Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Áhyggjur af einkarekstri í heilbrigðiskerfinu snúast mest um mögulegan ójöfnuð gagnvart sjúkling-um. Eitt af grunngildum íslensks heilbrigðiskerfis
er jafnt aðgengi að bestu þjónustu sem völ er á. Um þetta
erum við Katrín Jakobsdóttir sammála.
Nýr liður í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands gagnvart
aðgerðum hjá konum sem greinast með BRCA-genið
er í samræmi við þessi gildi. Hér eru einmitt hagsmunir
sjúklinga í fyrirrúmi. Breytingin er í framhaldi af úrskurði
Úrskurðarnefndar velferðarmála.
Þessi viðbót við gjaldskrá boðar ekki niðurskurð á fjár-
framlögum til annarrar heilbrigðisþjónustu. Slíkar ásak-
anir eru í besta falli tilraunir til að slá pólitískar keilur.
Framlög til heilbrigðiskerfisins hafa aldrei verið hærri,
tugum milljarða hærri en þegar Katrín sat í ríkisstjórn.
Ég skal hins vegar fyrstur samsinna því að við þurfum að
gera enn betur á næstu árum.
Það er ekkert nýtt að hægt sé að leita til lækna utan
Landspítalans en innan ramma sjúkratrygginga, innan
ramma jöfnuðar. Það felst því engin kerfisbreyting í þess-
ari viðbót við gjaldskrá heldur kemur það þvert á móti
fyrst og fremst sjúklingum til góða.
Öðrum spurningum Katrínar er auðsvarað. Í fjármála-
áætlun er gert ráð fyrir að auka enn framlög til heilbrigð-
isþjónustu á næstu árum. Strax á næsta ári hefst bygging
meðferðarkjarna Nýja Landspítalans. Það verður mesta
framfaraskref í íslenskri heilbrigðisþjónustu um margra
áratuga skeið. Nýtt sjúkrahótel við Landspítalann tekur
til starfa á næsta ári og gjörbreytir aðstöðu fyrir sjúklinga
og aðstandendur, sér í lagi utan af landi. Markmið heil-
brigðiskerfisins verður áfram að veita bestu þjónustu
sem völ er á með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.
Það eru mér töluverð vonbrigði að sjá formann
Vinstri-grænna snúa viðkvæmum og mikilvægum
heilsufarsmálum upp í pólitískt keiluspil. Slíkir skot-
grafaleikir stjórnmálanna sem draga athyglina frá kjarna
máls eru einmitt eitt af því sem við í Bjartri framtíð
höfum mikið gagnrýnt. Hættum því. Tölum saman.
Hagsmunir sjúklinga
eiga að ganga fyrir
Markmið
heilbrigðis-
kerfisins
verður áfram
að veita bestu
þjónustu sem
völ er á með
hagsmuni
sjúklinga að
leiðarljósi.
Með öðrum
orðum hefur
launafólk
tekið út
kaupmáttar-
aukningu
heils ára-
tugar, sé
tekið mið af
sögulegu
meðaltali, á
aðeins
tveimur
árum.
Óttarr Proppé
heilbrigðis
ráðherra og for
maður Bjartrar
framtíðar
Gamalkunnugt stef er hafið. Fram undan er umfangsmikil samningalota á vinnu-markaði, ekki hvað síst hjá opinberum starfsmönnum, þar sem 37 kjarasamningar eru lausir í haust. Útlit er fyrir að þar ætli hið opinbera – í enn eitt skiptið – að leiða
launaþróun í landinu. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á
Norðurlöndum. Afleiðingarnar eru fyrirsjáanlegar. Verka-
lýðsfélög á almenna markaðinum munu taka mið af þeim
samningum sem opinberir kjarahópar munu ná og fara
fram á sömu launahækkanir í ársbyrjun 2018.
Niðurstaða komandi kjaralotu mun því hafa afgerandi
áhrif á þróun efnahagsmála og hvort það takist að festa í
sessi þann stöðugleika – og kaupmátt – sem náðst hefur.
Þrátt fyrir mikinn hagvöxt og lítið atvinnuleysi hefur verð-
bólga mælst undir markmiði Seðlabankans í 42 mánuði.
Það hefur gefið bankanum færi á að lækka vexti þótt
bankinn hafi ekki gengið jafn langt og tilefni er til. Efna-
hagsaðstæður nú um stundir, sem grundvallast einkum á
miklum viðskiptaafgangi og þjóðhagslegum sparnaði, eru á
flesta mælikvarða einstakar í hagsögunni.
Það þýðir samt ekki að það séu engar blikur á lofti. Nán-
ast linnulaus gengisstyrking síðustu misseri og ár og þær
miklu launahækkanir sem um var samið 2015 eru farnar að
ógna samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Þannig hefur
launakostnaður fyrirtækja hækkað um fjörutíu prósent
meira en í helstu samkeppnisríkjum Íslands, mælt í sömu
mynt, á undanförnum tveimur árum. Í fyrra var hlutfall
launa á Íslandi af landsframleiðslu það hæsta á Norður-
löndum, eða 62,4 prósent. Seðlabankinn hefur sagt að geta
innlendra fyrirtækja til að taka á sig frekari kostnaðar-
hækkanir gæti verið „komin að endamörkum“.
Frekari hækkun á raungenginu getur því ekki staðist til
lengdar líkt og Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, útskýrði
í samtali við Markaðinn í vikunni. „Við getum auðvitað
ekki hækkað laun meira og hraðar en aðrar þjóðir. Við
getum ekki upp á eigið sjálfdæmi ákvarðað laun á þessari
eyju. Þau ráðast af samkeppnisstöðunni. Það er undarlegt
að í umræðum um kjaramál hér á landi er eiginlega aldrei
minnst á framleiðni eða samkeppnisstöðu okkar. Það
mætti halda að launin væru ótengd verðmætasköpun,“
sagði Ásgeir. Öllum mega vera ljós þessi sannindi. Það veit
einnig Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, enda þótt hann
kjósi nú að segja það vera stefnu sambandsins að taka ekki
mið af stöðu hagkerfisins í komandi kröfugerð heldur að
krefjast sömu launahækkana og kjararáð ákvarðaði fyrr
á árinu. Vonandi verður ekkert af þeim hótunum ASÍ. Að
ætla að endurtaka þá aðferðafræði að hækka laun langt
umfram framleiðniaukningu er fullreynt.
Kaupmáttur launa hefur aukist yfir 15 prósent frá 2015.
Launafólk hefur því tekið út kaupmáttaraukningu heils ára-
tugar, sé tekið mið af sögulegu meðaltali, á tveimur árum.
Þær miklu launahækkanir sem um var í samið í síðustu
kjarasamningum hleyptu ekki verðbólgunni af stað eins
og margir óttuðust. Óvenjulegar aðstæður í efnahagslífinu
réðu þar hvað mestu um, einkum mikil gengisstyrking og
lágt hrávöruverð á alþjóðamörkuðum. Sá leikur verður ekki
endurtekinn. Fjármálaráðherra hefur sagt að það sé stærsta
verkefni ríkisstjórnarinnar að varðveita þann mikla kaup-
mátt sem hefur áunnist á undanförnum árum. Hann hefur
auðvitað rétt fyrir sér.
Stærsta málið
Kosið um varaformanninn
Tveir hafa gefið kost á sér í
embætti varaformanns VG,
eftir að Björn Valur Gíslason
tilkynnti á dögunum að hann
hygðist ekki gefa kost á sér
í embættið á næsta lands-
fundi sem fram fer í október.
Edward H. Huijbens, prófessor
við Háskólann á Akureyri,
reið á vaðið og Óli Halldórs-
son fylgdi síðan á eftir í gær.
Ef ekki bætist í hópinn er allt
útlit fyrir að næsti varafor-
maður VG verði talsvert dann-
aðri og orðvarari en forveri
þeirra, sem þekktur er fyrir
að láta gamminn geisa svo
flestum þykir nóg um.
Pólitísk afskipti
Barnaverndarstofa hefur
ákveðið að meðferðarheimil-
inu Háholti í Skagafirði skuli
lokað. Eðlilega er heimamönn-
um ekki skemmt enda um
atvinnumál fyrir þá að ræða.
Auðvitað hlaut því að finnast
þingmaður sem sá ástæðu til
að boða velferðarráðherra til
fundar um málið í velferðar-
nefnd. Það væri þó ákjósan-
legast ef stjórnmálamenn létu
fagmenn á Barnaverndarstofu
um stefnumótun og daglega
stjórnun þeirra stofnana sem
undir stofnunina heyra. Það er
ekki endilega til góðs að þing-
menn setji kámuga fingur sína
á öll þau mál sem þeim mögu-
lega dettur í hug.
jonhakon@frettabladid.is
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-3
E
B
C
1
D
A
3
-3
D
8
0
1
D
A
3
-3
C
4
4
1
D
A
3
-3
B
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K