Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 25
Hrefna og Valtýr
sigruðu á Glitnismóti
Hrefna Ómarsdóttir og
Valtýr Sæmundsson
sigruðu á Glitnismót-
inu í pútti sem fram fór s.l.
fimmtudag. Að mótinu loknu
fór aðalfundur PS fram. Alls
mættu 40 eldri borgarar til
leiks og voru sigurvegararnir
eftirfarandi:
Konur:
1. sæti: Hrefna Ólafsdóttir 66
2. sæti: María Einarsdóttir 66
3. sæti: Ása Lúðvíksdóttir 67
Hrefna vann Maríu í bráðabana.
Flest bingó höfðu þær Áslaug
Ólafsdóttir og Hrefna Ólafs-
dóttir þær voru báðar með 9
bingó, en Áslaug vann í bráða-
bana.
Karlar:
Þrír voru jafnir með 65 högg og
eftir bráðabana, urðu úrslit sem
hér segir:
1. sæti: Valtýr Sæmundsson 65
2. sæti: Hákon Þorvaldsson 65
3. sæti: Gústaf Ólafsson 65
Flest bingó höfðu þeir Ingi
Gunnarsson og Jóhann Alexand-
ersson, eða 11 bingó. Jóhann
vann í bráðabana.
Soffía, fulltrúi GLITNIS, hélt
tölu og afhenti verðlaun. Næsta
mót er þann 18. apríl, á þriðju-
degi, og hefst það kl. 13.
Mæta Norður-írum
í Inter-Toto
*
mánudag var dregið í
InterToto-keppninni í
knattspyrnu en eins og
flestir vita taka Keflvíkingar
þátt í keppninni í sumar. Enn
er ekki orðið endanlega ljóst
hvaða lið leika í keppninni
enda lýkur flestum deildum í
Evrópu ekki fyrr en í vor.
í drættinum var löndunum
því raðað saman. Alls taka 49
lið þátt í keppninni og leika í
þremur umferðum. Leikið er
heima og heiman í hverri um-
ferð. I 1. umferðinni lenda
Keflvíkingar á móti liði frá
Norður-lrlandi. Miðað við
stöðuna í deildinni þar eru það
Dungannon, Cliftonville og Ball-
ymena sem berjast um það sæti.
Fyrri leikirnir í 1. umferð verða
17.-18. júní en þeir síðari 24.-
25. júní. Komist Keflavík áfram
í 2. umferð verða andstæðingar
okkar norska liðið Lilleström.
Næsta skref þar á eftir er síðan
3. umferðin og þá tekur við lið
frá Englandi. Eins og stendur
er það Bolton sem situr í Inter-
Toto-sæti þar í landi en það er
aldrei að vita nema stórlið eins
og Arsenal endi í keppninni.
Komnir heim úr æfingaferð
Knattspyrnulið Kefla-
víkur kom aftur til
fslands á laugardag
eftir vikudvöl á Spáni þar sem
Iiðið var í æfingaferð. Kefla-
vík lék þrjá leiki ytra, sigraði í
tveimur viðureignum og gerði
eitt jafntefli.
f fyrsta leiknum lagði Kefla-
vík spænska liðið Recreativo
Huelva 2-1 þar sem Símun
Samuelsen og Danny Severino
gerðu mörkin. Öðrum leik Kefl-
víkinga lauk með jafntefli gegn
Aymonte frá Spáni, 1-1, Guð-
mundur Steinarsson, fyrirliði
Keflvíkinga, gerði markið úr víta-
spyrnu. í þriðja leiknum mættu
Keflvíkingar Breiðablik en
Blikar leika í Landsbankadeild-
inni í sumar eftir að hafa unnið
1. deildina. Leik Keflavíkur og
Blika lauk með 4-2 sigri Kefla-
víkur og gerðu þeir Guðmundur
Steinarsson og Símun Samu-
elsen tvö mörk hvor. „Æfinga-
ferðin lukkaðist vel og var vel
skipulögð,'1 sagði Guðmundur
Steinarsson í samtali við Víkur-
fréttir. „Leikformið er fínt hjá
okkur og við erum komnir með
nokkuð endanlega hóp fyrir
átökin í sumar. Við vorum að
leita að leikmönnum sem féllu
vel að okkar leik og það var lyk-
ilatriði hjá okkur að stoppa í
götin í vörninni og það hefur
tekist vel í þeim leikjum sem
við höfum verið að spila,“ sagði
Guðmundur. Fyrsti Ieikur Kefl-
víkinga í Landsbankadeildinni
er sunnudaginn 14. maí n.k., á
mæðradag, gegn fBV og fer leik-
urinn fram í Vestmannaeyjum.
„Það eru nokkrir mömmu-
strákar í hópntim hjá okkur
og við stefnum á sigur í fyrsta
leik í tilefni dagsins," sagði Guð-
mundur léttur í bragði. Keflavík
mætir Víkingi Reykjavík í næst
síðasta leik sínum í deildarbik-
arnum í kvöld kl. 20:00 og með
sigri tryggja þeir sig inn í undan-
úrslit deildarbikarsins.
ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU ! BOÐI LANDSBANKANS
íslandsmeistarar
Grindvíkingar urðu fs-
Iandsmeistarar í minni-
bolta stúlkna fyrir
tveimur vikum eftir að hafa
unnið góðan sigur á Hamri/
Selfoss á heimavelli þeirra síð-
arnefndu.
Grindvíkingar eru vel að
þessum titli komnar enda eru
stúlknalið þeirra flest í allra
fremstu röð. Keflavík hafnaði
í þriðja sæti á mótinu. Með
Grindavíkurstelpum á myndinni
er Ellert Magnússon, þjálfari
liðsins.
Neðstirí
riðlinum
Reynir Sandgerði
hefur ekki átt góðu
gengi að fagna að
undanförnu í deildarbik-
arnum í knattspyrnu.
Liðið situr á botni 1. riðils
í B deildinni með markatöl-
una 2:15. Sandgerðingar
steinlágu í Reykjaneshöll 1-4
gegn Leikni frá Reykjavík.
Þá eru Víðismenn í 4. sæti
riðilsins með einn sigur, jafn-
tefli og tap. „Derby“ slagur
Reynis og Víðís í deildarbik-
arnum fer fram á Garðskaga-
velli þann 24. apríl n.k.
Laugardagur 15. apríl
Iceland Express deilk karla
Njarðvík - Skallagrímur
Kl. 16:00
Leikur 3
Jafnt í einvíginu
Staðan er jöfn í úrslita-
einvígi Iceland Express
deildar karla í körfuknatt-
leik. Njarðvík og Skallagrímur
hafa hvort um sig unnið einn
leik á heimavelli.
Það voru vígmóðir Borgnes-
ingar sem mættu í Ljónagryfj-
una síðasta laugardag en
fimmtudaginn þar á undan
höfðu þeir slegið út fslands-
meistara Keflavíkur í oddaleik.
Skallagrímsmenn hófu leikinn
af krafti en barningur síðustu
daga sagði til sín og Njarðvík-
ingar fóru með öruggan sigur af
hólmi 89-70. Brenton Birming-
ham var drjúgur í Njarðvíkur-
liðinu í fyrsta leik og gerði 14
stig en eriendu leikmenn Borg-
nesinga máttu muna sinn fífil
fegurri. Axel Kárason dró vagn-
inn í sókn Borgnesinga og gerði
16 stig. Liðin mættust svo öðru
sinni í Borgarnesi á mánudag
og þá höfðu heimamenn betur
í Fjósinu 87-77 og voru með for-
ystu í leiknum allan tímann. Jeb
Ivey gerði 25 stig í leiknum fyrir
Njarðvík en Jovan Zdravevski
gerði24hjáSkallagrím. Borgnes-
ingar hafa ekki enn tapað heima-
leik í úrslitakeppninni en það
hafa Njarðvíkingar ekki heldur
gert. Liðin mætast í þriðja úr-
slitaleiknum laugardaginn 15.
apríl kl. 16:00 í Ljónagryfjunni
og er óhætt að gera ráð fyrir hús-
fylli þar sem uppselt var í Fjósið
á öðrum leik liðanna í Borgar-
nesi.
VÍKURIRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍDUR 25