Fréttablaðið - 01.09.2017, Page 40
Innan um helling af glærum blöðrum er listafólk að undirbúa sýningu dansverks í Tjarnarbíói. Hópurinn gerir hlé þegar Fréttablaðsfólk ryðst inn í salinn og þegar
ljósmyndarinn hefur smellt af er
Valgerður Rúnarsdóttir stjórnandi
króuð af í viðtal. Hún brýnir fyrir
samstarfsfólkinu að halda áfram,
nota tímann enda frumsýning að
bresta á, hún er í kvöld, föstudag,
klukkan 20.30.
Verkið heitir Kæra manneskja og
Valgerður er titlaður höfundur. „En
þó ég sé að stýra þessu þá eru allir
þátttakendurnir meðhöfundar því
margar hendur og margir hausar
koma að því,“ tekur hún fram. „Ein-
hver kemur með fræ sem hann sáir
inn í hópinn og það fer kannski
að spíra hjá einhverjum öðrum.
Hugmyndirnar fæðast hver af ann-
arri og renna saman þannig að að
lokum man maður ekki hver kom
með hverja. Svo höfum við horft
á myndir saman, hlustað á tónlist
sem hreyfði við okkur og kannski
einhver fundið ljósmynd eða blaða-
grein sem hefur komið að notum.“
Valgerður viðurkennir þó að
hafa átt upphaflegu hugmyndina.
Hana rekur hún til fæðingar dóttur
sinnar fyrir tæpum þremur árum.
„Móðir mín er dáin og þar sem ég
sat með ósjálfbjarga hvítvoðung-
inn minn fór ég að hugsa um allt
sem hún gerði fyrir mig og amma
gerði fyrir hana og langamma …
Allar höfðum við gengið í gegnum
það sama, innan í okkur óx líf sem
við vildum vernda og hlúa að. Það
helltust yfir mig hugmyndir um
allar kynslóðirnar sem koma og
fara og þá hringrás sem stöðugt er
í gangi. Líka í stærra samhengi, til
dæmis í umgengni okkar við móður
jörð. Hvað með framtíðarkynslóðir.
Munu þær hafa það gott?“
Valgerður bendir á að vestrænn
heimur sé ansi frekur á umhverfið
og segir hugmyndir að dansverkinu
hafa orðið til í samhengi við þá
staðreynd. „Við vinnum til dæmis
með andardráttinn, þessa einföldu
gjörð að anda inn og anda út – og
þá kemur líka við sögu hverju við
öndum út – koltvísýringnum.
Þarna er allt undir, allt frá því að
fæðast og deyja og yfir í jörðina og
umhverfið.“
Allt er þetta túlkað með hreyf-
ingum, ljóðum og tónlist á sviðinu í
Tjarnarbíói. „Þó verkið sé í sjálfu sér
fullmótað nú þá verða engar tvær
sýningar nákvæmlega eins, því þar
eru opnir kaflar og alltaf er eitthvað
lífrænt að gerast í ferlinu.“
Nú vil ég vita hvaða tilgangi
blöðrurnar gegna í sýningunni Kæra
manneskja. Eru þær bara til skrauts
eða hafa þær dýpri merkingu?
„Þar sem við vorum að vinna með
andardráttinn og loftið fannst okkur
blöðrurnar túlka þetta stóra vanda-
mál sem mengunin er. Þó við viljum
ekki mála skrattann á vegginn þá
eru blöðrurnar okkar sýnileg meng-
un. Þær eru koltvísýringurinn. Svo
eru þær líka plasthaf og túlka það
sem maðurinn er að láta frá sér.“
Valgerður vill líka undirstrika
titilinn, Kæra manneskja. „Við
mættum hugsa um það oftar að sýna
kærleika, bæði samborgurunum og
umhverfinu. Þannig getum við reynt
að bjarga stóru, yfirvofandi vanda-
máli.“
Þó sýningin sé í Tjarnarbíói þá
hefur hún verið æfð á dansverk-
stæðinu við Skúlagötuna, þar sem
sjálfstætt starfandi dansarar og
danshöfundar hafa haft húsnæði.
Nú hefur því verið lokað, að sögn
Valgerðar og það er henni áhyggju-
efni. „Dansinn á Íslandi er heimilis-
laus um þessar mundir, þrátt fyrir
velgengni bæði hér heima og á
erlendri grundu.“
Hún bendir á að dansinn sé
blómstrandi grein hér á landi og fari
víða. „Íslenskir dansarar og dans-
höfundar ferðast með sína list og
hafa unnið sigra erlendis því dans-
inn er ekki bundinn við neitt tungu-
mál. Ég hef til dæmis unnið mikið
með danshöfundi í Belgíu og farið
heimshorna á milli.
Það er auðvitað frábært að fá að
sýna hér í Tjarnarbíói en það eru
bara svo margir sjálfstæðir sviðs-
listahópar í landinu að það er setið
um þetta hús. Best væri ef við ættum
okkar hús sem væri helgað dans-
inum.“
Mættum hugsa oftar um kærleikann
Kæra manneskja er nýtt dansverk sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í kvöld. Það er unnið undir
handleiðslu Valgerðar Rúnarsdóttur danshöfundar en skapað í nánu samstarfi hóps listamanna.
Aðstandendur sýningarinnar: Védís Kjartansdóttir dansari, Valgerður Rúnarsdóttir, stjórnandi og dansari, Snædís Lilja Ingadóttir dansari, Ragnar Ísleifur Bragason sviðslistamaður, Sigrún Huld Skúla-
dóttir, leikkona og dramatúrg, Ragnheiður Maísól Sturludóttir myndlistarkona og Áskell Harðarson tónlistarmaður. FRéttABLAðIð/Anton BRInK
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Það hellTusT yfiR
mig hugmyndiR um
allaR KynslóðiRnaR sem
Koma og faRa og Þá hRing-
Rás sem sTöðugT eR í gangi.
líKa í sTæRRa samhengi, Til
dæmis í umgengni oKKaR Við
móðuR jöRð. hVað með
fRamTíðaRKynslóðiR. munu
ÞæR hafa Það goTT?
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r32 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
3
-4
D
8
C
1
D
A
3
-4
C
5
0
1
D
A
3
-4
B
1
4
1
D
A
3
-4
9
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K