Fréttablaðið - 01.09.2017, Page 48
Þú munt finna lausnir
Elsku Hrúturinn minn. Þú átt svo marga
aðdáendur sem líta upp til þín, dýrka þig og
dá enda átt þú það til að vera svo ofsalega
ákafur eins og nýfætt hrútslamb og hressa
hvaða fýlupoka sem er við. Þú hefur svo
marga óendanlega kosti. Það er spenna í
loftinu; þú getur kallað það streitu, en ég vil
frekar nota orðið spenna. Þú ert eitthvað að
mikla fyrir þér aðstæður en sérð eftir 10-15
daga að þær hindranir sem þú heldur að
séu til staðar eru bara til þess að beina þér í
sterkari átt og fá þig til að koma með lausnir.
Þú sigrar það sem er að stríða þér þessa
dagana. Þú ert bæði hæfileikaríkur og gáfaður
og í ástamálunum laðast að þér ótrúlega
ólíkir einstaklingar svo þú gætir átt erfitt með
að velja ef þig langar að binda þig. Það eru
miklar breytingar í sambandi við ný kynni
á persónum sem hjálpa þér að klífa þann
metorðastiga sem þig langar að klífa. Mottó:
Ég er sterkari en steinninn.
Spáin gildir fyrir september
Lengri útgáfa af stjörnuspá á
visir.is/SiggaKling
Septemberspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Spáin birtist fyrsta föstudag hvers mánaðar.
Ekki ofhugsa hlutina
Elsku Nautið mitt. Það má sannarlega segja
að þú sért hafið yfir fjöldann en þú verður að
muna að mont og stolt eru systur. Þú þarft
þess vegna að æfa þig meira að vera montið
með þig eins og þú ert með fjölskyldu þína
og vini. Þú mátt líka skilja að þú ert með
miklu meiri hæfileika en þú gerir þér grein
fyrir.
Fyrir þá sem eru að hugsa um ástina, þá
þarftu að skilja orðið ást; þráhyggja er alls
ekki ást eða tengd henni á nokkurn hátt. Ástin
tengist því að hafa félaga sem styður þig í
blíðu og stríðu. Þú átt erfitt með að fyrirgefa
mistök annarra gagnvart þér tengd ástinni. Því
mun það aldrei ganga að þú sért með mann-
eskju sem er þér ótrygg eða ótrú, því þótt þú
fyrirgefir á yfirborðinu áttu erfitt með að hafa
skilning á vitleysunni í öðrum. Ekki ofhugsa
þótt það sé mikið að gera, mundu frekar að
þetta reddast. Mottó: Þetta reddast.
Ekki hanga í leiðindum
Elsku Tvíburinn minn. Þú ert svo klár og
ástríðufullur og getur verið með mörg
verkefni á sama tíma. Margir færu í „burnout“
eða kulnun við svoleiðis aðstæður. En þú
býrð yfir krafti á við bestu þotur WOWair,
mundu þó að það sem knýr þoturnar áfram
er einfaldlega eldsneyti. Það sem þú þarft að
skoða í þessu samhengi er að vera ekki í hrút-
leiðinlegri vinnu eða skóla sem hefur á þér
fastatök. Það er nefnilega frelsið sem skapar
þessa glimrandi skemmtilegu manneskju sem
þú ert.
Ástríða einkennir bjartsýnan Tvíbura og þá
líður þér eins og drottningu eða kóngi á fal-
legu taflborði og finnur að þú hefur ekkert
að óttast þótt þú takir áhættu í ástamálum.
En þið sem eruð í sambandi skuluð byggja
upp skemmtilegra ástalíf, dekra við makann
og hrósa honum, halda spennunni gangandi
Mottó: Líttu upp í ljós.
Þú velur fólkið þitt sjálft
Elsku Ljónið mitt. Þegar þú ert í essinu þínu
og skjallar og hrósar fólkinu þínu er enginn
eins fagur og þú. Og þú hefur yfir þér svo
mikla reisn alveg sama hversu mölbrotið þú
ert. Það mikilvægasta fyrir næstu mánuði er
að tengja þig betur við fólkið í kringum þig og
bara alla, ýmist þá sem þú þekkir vel, þá sem
þú hefur haft lítið samband við og þá sem þú
sérð að muni passa lífsorkunni þinni. Lífið er
bara leikrit, þú velur persónur og leikendur
sem þér líkar vel við og þá þarftu að gera vel
við það fólk … ef einhver kann það þá ert það
þú.
Þú átt ekki að spila í vörninni heldur ertu
týpan sem er markaskorari. Þú þarft að
einangra það í huga þínum hvernig þú ætlar
að skora mörk næstu mánaða. Þú þarft því
nauðsynlega á því að halda að hafa liðs-
heildina í lagi til að fá boltann á réttan stað,
þá verður allt miklu auðveldara.
Setningin þín er: Er ekki kominn tími til að
tengja?
Segðu bless við óöryggi
Elsku magnaða Meyjan mín, mikið er ég
þakklát fyrir að þú sért til, það ert þú sem svo
sannarlega skrifar söguna fyrir okkur. Undir
einbeittu yfirborði þínu býr svo margbreyti-
legur andi sem þú sýnir ekki mörgum. Margir
í kringum þig halda að þú sért svona og hin-
segin en fæstir vita hvernig þú ert í raun. Ég
bið þig svo sannarlega að skoða að ef þú ert
þreytt á vinnunni og búin að bíða lengi, lengi
eftir viðurkenningu þá skaltu athuga að sú
vinna eða skóli er trúlega alls ekki þinn vænsti
kostur. Þú skalt alls ekki sýna óöryggi eða
undirgefni í neinu sem tengist ástinni. Þegar
þú mætir á svæðið vita allir að þú ert komin.
Um leið og þú skilur að þú hefur þennan
X-faktor þá halda þér engin bönd. Að binda
Meyju niður ætti að vera lögbrot!
Þú stendur á merkilegum tímamótum
nákvæmlega núna og sú orka endist í þrjá
mánuði. Þegar þú lítur yfir þennan tíma í
desember þá getur þú séð skýrt hvernig árið
þitt verður. Mottó: Þetta er minn tími!
Þú lendir á fótunum
Elsku Vogin mín. Þó að það sé svolítil ókyrrð
í hjarta þínu og tilfinningunum þá er orkan
í kringum þig og lífið alveg með besta móti.
Möguleikarnir eru margir en þú þarft bara
að átta þig á að kvíðahnúturinn í hjarta þínu
er mögulega ekki út af neinu sem þú getur
skýrt. En þessi hnútur getur valdið pirringi og
fljótfærni svo segðu ekkert við fólk í kringum
þig nema þú sért búin að hugsa vel hvað þú
meinar raunverulega með orðum þínum
Smáatriði eiga ekki að hafa áhrif á þig á
neinn máta því þú ert hátt yfir það hafin. Þú
blómstrar þegar hlutirnir eru stabílir þótt þú
sért orka hugmynda og framfara. En moldin
þarf að vera frjósöm til þess að þú blómstrir
eins og þú þarft. Haustmánuðir gefa þér það
að þú ferð að leita að fyllingu í hjarta þínu og
lífsgæðum. Þegar líða tekur á haustið tekur
þú þá stórt stökk og lendir svo gjörsamlega
á fótunum, þá mun þér finnast eins og þú
hefðir fyrir löngu átt að taka þetta stökk!
Setningin þín er: Ég fer mína einstöku leið!
Slökktu á síma og tölvu
Elsku Sporðdrekinn minn, þó þér finnist þú
sjá líf þitt á næstu mánuðum í þoku þá er það
akkúrat sá tími sem gefur þér mesta kraftinn
til að hugsa og framkvæma rétta hluti. Hin
venjulega íslenska þoka kyrrir hugann og
sameinar orkuna í fólki. Hún hefur áhrif á
mann eins og hugleiðsla og þessi áhrif munu
valda því að þér líður líkamlega miklu betur
og áhyggjur minnka með mánuðunum. Þok-
unni fylgir ró og rónni fylgir traust um að ver-
öldin hugsi vel um þig og viti hvað er þér fyrir
bestu. Þú þolir illa ofsagang og læti og skríður
eins og snigill inn í kuðung þegar vesen og
læti eru í kringum þig. En þetta er akkúrat að
gerast núna. Þú ert samt sem áður að efla
kraft þinn og orku og besta hugleiðslan fyrir
þig er að hvíla þig aðeins frá áreiti; aftengja
þig frá tölvum og símum. Þessi tæki gefa þér
nefnilega meiri pirring heldur en fólki sem er
staðsett í hinum ellefu merkjunum.
Í ástinni skaltu ekki taka nein skref fyrr en þú
lærir að elska sjálfan þig fyrst. Setningin þín:
Ég dansa og er stórkostlegur.
Veldu fyrirmyndir vel
Elsku Bogmaðurinn minn, það er svo sterkt
í eðli þínu að vera með fullkomnunaráráttu
og orðið fullkomnunarárátta er afskaplega
leiðinlegt orð. En þetta er bara vegna þess
að þú vilt gera allt svo vel, stundum of vel.
Svo það er mikilvægt að þú sýnir sjálfum þér
meiri þolinmæði og reynir ekki að vera alltaf
með allt á hreinu. Ef þú sleppir takinu þá
birtast þér miklu fleiri möguleikar.
Þér mun aldrei líða vel ef þú festist í vana
og vani er bara þannig; eitthvað sem maður
venur sig á og festist svo í. Þannig að það
er því þín eina hindrun á komandi haust-
mánuðum, ekki flækja þig of mikið í viðjum
vanans. Þú ert í eðli þínu ævintýramanneskja
og þarft að hafa möguleikann á að vera
færanlegur í lífinu. Að geta hoppað frá einum
steini til annars þegar þú ert að komast yfir
lífsins fljót. Þú ert spegilmynd af þeim sem
eru fyrirmyndir þínar, svo vandaðu valið og
skoðaðu vel hverjum þú leyfir að hafa áhrif á
þig. Setningin til þín er: Ekki láta berast með
straumnum.
Hleyptu birtunni inn
Elsku fallegi Krabbinn minn, þetta er búið að
vera merkilegt sumar sem hefur gefið þér
sjálfstraust á svo marga vegu. En núna ertu
mikið að hugsa um að þú þurfir og viljir vera
handviss um að þú sért að gera rétt og hafir
lagt þig allan fram. Þú ert sú týpan sem vilt
borga borðið á veitingahúsunum og „tríta“
vini þína með gjöfum, en líka til að sýna
hversu mikinn klassa þú hefur. En þegar þú
gefur of mikið eða meira en þú átt getur það
nálgast yfirborðsmennsku. Það fær þig til að
finnast eins og þú sért með holu í hjartanu.
Svo hleyptu þeim inn sem langar svo sannar-
lega að hjálpa þér áfram, deila með þér lífinu
og hleypa birtu inn í það.
Þú ert eins og bambusinn: þú getur bognað
en brotnar aldrei. Margt hefur gerst undan-
farin misseri og hvort sem þér hefur þótt það
erfitt eða létt felur það í sér lykilinn að góðu
ári. Mottó: Vertu glaður!
Þú stýrir eigin hamingju
Elsku Steingeitin mín, þú ert fædd til að ganga
hamingjusaman veg en flækir þig svo oft í
viðhorfum til lífsins og þú treystir fáum þó þú
eigir stóran vinahóp. Okkar stærstu og merki-
legustu leiðtogar eru fæddir í þessu merki en
til þess að þú náir að vera sá leiðtogi sem þú
vilt vera (og átt að vera) verður þú að læra að
treysta, það er lykillinn að því að hamingjan
geti búið í þér. Ég á eina ofsalega góða vin-
konu sem er búsett í þessu merki og hún
sagði einu sinni við mig: „köld eru kvennaráð“
en í því var hún bara að meina að ég geri hvað
sem ég þarf til að passa upp á þá sem eru
fjölskyldan mín og þá sem ég elska. Margir
mafíuforingjar eru fæddir í þessu merki og ef
náinn vinur þinn myndi biðja þig um að grafa
lík í garðinum þínum myndir þú gera það.
Þess vegna er svo mikilvægt að vera vinur
þinn þó ekkert lík þurfi nú að grafa.
Í ástinni þarftu að hafa hreint og tært hjarta
því það mun skila sér eins og stærsti lottó-
vinningurinn. Setningin þín er: Hamingjan er í
þínum höndum!
Ný tækifæri með haustinu
Elsku Vatnsberinn minn, þú ert svo heillandi
og heitur að jöklar gætu bráðnað í návist
þinni. Þú hefur svo stóran faðm og svo mikla
umhyggju fyrir lífinu og tilverunni, þetta er
það sem gerir þig svo dásamlega einstakan.
Þú hefur svo miklar, fágætar og góðar hug-
myndir um hvernig þú vilt skapa framtíðina.
En það er svo ríkt í þér að taka of mikið tillit
til annarra og passa að þú eyðileggir ekki
neitt fyrir neinum og þess vegna ganga hlut-
irnir oft hægar en þú vilt.
Að mínu mati er alltaf öld Vatnsberans en
þið þurfið sjálf að sækja ykkar réttindi og
það sem ykkur ber, án þess að láta tengsl
eða tilfinningar rugla ykkur í ríminu. Ef ég má
líkja ykkur við bifreið, þá eruð þið á rosalega
góðum dekkjum. Þannig að smá fyrirstaða,
drulla eða pollar, verða ekki til þess að
stoppa ykkar farartæki.
Haustmánuðir gefa þér tækifæri til að taka u-
beygju í lífi þínu. Þeir gefa þér val um að taka
það fólk þú elskar með þér í nýja átt.
Mottó: Þú ert líf og litur.
Veislustjóri að eðlisfari
Elsku Fiskurinn minn, það er svo ríkt í eðli
þínu að vera veislustjóri alveg sama í hvaða
partíi þú ert. Sumir kalla það stjórnsemi en
það er þér í blóð borið að redda og bjarga
svo allt gangi vel, helst hjá öllum.
Að hafa svo magnaðan húmor, eins og þann
sem þú hefur, er ekki á allra færi. Kaldhæðni
svífur oft yfir setningunum þínum og eins og
Winston Churchill sagði þá er það að segja
brandara háalvarlegt mál. Það eru bara þeir
sem hafa sterka tilfinningagreind sem geta
tvistað á þessum sviðum eins og þú getur,
elskan mín.
Það er mikilvægt að þú athugir að hvert ár
sem bætist við líf þitt gefur þér þroska og
byggir upp þetta kómíska sjálfstraust þitt.
Þegar þú finnur til óöryggis, elskan mín, er
það bara vegna þess að þér finnst grunnurinn
ekki nógu sterkur. Sá aðili sem á að vera með
þér í ástinni er sá sem lætur þér líða eins og
hann sé tryggt og öruggt bakland sem fær þig
til að vaxa og vera afslappaður á sama tíma
Setningin þín er: Hugurinn leiðir mig til sigurs.
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r40 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Lífið
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
3
-7
0
1
C
1
D
A
3
-6
E
E
0
1
D
A
3
-6
D
A
4
1
D
A
3
-6
C
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K