Víkurfréttir - 12.04.2006, Page 18
STJORNMAL / REYKJANESBÆR
„Ég held að íbúar Reykjanesbæjar þurfi að íhuga
það mjög vel hvort það vilji halda áfram skuld-
setningu bæjarins eða hvort það vilji aukna
þjónustu fyrir fólkið sjálft. Tökum málefni aldr-
aðra sem dæmi. Við viljum leggja á það mikla
áherslu að Reykjanesbær sé fyrir bæjarbúa alla
ævi,“ segir Reynir Valbergsson, bæjarstjóraefni
A-listans í Reykjanesbæ í viðtali við Víkurfréttir
í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga.
VIÐTAL OG MYND: ÞORGILS JÓNSSON
MEÐFYLGJANDIVIÐTAL VIÐ REYNI
VALBERGSSON VAR TEKIÐ SEM
SJÓNVARPSVIÐTAL OG ER BIRT í
HEILD SINNI Á VEF VÍKURFRÉTTA.
SJÓNVARPSVIÐTALIÐ ER UM 14 MÍNÚTUR OG
MÁ NÁLGAST Á VF.IS UNDIR STJÓRNMÁL.
■ Hvernig líst þér á komandi
slag fyrir kosningarnar í vor
m.a. í Ijósi þess að nú eru ein-
ungis tveir listar komnir fram?
Þetta er mikið tækifæri fyrir bæj-
arbúa að hafa hreina valmögu-
leika. Það eru bara A og D, hvort
menn vilja áframhaldandi D lista
eða A lista sem er ferskur og
með áherslur fyrir fólkið. Þannig
að ég er mjög bjartsýnn á vorið.
■ Hvernig gekk að
koma saman framboðs-
lista þar sem tveir flokkar
og óháðir koma að?
Þetta gekk alveg ótrúlega vel
og færri komust að en vildu.
Þegar við vorum að raða saman
listanum var það vandasamt
verk því það voru svo margir
sem vildu vera með, bæði óháöir
og aöilar í báðum þessum
flokkum. Fólk ertilbúið til þess
að vinna og sá tækifæri sem
erfitt er að láta fram hjá sér
fara og þar af leiðandi vorum
við fljót aö fylla öll sætin.
■ Hver verða stærstu
kosningamálin i vor og
hvað er það sem mun ráða
úrslitum að þínu mati?
Það verða atvinnumálin, málefni
aldraðra og aukin þjónusta fyrir
bæjarbúa almennt, þá er ég að
til dæmis að tala um leikskóla og
grunnskóla og að bæta innviði
þjónustunnar. Þetta eru þessi
þrjú meginmál sem við teljum
að verði ofarlega ásamt öðru.
■ Afhverju ætti fólk
frekar að kjósa A list-
ann en D listann?
Við viljum meina að það sem
við höfum fram að færa sé nær
fólkinu sjálfu. Við sjáum hvernig
D listinn hefur meira verið að
hugsa um fegrun bæjarins, sem
er góðra gjalda verð og svo
sem ekki vanþörf á. Það sem
skiptir mestu máli eru bæjarbú-
arnir sjálfir og að það eru ekki
umbúðirnar sem skipta máli
heldur að þér líði vei í bænum
þínum og aö þér líði vel með
þá þjónustu sem þú færð. Þetta
eru aðaláherslurnar. Fólkið á
móti kantsteinunum, ef maður
setur þetta í stutta lýsingu.
■ Hver hafa verið stærstu
málin á þessu kjörtimabili
sem er að líða og hvernig
mun það skila sér inn í
kosningabaráttuna ?
Sala fasteigna bæjarins er nátt-
úrulega stórt mál sem flestir
bæjarbúar eru óánægðir með.
Við gerðum könnun á því og það
kom í Ijós að um 80% bæjarbúa
vilja eignirnar í höndum bæjarins
og það þarf að skoða mjög vel.
Annað mál eru atvinnumálin.
Við þurfum að tryggja atvinnu á
svæðinu. Núverandi meirihluti
gerði það að sínu fyrsta verkefni
að leggja niður markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofuna, en okkar
áherslur í atvinnumálum eru
meðal annars að setja á stofn
nýsköpunarskrifstofu. Við höfum
hugsað okkur að gera það með
því að leggja til verksins þá 2,3
milljaröa sem við ætlum að fá frá
ríkinu eftir að það selur hlut sinn
í Hitaveitunni. Þá spyr maður sig
hver eigi að kaupa hlutinn því við
viljum ekki endilega einkavæða
hana. Við erum með hugmyndir
um að Kópavogur, Hafnarfjöröur
og Garðabær fái tækifæri til þess
að kaupa sig inn í Hitaveituna
og þannig erum við að gera
tvennt. Við erum að fá pening inn
á svæðið og við erum að auka
svæðið sem Hitaveitan verður
með dreifikerfi á. Fyrst um sinn
með raforku og síðar hitaveituna.
Þessa peninga ætlum við þá að
nýta í atvinnuuppbyggingu á
svæðinu. Þar erum við til dæmis
að tala um nýsköpun, við erum
að tala um Heilbrigðisstofn-
unina. Það er nauðsynlegt að
ganga frá seinni skurðstofunni
og vera með sólarhringsvakt á
skurðstofunni. Þegar við erum
komin með sólarhringsvakt á
skurðstofunni aukum við öryggið
á svæðinu til muna. Það þýðir
aukið öryggi í fæðingum og
fleira. Við erum þá einnig í stakk
búin til þess að taka við innan-
landsfluginu því sjúkraflugið
getur verið til Reykjanesbæjar.
■ Munuð þið í A listanum
reyna að ná fasteignum bæj-
arins aftur út úr Fasteign
hf. ibeina eign bæjarins?
Þegar samið var við Fasteign
á sínum tíma var það gert
þannig að hægt væri að kaupa
fasteignirnar til baka á fimm
ára millibili og nú eru um tvö ár
í það að við getum keypt þær
aftur. Við erum búin að reikna
þessa hluti út og munum skoða
það mjög vel hvort ekki sé rétt
að eiga fasteignirnar sjálf.
■ Nú hafið þið gagn-
rýnt fjármál bæjarins og
rekstur, hvaða breytingar
viljið þið sjá þar á?
Ég ætla ekki að upplýsa það
hér og nú en við erum með hug-
myndir um mikinn sparnað. Bær-
inn greiðir um og yfir 500 millj-
ónir í leigu á ári og það er hægt
að verja þeim peningum í annað.
Til þess að kaupa fasteignir til
baka þyrfti að taka lán og það
þarf að borga af þeim lánum.
Hvernig við stillum því upp mun
koma í Ijós, en við erum með
fastmótaðar tillögur um hvað við
ætlum að gera og þær munum
við birta á komandi vikum.
■ Eruð þið i A listanum
fylgjandi stóriðjufram-
kvæmdum í Helguvík?
Við viljum að svona stórar
ákvarðanir séu teknar af fólkinu
í sveitarfélaginu og lýðræðið
fái að njóta sín. Við viljum að
þessum „ÉG stjórnmálum" sé
VÍKURFRÉTTIR I 15.TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!