Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 14
lN5kj<rI^éTagaráViðjTiandavmnuliiBiörqifínÍ!
^ RagnheiðuriSif ifylqist með.
UU • www.vf.is • IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VfKURFRÉTTIR í 15.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
Vinna á fordómum
gegn geðröskun
fólks með ýmis geðræn vanda-
mál. Þar getur fólk hitt aðra sem
eru að kljást við svipuð vanda-
mál og deilt. Þannig reynslu
sinni. Það er einnig hópur að-
standenda sem hittist fyrsta
þriðjudag í mánuði og deilir
þannig sinni reynslu. Það eru
allir velkominir að koma og
kynna sér þessa hópa.
Samkvæmt upplýsingum frá Lýð-
heilsustöð eru geðrænir kvillar
afar algengir og eru jafnan um
50.000 íslendingar sem kljást
við einhverskonar geðraskanir.
Ragnheiður segir afar mikilvægt
að þeir sem þjáist af geðröskun
eigi sér samastað til að leita til
þegar þrengir að andlegri líðan.
„Björgin getur reynst vel einstak-
lingum sem líður illa á einhvern
hátt, vantar fastan punkt í til-
veruna eða eru að reyna að ná
tökum á sjálfum sér og lífi sínu.
Þunglyndi getur aukist við ein-
veru og því er félagsskapurinn
sem fólkið veitir hvort öðru í
Björginni svo mikils virði. Oft
og tíðum er Björgin jafnvel eina
ástæðan sem margir hafa íyrir
að fara á fætur á morgnanna."
Engin geðdeild á
Suðurnesjum
Engin geðdeild er hér á Suður-
nesjum sem stendur og þurfa
þeir sem þarfnast geðlækn-
isþjónustu að fara til Reykja-
víkur. Það segir Ragnheiður
ótækt með öllu þar sem viðkom-
andi einstaklingar séu margir
ekki í ástandi til að ferðast þessa
leið. „Hérna á Suðurnesjum eru
jafnmargir sem sækja göngu-
deildar þjónustu til Reykjavíkur
og þeir sem koma á göngudeild-
ina á Akureyri, en þar er geð-
læknisþjónusta. Það er því ljóst
að þörfin er mikil hér á Suður-
nesjum."
Björgin og fleiri svipaðar starfs-
stöðvar geta gegnt lykilhlutverki
í lífi geðfatlaðra og eru líklegar
til að koma í veg fyrir stofnana-
innlagnir sem eru kostnaðar-
samasta úrræðið íþessummála-
flokki.
Ragnheiður segir Björgina
hafa boðið stofnunum upp á
samvinnu um að þeir sem út-
skrifast af geðdeildum komi í
dagþjónustu í Björgina. „Þannig
getur Björgin verið eins konar
brú fyrir geðfatlaða út í lífið
aftur. “ segir Ragnheiður. Kynn-
ingarstarfið hefur gengið vel
eins og sést á gestaaukningu, en
betur má ef duga skal.
Notendasamráð
Ragnheiður segir afar lærdóms-
ríkt að vinna með þeim einstak-
lingum „félöguni' sem sækja at-
hvarfið. Starfsmenn og félagar
í Björginni taka alltaf vel á móti
nýjum gestum og segir Ragn-
heiður að mikið sé lagt upp úr
því að viðkomandi finni að
hann er velkominn og áhersla
lögð á að hann komi aftur. Einn
þáttur í því er að félagar taki
virkan þátt í daglegum störfum
athvarfsins, t.a.m. heimilis-
störfum. „Þau hjálpa okkur líka
við að kynna starfið út á við
og taka þannig vissa ábyrgð á
starfinu. Eitt af okkar aðalmark-
miðum er að vinna á fordómum
í samfélaginu og það gerum við
best með því að starfsemin og
félagar séu sem sýnilegast. Und-
anfarin misseri hefur mér fund-
ist sem vakning hafi orðið í um-
ræðunni. Almenningur virðist
vera meðvitaðri um mikilvægi
þess að hugsa um geðheilsuna,
en það hefur sýnt sig að t.d.
getur mikil streita, álag eða áfall
verið kveikjan að geðrænum erf-
iðleikum."
Starfið í Björginni hefur verið að
eflast undanfarið eins og áður
sagði, en nýlega var hálfu stöðu-
gildi bætt við athvarfið. Ragn-
heiður segir það þó ekki nægja
m.v. þann fjölda sem sækir at-
hvarfið daglega. Framundan er
að ieita eftir stuðningi við Björg-
ina meðal fyrirtækja og stofn-
ana á svæðinu og vonar Ragn-
heiður að þeim verði vel tekið.
Meðal þess sem er á döfinni
hjá Björginni er að opna heima-
síðu athvarfsins, þar sem hægt
verður að nálgast upplýsingar
um starfið og senda inn fyrir-
spurnir um allt sem við kemur
Björginni og geðröskunum.
Listakonan Fríða Rögn-
valdsdóttir hefur opnað
sýningu í listasal Salt-
fiskseturs Islands, að Hafnar-
götu 12a í Grindavík.
Fríða hefur undanfarin ár
unnið myndir í steypu og mun
á sýningunni sýna sínar nýjustu
myndir.
Sýningin verður opin alla daga
til 1. maíkl. 11-18.
Geðfatlaðir og aðrir sem
eiga við geðræn vanda-
mál að stríða eiga oft
í erfiðleikum með að fóta sig í
samfélaginu. Þeim er hættara
við félagslegri einangrun sem
getur leitt til vítahrings. Til
þess að sporna við því er nauð-
synlegt að til séu samfélagsleg
úrræði s.s. dagvist og þjálfun,
liðveisla ofl.
Almennt hugsum við yfirleitt
meira um líkamlega hreysti
en geðræna eða andlega líðan
okkar. Auk þess þykir ekki jafn
sjálfsagt að ræða geðræn áföll,
vandamál og sjúkdóma eins og
líkamlega kvilla.
Geðraskanir hafa löngum verið
feimnismál í opinberri umræðu,
en undanfarin misseri hafa Geð-
hjálp og fleiri aðilar gert átak í
því að lyfta hulunni af þessum
málum. Ein þeirra lausna sem
er í boði fyrir geðfatlaða á Suð-
urnesjum er Björgin, athvarf
sem er staðsett í Sjálfsbjargar-
húsinu við Fitjabraut 6 í Njarð-
vík. Björgin var opnuð í febr-
úar 2005og hefur starfsemin
sífellt verið að eflast á því rúma
ári sem athvarfið hefur verið
starfrækt. Björgin er samstarfs-
verkefni Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra, Sjálfsbjargar á
Suðurnesjum og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar, en Reykjanes-
bær leggur mest til rekstursins.
I Björginni geta þeir sem eiga
við geðraskanir að stríða komið
saman og haft ýmislegt fyrir
stafni. Einstaklingum sem leita
skjóls í Björginni hefur íjölgað
jafnt og þétt undanfarna mán-
uði og eru nú um 20 fastagestir,
eða félagar eins og þau kalla sig.
Að jafnaði koma 14 félagar í
Björgina daglega á þeim tíma
sem opið er frá kl. 10 kl. 16. I
boði er ýmis handavinna, göngu-
ferðir, tónlist, spil, ferðir á kaffi-
hús, listasöfn og fleira auk þess
sem boðið er upp á heitan mat
í hádeginu og bað- og þvotta
aðstöðu. Við skipulag starfsem-
innar er viðhaft „notendasam-
ráð“ og áhersla lögð á að allir
njóti sín. „Það eru margir sem
átta sig ekki á því í hverju geð-
fötlun felst,“ segir Ragnheiður
Sif Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður Bjargarinnar, í samtali
við Víkurfréttir. „I því felast
alls konar geðrænir kvillar, eins
og t.d. átraskanir, þunglyndi,
kvíði, ýmisskonar fælni, geð-
hvörf, geðklofi og fl. Geðrask-
anir hafa ýmis birtingarform og
er mjög mismunandi hvernig
þetta leggst á einstaklinga, en
versta afleiðing geðraskana eru
sjálfsvíg og er það m.a. okkar að
reyna sporna við þeim en það
getum við gert t.d. gert með því
að hafa úrræði úti í samfélaginu
fyrir geðfatlaða, einnig með því
að opna umræðuna um mikil-
vægi geðheilbrigðismála. Margir
halda að þeir þurfi að hafa ein-
hverja greiningu til að koma til
okkar, en svo er að sjálfsögðu
ekki. Við viljum einfaldlega að
fólk viti af okkur og viti að það
getur snúið sér til okkar ef því
líður illa. Þannig má segja að
við séum í eins konar forvarnar-
hlutverki líka.“
Sjálfshjálparhópar
Á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 20 í Björginni hittist hópur
Björgin í Reykjanesbæ: