orð í efndir. ■ Er eitthvað til í þeim orðrómi að Sjálfstæðismenn hyggist selja hlut sinn i Hitaveitu Suðurnesja? Það er algjörlega rangt og við höfum margoft svarað því í bæjar- stjórn að það standi ekki til. Við settum það skýrt fram fyrir síð- ustu kosningar að við myndum standa vörð um hlut okkar í Hitaveitunni og munum væntan- lega gera það aftur í kosningabar- áttunni nú til að undirstrika það. Þegar Álftanes seldi sinn hlut nú fyir skömmu óskaði Reykjanes- bær eftir því aö kaupa eins mikið af hlutabréfum og falt væri. Og við höfum sagt það sama núna í umræðunni um hlutabréf ríkisins. Við viljum tryggja okkar stöðu og tryggja okkur eignarhluta á hluta ríkisins ef hann verður seldur. ■ Hverju svarið þið gagn- rýni á fjármálastjórn bæj- arins undir ykkar stjórn? Ég verð að játa að ég skil ekki alltaf gagnrýni minnihlutans í þeim efnum. Ég myndi svara því þannig að eiginfjárstaða Reykja- nesbæjar hefur batnað á þessu kjörtímabili, sem þýðir að eignir hafa vaxið umfram skuldir. Það er algerlega í andstöðu við það sem margir af okkar andstæðingum eru ítrekað að halda fram að það sé búið að selja allar eignir VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 20 IVIKURFRÉTTIR : 15. TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANCUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.