Fréttablaðið - 01.09.2017, Qupperneq 30
Fallegar háls-
festar, armbönd
og lyklakippur
frá Bambaloo.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Helga Steinþórsdóttir hjá Mýr design.
Nýjar og fallegar vörur tilbúnar fyrir gesti Ljósanætur. Falleg og sígild hönnun frá Mýr design.
Eva Hrund hjá Bambaloo.
Bæjarhátíðin Ljósanótt hófst í Reykjanesbæ á miðvikudag og stendur yfir fram á sunnudag,
3. september. Meðal fjölmargra
áhugaverðra viðburða þessa dagana
er hönnunar- og myndlistarveisla
sem haldin er á Park Inn By Radis-
son Keflavík hótelinu sem stendur í
miðbæ Reykjanesbæjar.
Þar munu hönnuðir af Suðurnesj-
um, auk nokkurra frá höfuðborgar-
svæðinu, sýna og kynna hönnun
sína fyrir gestum hátíðarinnar.
Meðal þeirra eru fatahönnuðurinn
Helga Björg Steinþórsdóttir hjá
Mýr Design og Eva Hrund Gunn-
arsdóttir sem rekur skartgripafyrir-
tækið Bambaloo.
Báðar eru þær Suðurnesjakonur
og segjast lítið finna fyrir því að vera
staðsettar utan höfuðborgarsvæðis-
ins enda selja þær hönnun sína að
mestu leyti gegnum Facebook. „Sala
gegnum Facebook hefur gengið
mjög vel hjá mér. Skartgripirnir
eru ekki þungir og því eru þetta
léttar og litlar pakkningar sem ég
er að senda. Fyrir vikið er enginn
sendingarkostnaður hjá viðskipta-
vinum mínum,“ segir Eva Hrund.
Vinsælasta vara hennar um þessar
mundir er hálsfesti fyrir auðkennis-
kort en einnig framleiðir hún
svipaðar hálsfestar án króks en með
dúski og veglegri hálsfestar, arm-
bönd í stíl auk þess sem hún hóf
nýlega framleiðslu á lyklakippum.
Selja gegnum netið
Helsti markhópur Evu Hrundar eru
konur sem starfa á vinnustöðum
þar sem auðkenniskort eru notuð.
„Einnig stíla ég inn á konur sem
vilja krydda upp á flíkurnar sínar,
eða eins og ég segi oft, að „blinga“
sig aðeins upp. Aldursbilið er breitt
en aðalaldurshópurinn er á bilinu
35-55 ára.“
Helga Björg tekur undir orð Evu
Hrundar og segir litlu máli skipta
hvar hún er staðsett. „Ég sel út um
allt land í gegnum netið, þá aðallega
Facebook. Einnig er mjög vinsælt
hjá bæði hópum og einstaklingum
að koma við hjá okkur á vinnu-
stofunni á Ásbrú en þar er öll okkar
hönnun framleidd af fagfólki. Ég
hanna einungis kvenmannsföt,
þá helst kjóla, jakka og pils og er
markhópurinn konur á aldrinum
30-70 ára.“
Byrjuðu smátt
Upphafið að Bambaloo er nokkuð
skondin saga segir Eva Hrund. Á
Ljósanótt fyrir tveimur árum var
hún að rölta í miðbænum og tók
eftir föndurbúð sem seldi fallegar
perlur sem hún heillaðist af. Hún
keypti slatta og bjó til nokkrar
hálsfestar fyrir sjálfa sig. „Ég var
svo ánægð afraksturinn að ég
póstaði myndum af föndrinu mínu
á Facebook síðuna mína. Mér til
mikillar undrunar urðu viðbrögðin
sú að vinir og vandamenn báðu
mig um að gera hálsfestar fyrir sig.
Áður en ég vissi af var ég byrjuð að
framleiða fyrir aðra og komin með
aðstöðu hjá frumkvöðlasetrinu
Eldey fyrir síðustu jól.“
Helga Björg byrjaði sjálf með
eina saumavél fyrir nokkrum árum
og gat því einungis framleitt eina
og eina flík í einu. „Ég hafði því
takmarkaðan tíma til að hugsa út
hönnunina á þessum tíma. Eftir að
ég réði fyrst saumakonu og síðar
kjólameistara í fullt starf gat ég leyft
mér að einbeita mér að hönnun-
inni. Fatnaðurinn okkar er frekar
klassískur og úr vönduðum efnum.
Sum sniðin halda sér ár eftir ár með
breytingum þó og við leikum okkur
með efni og liti. Samt sést strax að
þessi fatnaður er frá Mýr Design.“
Nóg af vörum
Helga Björg mun sýna nýja línu
af kjólum á Ljósanótt. „Þetta eru
Hönnunarveisla á Ljósanótt
Boðið verður upp á hönnunar- og myndlistarveislu í miðbæ Reykjanesbæjar á Ljósanótt. Þar
munu m.a. hönnuðir af Suðurnesjum sýna framleiðslu sína og kynna fyrir gestum hátíðarinnar.
kjólar sem henta við öll tækifæri,
síðkjólar og jakkar í stærðum
36-54.“
Eva Hrund segist hafa nýtt allan
frítíma síðustu þrjár vikurnar í
framleiðslu. „Það ætti því að vera
nógu mikið úrval af hálsfestum fyrir
auðkenniskortin, slatti af annars
konar fallegum hálsfestum, arm-
bönd og svo að auðvitað lyklakipp-
urnar.“
Upplýsingar um alla sýnendur má
finna á Facebook (ljosanottkef).
Sýningin verður opin í dag milli kl.
16 og 21, á laugardag milli kl. 13 og
19 og á sunnudag milli kl. 13 og 17.
RÚNAR
RÓBERTS
Rúnar Róberts styttir
þér stundirnar með
bestu tónlistinni.
ALLA VIRKA DAGA
MILLI 13:00 OG 16:00.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . S E p t E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
3
-5
2
7
C
1
D
A
3
-5
1
4
0
1
D
A
3
-5
0
0
4
1
D
A
3
-4
E
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K