Fréttablaðið - 01.09.2017, Page 22
Körfubolti Íslenska körfubolta-
landsliðið byrjaði ekki annað Euro-
basket-ævintýri sitt vel í Helsinki í
gær. 29 stiga tap á móti sterku grísku
liði, 61-90, var uppskeran en léleg
hittni flesta skyttna liðsins og alltof
ódýrir tapaðir boltar stærstan hluta
leiksins buðu hættunni heim.
Frábær annar leikhluti, sem
íslenska liðið vann með tólf stigum
(23-11) sýndi hins vegar hvað strák-
arnir geta gert þegar þeir ná sínum
takti. Vörnin á hálfum velli gekk líka
vel lengstum en Grikkir smjöttuðu
á mistökum strákanna sem sést vel
á því að þeir skoruðu 22 hraðaupp-
hlaupsstig gegn 2 í leiknum og voru
alls með 31 stig í kjölfarið á töpuðum
boltum íslenska liðsins.
Martin Hermannsson hefur verið
aðalmaðurinn í sóknarleik liðsins í
lokaundirbúningnum ekki síst vegna
fjarveru Jóns Arnórs Stefánssonar
og Hauks Helga Pálssonar vegna
meiðsla. Sú staðreynd fór ekkert
fram hjá Grikkjunum sem gerðu
Martin lífið leitt allan leikinn.
Að hika er sama og tapa og það átti
vel við í gær. Haukur Helgi Pálsson
var sá eini sem lét vaða og skilaði
hann 21 stigi í leiknum. Það var ekki
eins og hann hafi verið sjóðandi
heitur heldur miklu frekar að hann
keyrði á Grikkina og lét þá hafa virki-
lega fyrir sér. Haukur fékk meðal
annars tíu víti sem hann nýtti öll.
„Haukur var sá eini af okkur sem
spilaði á pari. Það eru margir í liðinu
sem eiga mikið inni og þá sérstaklega
ég. Ég er hundsvekktur út í sjálfan
mig og er staðráðinn í að koma tvö
hundruð prósent til baka á laugar-
daginn,“ sagði Martin eftir leik.
„Þeir vissu alveg hvað þeir ætl-
uðu að gera og ég fann það strax
í byrjun þegar þeir voru byrjaðir
að gefa olnboga og voru ekkert að
hjálpa mér. Þeir gerðu vel og ég gef
þeim kredit fyrir það. Ég þarf að
vera klókari og ég hef nægan tíma
til að hugsa um það fyrir laugar-
daginn,“ sagði Martin. Hann fékk
nú að kynnast því sem Jón Arnór
Stefánsson hefur oft lent í. Grikkir
voru búnir að skoða hann vel og
lögðu ofurkapp á að stoppa „fljót-
andi“ leik hans. Jón Arnór hefur
ekki áhyggjur af Martin.
„Martin þarf bara að finna út úr
því og hann gerir það. Hann er hörku
góður og hefur sýnt það. Hann þarf
bara stíga upp í sínum leik eins og
við allir. Við þurfum að finna grúvið
okkar því það er þarna. Við eigum
alveg helling inni og það er það eina
sem maður er svolítið daufur með
því við getum svo miklu miklu betur.
Við náðum ekki alveg að sýna það í
dag nema í þennan stutta tíma,“
sagði Jón Arnór og vísar þar til ann-
ars leikhlutans.
Martin var næststigahæstur í
íslenska liðinu á eftir Hauki ásamt
fjórum öðrum en allir skoruðu þeir
sjö stig.
„Það voru alltof mikið af töpuðum
boltum og hraðaupphlaupum í kjöl-
farið. Það er rosalega dýrt fyrir okkur
sérstaklega því við megum ekki gefa
svona mikið af svona auðveldum
körfum,“ sagði Martin. Hann faldi sig
ekki fyrir sinni ábyrgð enda með sex
tapaða bolta. Hræðileg þriggja stiga
skotnýting var ekki heldur að hjálpa
mikið (2 af 23, 9 prósent).
„Það er mjög gott að vita af því að
Haukur var sá eini sem var að gera
eitthvað sóknarlega en samt erum
við inn í leiknum fram í þriðja leik-
hluta. Ef allir ná að smella á laugar-
daginn þá getur allt gerst," sagði
Martin að lokum.
Skrifar frá
Helsinki
Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is
Úrslit
A-riðill
Ísland - Grikkland 61-90
Stig Íslands: Haukur Helgi Pálsson 21,
Hörður Axel Vilhjálmsson 7, Jón Arnór
Stefánsson 7, Hlynur Bæringsson 7, Martin
Hermannsson 7, Kristófer Acox 7, Pavel
Ermolinskij 3, Tryggvi Snær Hlinason 2.
Slóvenía - Pólland 90-81
Frakkland - Finnland 84-86
B-riðill
Þýskaland - Úkraína 75-63
Litháen - Georgía 77-79
Ítalía - Ísrael 69-48
EM í körfubolta
Finnar gerðu sér lítið fyrir og unnu
Frakka, 84-86, eftir framlengingu
í síðasta leik gærdagsins í A-riðli.
Jamar Wilson var hetja Finna. Hann
kom liðinu í framlengingu og skor-
aði svo sigurkörfuna þegar fimm
sekúndur voru eftir af venjulegum
leiktíma. Sannarlega óvæntur sigur
hjá heimaliðinu.
61
Ísland
90
Grikkland
Fráköst
Stoðsendingar
Skotnýting
3 stiga skot
Vítanýting
Tapaðir boltar
Fráköst
Stoðsendingar
Skotnýting
3 stiga skot
Vítanýting
Tapaðir boltar
32 - 46
32% - 54%
2/23 - 7/16
17 - 22
72% - 68%
22 - 20
Maður
leiksins
Haukur Helgi Pálsson
bar af í íslenska liðinu.
Hann skoraði 21
stig, tók fjögur
fráköst og gaf
tvær stoðsend
ingar. Átti eina
eftirminnilega
troðslu yfir varn
armann Grikkja í
fyrri hálfleik.
tölfræði leiksins
Hundsvekktur út í sjálfan mig
Grikkir smjöttuðu á mistökum körfuboltastrákanna okkar í 29 stiga sigri í Helsinki í gær. Frábær annar leik-
hluti kveikti vel í fjölda Íslendinga sem voru mættir í höllina en hinir þrír leikhlutarnir töpuðust samtals 38-
79. Einn af þeim sem geta gert miklu betur er Martin Hermannsson sem dró ekki dul á eigin ábyrgð eftir leik.
Ætla ekkert að hika
á þessu móti
„Við hittum illa. Við hittum á
rosalega lélegan skotdag. Mér
fannst við fá skot en við settum
þau bara ekki niður. Það þarf
að breytast. Svo þurfum við að
passa boltann og þá er þetta í
flottum málum,“ sagði Haukur
Helgi Pálsson eftir leikinn gegn
Grikkjum í gær.
Hann segir að það þýði ekki að
svekkja sig á úrslitunum.
„Þetta er fimm leikja mót og
við þurfum eiginlega að gleyma
þessum leik sem fyrst. Við eigum
Pólland næst og það er leikur
sem við ætlum að vinna. Við
þurfum að mæta vel stemmdir til
leiks og gera þetta fyrir áhorfend
urna okkar,“ sagði Haukur Helgi.
Hann hikaði hvergi í leiknum í
gær og spilaði af krafti.
„Ég ætla ekkert að hika á þessu
móti. Það gengur ekkert á móti
þessum liðum. Við þurfum að
setja kassann út, skjóta okkar
skotum og lifa og deyja með því,“
sagði Haukur Helgi.
Hlynur Bæringsson stóð í ströngu undir körfunni í leiknum gegn Grikkjum. Hann skoraði sjö stig og tók þrjú fráköst. FréttABLAðið/ernir
Pepsi-deild karla
FH - Kr 0-1
01 Tobias Thomsen (67.).
efst
Valur 37
Stjarnan 30
KR 26
FH 25
Grindavík 25
KA 24
neðst
Breiðablik 24
Víkingur R. 22
Fjölnir 19
Víkingur Ó. 19
ÍBV 16
ÍA 10
Í dag
15.50 Kasakstan - Svartfj.l. Sport
18.30 Dell technologies Ch. Golfst.
18.35 Malta - england Sport
18.35 tékkland - Þýskal. Sport 2
18.35 Danmörk - Pólland Sport 3
20.45 HM markasyrpa Sport
22.30 Cambia Portland Cl. Golfst.
Pepsi-deild kvenna
Stjarnan - FH 2-0
10 Katrín Ásbjörnsdóttir (12.), 20 Harpa
Þorsteinsdóttir (67.).
efst
Þór/KA 38
Breiðablik 33
Valur 31
ÍBV 31
Stjarnan 30
neðst
FH 19
Grindavík 14
KR 12
Fylkir 8
Haukar 1
inkasso-deildin
Haukar - Leiknir F. 5-3
efst
Keflavík 40
Stjarnan 39
Haukar 33
Þróttur 33
HK 33
Þór 30
neðst
Leiknir R. 29
Fram 26
Selfoss 24
ÍR 16
Grótta 9
Leiknir F. 7
1 . s e P t e m b e r 2 0 1 7 f ö s t u D A G u r22 s P o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-7
9
F
C
1
D
A
3
-7
8
C
0
1
D
A
3
-7
7
8
4
1
D
A
3
-7
6
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K