Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 8
hafnarfjörður „Nýlegir atburðir
sýna okkur bara að Ísland er ekki
jafn saklaust og margir halda fram,“
segir ungmennaráð Hafnarfjarðar
sem leggur til að sjálfsvörn verði
hluti af íþróttakennslu bæjarins.
„Íslendingar þurfa að fara að átta
sig á því að allt getur gerst á okkar
litla landi og við getum gert eitthvað
í því. Að kenna sjálfsvörn myndi
einnig auka öryggi og minnka
hræðslu við að labba um götur
landsins,“ segir í tillögunni sem
bæjarráð vísaði einróma til nánari
umfjöllunar í fræðsluráði Hafnar-
fjarðar.
Í tillögunni segir að allir hafi gott
af því að kunna grunn í sjálfsvörn
til að koma í veg fyrir ákveðnar
aðstæður. Íþróttakennsla sé afar
einhæf og að allir eigi að finna eitt-
hvað við sitt hæfi í íþróttum.
„Margir eru á móti því að kenna
sjálfsvörn og segja að þetta muni
auka ofbeldi en ég held því fram
að það hafi einmitt öfug áhrif,
ungmenni munu þá geta varið sig
gagnvart ofbeldi,“ segir höfundur
tillögunnar. „Ekki er ég að tala um
að kenna mjög hættulega hluti
en grunnurinn er nauðsynlegur.
Íþróttir kenna þér að kasta bolta
og hlaupa þar til þú missir andann
og krefst ég þess að kennt verði
eitthvað sem er gagnlegt og gæti
bjargað mannslífi.“
Ungmennaráðið hefur áhuga
á forvörnum almennt og nefnir
hugleiðingar um fría smokka eða
smokka sjálfsala á almennings-
salernum. „Þar sem ungmenni eru
líklegri til að nota smokka ef hægt
er að kaupa þá án auglits ann-
arra og mikillar fyrirhafnar,“ segir
ráðið sem kveður forvarnafræðslu
mismikla eftir skólum. „Í sumum
skólum er lítil sem engin fræðsla um
ákveðin málefni svo sem fíkniefni,
kynlíf, kvíða og þunglyndi.“ – gar
Krakkarnir læri sjálfsvörn
Íslendingar þurfa að
fara að átta sig á því
að allt getur gerst á okkar
litla landi og við getum gert
eitthvað í því.
Ungmennaráð Hafnarfjarðar
Ég náttúrlega í
bjartsýniskasti leit
bara svo á að fiskur sé bara
fiskur og flakaði dýrið og
skellti honum í
frystinn.
Kolbrún Sveins-
dóttir á Norður-
Reykjum
Að kenna sjálfsvörn myndi minnka hræðslu við að labba um götur, í ljósi
nýlegra atburða, segir ungmennaráð Hafnarfjarðar. FréttAblAðið/SteFán
Vetrarfatnaður
fyrir börnin
Keilir snjóbuxur
Verð 8.990.-
Keilir snjógalli. Verð 14.990.-
Keilir vetrarúlpa
Verð 11.990.-
Icewear Keilir 3x20 fbl.pdf 2 30.8.2017 10:06
náttúra „Þetta er í fyrsta og von-
andi eina skipti sem ég fæ hnúðlax.
Ég veit ekki til þess að hann hafi
veiðst í Hvítánni fyrr,“ segir Kolbrún
Sveinsdóttir á Norður-Reykjum í
Borgarfirði, sem á dögunum fékk
ófrýnilegan hnúðlax í net fyrir landi
sínu.
Kolbrún, sem búið hefur á Norð-
ur-Reykjum í yfir þrjá áratugi og er
fædd og uppalin í nágrenninu, segist
lengi hafa stundað lítilsháttar neta-
veiði á laxi og silungi seinnipart
sumars. Bærinn er langt inni í landi,
aðeins þrettán kílómetrum neðan
við náttúruperlurnar Hraunfossa og
Barnafoss og ekki langt frá Húsafelli.
Það er því ljóst að hnúðlaxinn sækir
nú djúpt í vatnakerfi Borgarfjarðar
þar sem ekki er fiskgengt upp fyrir
fossana.
„Ég náttúrlega í bjartsýniskasti
leit bara svo á að fiskur sé bara fiskur
og flakaði dýrið og skellti honum í
frystinn. Svo fór ég nú að átta mig á
að líklega ætti ég að tilkynna svona
veiði og gerði það en var þá búin
að henda dálknum og hausnum,“
segir Kolbrún sem gerði Sigurði Má
Einars syni, fiskifræðingi hjá Veiði-
málastofnun, viðvart um kvikindið
og sendi honum flökin til rann-
sóknar. „Hann er víst óætur hvort
sem er.“
Sigurður Már segir óvenju mikið
hafa verið um hnúðlax í íslenskum
ám í sumar, tilkynnt hafi verið um
allt að sjötíu slíka fiska um allt
land. Hnúðlaxinn, sem er Kyrra-
hafstegund, eigi rætur að rekja til
sleppinga við Kólaskaga í Rússlandi
á sjöunda áratugnum þar sem hefja
átti hafbeit. Eftir það hafi borið á
flækingum.
„Það er að koma óvenju mikið í
Evrópu núna og greinilega óvana-
leg góð skilyrði fyrir þá, hvort sem
það er vegna hlýnunar í hafinu eða
einhvers annars,“ segir Sigurður Már
sem aðspurður hvort hnúðlax gæti
hrygnt hérlendis kveður vera stað-
fest að hnúðlax hafi hrygnt í ám á
Kólaskaga og í Noregi. „Það er ekk-
ert óhugsandi að þetta hafi verið að
gerast á Íslandi en það er ekki stað-
fest. Við erum að spá í hvort það geti
verið.“
Sigurður Már segir að ef hnúðlax
myndi hrygna í íslenskar ár yrðu
áhrifin á laxastofna ekki mikil en
kannski meiri á bleikjuna. „Þetta er
fiskur sem hrygnir gjarnan neðar-
lega í vatnakerfum og seiðin fara út
næsta vor og lenda því ekki mikið í
samkeppni við laxaseiði. En það er
kannski meiri samkeppni við urriða
og bleikju neðarlega í kerfunum.“
Að sögn Sigurðar Más er lítið
hægt að gera til að sporna við því
að hnúðlax nái fótfestu. „Ég held að
það sé mjög erfitt. Hnúðlaxinn er
svolítið sérstakur. Hann hefur bara
eins árs lífsferil í hafinu og eitt ár í
ferskvatninu þannig að það mynd-
ast stofnar af honum sitthvort árið
sem hittast aldrei.“
gar@frettabladid.is
Kyrrahafsfiskurinn hnúðlax í
stórsókn og nálgast Barnafoss
Fiskifræðingur segir ekki óhugsandi að Kyrrahafstegundin hnúðlax hrygni í íslenskum ám. Óvenju mikið
hefur verið um laxinn víða um land í sumar. Kolbrún Sveinsdóttir á Norður-Reykjum veiddi á dögunum
slíkan fisk mjög ofarlega í Hvítá í Borgarfirði. „Ég veit ekki til þess að hann hafi veiðst í Hvítánni fyrr.“
Hnúðlaxinn á eldhúsvaskinum á norður-reykjum áður en húsfreyjan flakaði
hann, afhausaði og skellti laxinum svo í frystinn. Mynd/Kolbrún SveinSdóttir
DÓMSMáL Hæstiréttur staðfesti á
mánudag niðurstöðu héraðsdóms
sem vísaði frá fyrr í sumar kröfu
fasteignafélagsins Gamma ehf. um
að fjármálafyrirtækinu Gamma
Capital Mangement yrði bannað
að nota heitið GAMMA í fasteigna-
viðskiptum. Var það niðurstaða
dómsins að Gamma ehf. hefði ekki
lögvarða hagsmuni af því að fá
úrlausn um kröfuna.
Fasteignafélagið krafðist þess að
Gamma Capital Management yrði
meinað að nota heitið GAMMA í
atvinnustarfsemi sinni þegar kæmi
að umsjón með íbúðarhúsnæði,
leigu þess og öðrum fasteignavið-
skiptum.
Héraðsdómur taldi ekki sannað
að Gamma Capital Management
hefði notað vörumerkið til slíkra
viðskipta. Kom meðal annars fram í
dómnum að krafa Gamma ehf. hefði
ekki verið rökstudd með því að hitt
félagið hefði notað heitið í atvinnu-
starfsemi eða hygðist gera það.
Gamma Capital Management
á og rekur Almenna leigufélagið,
annað stærsta leigufélag landsins
á almennum markaði, en Gamma
ehf. á og leigir út fasteignir í miðbæ
Reykjavíkur. – kij
Kröfu Gamma
ehf. vísað frá í
Hæstarétti
valdimar ár-
mann, forstjóri
Gamma Capital
Management
1 . S e p t e M b e r 2 0 1 7 f ö S t u D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-7
0
1
C
1
D
A
3
-6
E
E
0
1
D
A
3
-6
D
A
4
1
D
A
3
-6
C
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K