Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 12
Bandaríkin Tíu voru lagðir inn á
spítala í borginni Houston í Texas í
gær eftir að hafa verið í nágrenni við
Arkema-efnaverksmiðjuna sem spýr
nú eitruðum reyk eftir að hafa orðið
fyrir barðinu á hitabeltisstorminum
Harvey. Brock Long, yfirmaður ham-
farastofnunarinnar FEMA, sagði í gær
að útblásturinn væri „ótrúlega hættu-
legur“.
Um miðjan dag í gær hóf verk-
smiðjan að spýja frá sér umræddum
útblæstri en fyrr um daginn urðu
nærstaddir varir við sprengingu í
verksmiðjunni. Lögreglustjórinn Ed
Gonzales sagði í viðtali við fjölmiðla
í gær að útblásturinn væri þó ekki
talinn tengjast umræddri sprengingu.
Yfirvöld rýmdu íbúðarhús í 2,4
kílómetra radíus frá verksmiðjunni
en Arkema varaði við því að hætta
væri á eldsvoða og sprengingum
snemma í gær.
Bilanir í verksmiðjunni má rekja
til hins gífurlega mikla regnvatns sem
féll á Houston þegar stormurinn gekk
yfir. Bilaði þá kælibúnaður í verk-
smiðjunni sem leiddi til fyrrnefnds
útblásturs og sprenginga. Starfsemi
verksmiðjunnar hafði þó verið stöðv-
uð áður en stormurinn skall á.
Um 102 sentimetrar regnvatns
féllu á svæðið og flæddi einnig inn á
rafala verksmiðjunnar.
Arkema-verksmiðjan framleiðir
meðal annars efni sem notuð eru
til lyfjagerðar og getur hluti þeirra
orðið einkar hættulegur við hátt
hitastig.
„Vatnsmagnið á svæðinu og skort-
ur á rafmagni verður þess valdandi
að við getum ekki komið í veg fyrir
eldsvoða,“ sagði framkvæmdastjór-
inn Richard Rowe í gær.
Á blaðamannafundi í Washing-
ton í gær sagði Brock Long að það
væri ekki víst hvort eða hvenær
starfsmenn FEMA gætu skoðað
verksmiðjuna til að meta umfang
útblástursins og hættuna sem stafar
af honum.
„Við viljum meta hvert reykurinn
mun stefna og svo byggja rýming-
aráætlanir okkar á því. Við værum
ekki að gera það ef útblásturinn
væri ekki ótrúlega hættulegur,“
sagði Long.
Arkema sendi einnig frá sér yfir-
lýsingu í gær. „Við viljum að íbúar
séu meðvitaðir um að vörur okkar
eru geymdar á nokkrum stöðum á
svæðinu og því er hætta á frekari
sprengingum. Vinsamlegast snúið
ekki aftur á hið rýmda svæði fyrr en
yfirvöld segja að það sé óhætt.“
Harvey stefnir nú frá Louisiana
og í átt að Kentucky en tala látinna
í Texas hélt áfram að hækka í gær.
Storminn hefur lægt verulega og
flokkast hann í núverandi mynd
sem hitabeltislægð, ekki hitabeltis-
stormur eða fellibylur. Texas-ríki
varð verst úti en í gær var talið að
33 hið minnsta hefðu látið lífið í
hamförunum. thorgnyr@frettabladid.is
Efnaverksmiðja spýr eitri eftir Harvey
Regnvatn olli bilunum í efnaverksmiðju í Houston. Yfirmaður hamfaravarna segir útblástur frá verksmiðjunni afar hættulegan. Spreng
ingar heyrðust í nágrenni verksmiðjunnar í gær. Tala látinna heldur áfram að hækka í Texas. Stormurinn stefnir nú í norðausturátt.
írak Tekist hefur að hrekja liðs-
menn hryðjuverkasamtakanna sem
kenna sig við íslamskt ríki frá íraska
héraðinu Níníve. Þetta fullyrti
Haider al-Abadi, forsætisráðherra
Íraks, í gær eftir að íraska hernum
tókst að endurheimta Tal Afar-borg
og bæinn Ayadiya, en þangað höfðu
ISIS-liðar flúið frá Tal Afar.
„Við erum mjög hamingjusöm.
Sigurinn ber að dyrum og Níníve-
hérað er algjörlega í okkar hönd-
um,“ segir í yfirlýsingu sem forsætis-
ráðherrann sendi frá sér í gær.
Íslamska ríkið sölsaði undir sig
stóra hluta Níníve árið 2014. Þar á
meðal héraðshöfuðborgina Mósúl.
Þaðan voru hryðjuverkamenn
hraktir fyrr á árinu.
Íraski herinn tók Tal Afar á sunnu-
dag og flúðu ISIS-liðar þá til Ayad-
iya eins og áður segir. BBC greinir
frá því að orrustan um Ayadiya hafi
verið stutt en einkar harðskeytt.
Lýsti Kareem al-Lami ofursti því í
samtali við BBC að það hafi verið
líkt og að opna dyr helvítis þegar
fyrst var ráðist inn í Ayadiya.
En þrátt fyrir að tekist hafi að
vinna sigur á ISIS á svæðinu lýsti
hernaðarbandalagið gegn ISIS því
yfir í gær að hættuleg vinna væri
fram undan. „Það verður hættulegt
starf að fjarlægja sprengjur, bera
kennsl á ISIS-liða sem eru í felum
og uppræta sellur þeirra á svæðinu,“
sagði í yfirlýsingu bandalagsins í
gær. – þea
ISIS-liðar hraktir frá Níníve-héraði
Bretland Enginn markverður
árangur hefur náðst í lykilatriðum
í samningaviðræðum Bretlands og
Evrópusambandsins um útgöngu
Breta úr sambandinu. Frá þessu
greindi Michel Barnier, sem fer fyrir
samninganefnd ESB, í gær. Sagði
hann að enn bæri mikið í milli og
ekki væri hægt að hefja viðræður
um væntanlega fríverslunarsamn-
inga í bráð.
David Davis, Brexitmálaráðherra
Bretlands, hvatti Evrópusambandið
í gær til þess að vera sveigjanlegra í
nálgun sinni á viðræðurnar. Sagði
hann að að sínu mati hefði einhver
árangur náðst í þriðju lotu samn-
ingaviðræðna sem fóru fram í Bruss-
el nýverið.
Davis og Barnier héldu sameigin-
legan blaðamannafund í gær og þótt
málflutningur Barniers hafi þótt
neikvæður sagði hann að einhver
árangur hefði þó náðst í viðræðum
um samband Írlands og Norður-
Írlands.
Barnier sagðist orðinn óþolin-
móður. „Ég er ekki reiður, ég er
óþolinmóður og ég er staðráðinn í
að ná einhverjum árangri í þessum
viðræðum,“ sagði hann.
„Í júlí viðurkenndi Bretland að
ríkið þyrfti að virða skuldbindingar
sínar eftir útgöngu en nú hefur Bret-
land útskýrt þá afstöðu sína að þær
skuldbindingar hverfi með síðustu
greiðslu til Evrópusambandsins
fyrir útgöngu,“ sagði hann enn
fremur. – þea
Brexit-viðræður ganga illa
Flóðvatn heldur áfram að hrylla íbúa Houston-borgar í Texas í Bandaríkjunum en stormurinn Harvey stefnir nú í áttina frá Louisiana og Kentucky. NordicpHoTos/AFp
Bardagar hafa geisað víðs vegar um Níníve-hérað. NordicpHoTos/AFp
Ég er ekki reiður, ég
er óþolinmóður og
ég er staðráðinn í að ná
einhverjum árangri í þessum
viðræðum.
Michel Barnier, formaður
samninganefndar ESB
Vatnsmagnið á
svæðinu og skortur
á rafmagni verður þess
valdandi að við getum ekki
komið í veg fyrir eldsvoða.
Richard Rowe,
framkvæmdastjóri Arkema
1 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 F Ö s t U d a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-5
7
6
C
1
D
A
3
-5
6
3
0
1
D
A
3
-5
4
F
4
1
D
A
3
-5
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K