Fréttablaðið - 29.08.2017, Side 22
En okkur langar að
gera betur en
síðast, það er á hreinu.
Okkur langar í þennan
fyrsta sigur, það byrjar
allt með honum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
Arnar Guðjónsson er annar aðstoðarþjálfara landsliðsins. MYND/VILHELM
Íslendingar mæta Grikkjum á fimmtudaginn í fyrsta leik á Eurobasket 2017 og ríkir
mikil spenna og tilhlökkun í
íslenska hópnum að sögn Arnars
Guðjónssonar, annars aðstoðar-
þjálfara íslenska landsliðsins.
„Stemningin hefur verið mjög
góð á undirbúningstímabilinu.
Þetta er þéttur hópur og spennan
eykst með hverjum deginum.
Flestir leikmennirnir hafa verið
í æfingahópnum áður og þekkja
hugmyndir okkar mjög vel. Lítils-
háttar meiðsli hafa verið að trufla
okkur og því höfum við ekki náð
að stilla upp okkar besta liði í
síðustu leikjum. Við reiknum þó
með öllum klárum í fyrsta leik á
fimmtudag.“
Áttu möguleika
Þótt íslenska liðið hafi tapað
öllum leikjum á Eurobasket í
Berlín 2015 stóðu strákarnir sig
mjög vel og voru nálægt sínum
fyrsta sigri í lokakeppni stórmóts.
„Í leikjunum gegn Tyrkjum og
Þjóðverjum áttum við möguleika
og vorum síðan með Ítalaleikinn
í okkar höndum en náðum ekki
að klára hann. Við sýndum því vel
að við getum keppt á þessu sviði.
Við spiluðum vel því við vorum
hugaðir, en á sama tíma skynsamir
í sókninni. Í vörn vorum við
stríðsmenn, alltaf tilbúnir að
hjálpa hver öðrum og berjast um
alla bolta. En okkur langar að gera
betur en síðast, það er á hreinu.
Okkur langar í þennan fyrsta
sigur, það byrjar allt með honum.
Ef við náum í hann, þá er hægt
að láta sig dreyma um eitthvað
meira. Þjálfarateymið hefur sömu
væntingar til allra leikmanna
liðsins, hver og einn á að leysa sitt
hlutverk eftir bestu getu og gefa
allt sitt í þetta, innan vallar sem
utan.“
Og hann er hóflega bjartsýnn á
góðan árangur. „Ég hef trú á því að
ef við höldum okkur við þessa upp-
skrift og bætum við reynsluna sem
við fengum af síðasta móti, þá geti
allt gerst. Ef við ætlum hins vegar
að skila sama vinnuframlagi og
mótherjinn og treysta á körfubolta-
hæfileika verður þetta erfitt mót.
Okkar hæfileiki er að við getum
verið duglegri en öll önnur lönd.“
Áhersla á vörn
Leikstíll íslenska liðsins hefur
verið nokkuð svipaður undan-
farin fjögur ár að sögn Arnars þótt
hann þróist eðlilega eitthvað milli
ára. „Það sem breytist samt ekki
er að við verðum að setja pressu á
boltann í vörninni og vera tilbúnir
að tvídekka stóru menn andstæð-
inganna. Í sóknarleiknum þarf að
gera hluti sem þessar stóru þjóðir
sjá lítið af, eins og að setja stærri
mennina í óvanalegar aðstæður.
Einnig þurfum við að laga okkur
að því að hafa Tryggva inni á, hann
breytir aðeins leikstílnum okkar
með stærð sinni, báðum megin á
vellinum.“
Aðspurður hvort hann hlakki
sérstaklega til að mæta ákveðnum
liðum eða leikmönnum segist
hann ekki hafa velt því mikið fyrir
sér. „Ég hef ekki velt því mikið fyrir
mér. Hugurinn er eins og stendur
við Grikki og Pólverja sem við
mætum í fyrstu tveimur leikjum
okkar. En af einstökum leikmönn-
um held ég að það verði gaman að
sjá hinn franska Boris Diaw, hann
er ótrúlega snjall leikmaður.“
Langar í fyrsta sigurinn
Mikil spenna er í íslenska hópnum
sem mætir Grikkjum í fyrsta leik á
Eurobasket næsta fimmtudag. Þrátt
fyrir að hafa tapað öllum leikjum í
Berlín 2015 stóðu strákarnir sig mjög
vel og langar nú að landa fyrsta sigr-
inum í lokakeppni stórmóts.
Luka Doncic frá Slóveníu er 18 ára og einn efnilegasti leikmaður álfunnar.
Slóvenía
Goran Dragic er 31 árs leikstjórn-
andi sem leikur með Miami Heat í
NBA-deildinni. Hann hefur átt fínan
feril og skoraði m.a. 20,3 stig á leik
á síðasta tímabili. Árið 2014 hlaut
hann verðlaun fyrir mestu framfarir
og var einnig valinn í þriðja úrvalslið
deildarinnar.
Luka Doncic er einungis 18 ára
gamall og þykir einn efnilegasti leik-
maður sinnar kynslóðar í Evrópu.
Hann leikur bæði stöðu leik-
stjórnanda og skotbakvarðar með
spænska stórliðinu Real Madrid
í spænsku ACB-deildinni. Flestir
sérfræðingar spá því að hann verði
valinn snemma í nýliðavalinu í NBA-
deildinni árið 2018.
Finnland
Lauri Markkanen er bjartasta vonin
í finnskum körfubolta. Hann var
valinn í NBA-nýliðavalinu í sumar
af Minnesota og því næst skipt til
Chicago í pakkaskiptum sem inni-
héldu stórstjörnuna Jimmy Butler.
Lauri er einungis 20 ára gamall en er
um 2,13 m á hæð og þykir afbragðs
skotmaður, þ. á m. góð þriggja stiga
skytta. Svo góð skytta þykir hann að
íþróttavefurinn SB Nation kallaði
hann bestu sjö feta skyttuna sem sést
hefur í bandarískum háskólabolta.
Frakkland
Evan Fournier er geysilega sterkur
leikmaður sem leikur bæði stöðu
lítils framherja og skotbakvarðar.
Hann er rétt rúmlega 2 metrar á
hæð og leikur með Orlando Magic í
NBA-deildinni. Fornier var stiga-
hæstur leikmanna ungs og efnilegs
liðs Orlando á síðasta tímabili með
17,2 stig. Stórhættulegur leikmaður
og skemmtileg áskorun fyrir íslensku
leikmennina.
Kevin Séraphin átti fínan NBA-
feril þar sem hann spilaði í sjö ár,
lengstum með Washington Wizards.
Kevin er um 2,08 m á hæð, sterkur
strákur sem spilar bæði stöðu mið-
herja og kraftframherja.
Besta ár hans í NBA-deildinni
var tímabilið 2012-2013 en þá kom
hann af bekknum og skoraði 9,1
stig og tók 4,4 fráköst. Hann hefur
kvatt NBA-deildina, a.m.k. í bili, og
skrifaði undir hjá spænska stórliðinu
FC Barcelona Bàsquet seint í sumar
þar sem hann mun að öllu óbreyttu
dvelja næstu tvö árin.
Bakvörðurinn Nando De Colo
hefur átt frábæran feril í evrópska
boltanum. Hann lék um tíma í NBA-
deildinni með San Antonio Spurs og
Toronto Raptors en samdi við hinn
fornfræga rússneska björn, CSKA
Moskvu, sumarið 2014. Óhætt er
að segja að hann hafi sett mark sitt
á evrópska boltann því hann vann
EuroLeague-titilinn með liðinu árið
2016, hefur síðustu þrjú tímabil
komist í All-European úrvalsliðin og
vann Alphonso Ford bikarinn sem
stigahæstu leikmenn Euroleague fá
fyrir stigaskorun sína.
Boris Diaw er í uppáhaldi hjá
mörgum aðdáendum NBA-boltans
enda fjölhæfur og skemmtilegur
leikmaður. Hann hefur átt góðan
feril í NBA-deildinni með nokkrum
liðum og vann m.a. til verðlauna
fyrir mestu framfarir árið 2006 auk
þess að vinna titilinn eftirsótta með
San Antonio Spurs árið 2014. Boris
er orðinn 35 ára gamall og því á
lokametrum ferilsins en það verður
gaman að sjá íslensku strákana kljást
við kappann.
Grikkland
Nick Calathes er leikstjórnandi
gríska landsliðsins. Hann átti frá-
bæran háskólaferil með Florida-
háskólanum og lék í tvö ár með
Memphis Grizzlies í NBA-deildinni.
Þegar einn lykilmanna liðsins, Mike
Conley, meiddist komst hann í byrj-
unarliðið um tíma. Þar stóð hann
sig það vel að hann var valinn nýliði
mánaðarins. Nick hefur leikið með
gríska liðinu Panathinaikos síðan
2015 og er talinn vera með bestu
varnarmönnum Evrópu.
Thanasis Antetokounmpo er eldri
bróðir gríska undursins Giannis
Antetokounmpo. Thanasis átti
stuttan feril í NBA með New York
Knicks en hefur vegnað mun betur
á Spáni. Í sumar skrifaði hann undir
hjá gríska liðinu Panathinaikos.
Hann er minni en bróðir hans, rétt
rúmlega 2 metrar á hæð.
Georgios Papagiannis er 2,16 m
hár miðherji sem var valinn af Sacra-
mento Kings í nýliðavalinu 2016.
Enginn grískur leikmaður hefur
verið valinn svo ofarlega en Georgios
var valinn nr. 13. Hann er einungis
tvítugur, stór og sterkur strákur, sem
á vafalaust eftir að verða íslensku
strákunum erfiður.
Pólland
A.J. Slaughter er bandarískur skot-
bakvörður með pólskt ríkisfang. Eftir
tvö ár í Western Kentucky-háskól-
anum reyndi hann við NBA-nýliða-
valið en án árangurs. Síðustu árin
hefur hann leikið víða í Evrópu, m.a.
á Grikklandi, Spáni og í Frakklandi.
Przemyslaw Karnowski er 2,16
m á hæð og tæplega 140 kíló. Örv-
hentur leikmaður og svakalegur
skrokkur sem verður erfitt að eiga
við. Hann spilaði fjögur ár í Gon-
zaga-háskólanum en leikur nú í
Evrópu.
Alvöru mótherjar í Finnlandi
Margir mótherjar íslensku strákanna eru núverandi og fyrrverandi NBA-leikmenn auk þess sem
margir þeirra spila lykilhlutverk í sterkustu deildum í Evrópu. Hér verður rennt yfir helstu nöfnin.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S t 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U REVRóPuKEPPNIN í KöRFuBoLtA
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-F
9
8
4
1
D
9
8
-F
8
4
8
1
D
9
8
-F
7
0
C
1
D
9
8
-F
5
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K