Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 2
Veður
Rigna mun talsvert á landinu í dag
þegar hitaskil ganga norðvestur
yfir landið. Mest mun þó rigna á
Suðausturlandi og Austfjörðum.
Skilunum mun einnig fylgja hvass-
viðri og stormasamt verður undir
Eyjafjöllum og í nágrenni Skaftafells.
sjá síðu 52
Gegn hatursorðræðu
Knattspyrnumaðurinn Pape Mamadou Faye var einn þeirra sem tóku til máls á ráðstefnunni Hatursorðræða í íslensku samfélagi í gær. Pape lýsti
því í samtali við DV í gær að hann hefði ekki haft hugmynd um hvað kynþáttahatur var fyrr en hann flutti til Íslands. Þorsteinn Víglundsson félags-
málaráðherra tók einnig til máls og sagði Íslendinga dragast aftur úr þegar kemur að viðbrögðum við hatursorðræðu. Fréttablaðið/anton brink
LISSABON
16. nóvember í 3 nætur
Netverð á mann frá kr. 89.995 m.v. 2 í herbergi.Hotel Altis Grand
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
89.995
m/morgunmat
á 5 stjörnu
hóteli
GLÆSILEGT
Viðskipti Vilhelm Róbert Wessman,
stofnandi Alvogen, keypti íbúð á
Manhattan um miðjan desember.
Gögn sem Fréttablaðið hefur um
söluna og lán henni tengt sýna að
kaupverðið var 29 milljónir Banda-
ríkjadala. Það samsvarar 3,3 millj-
örðum íslenskra króna miðað við
gengi krónunnar þann dag sem
viðskiptin fóru fram, 15. desember
síðastliðinn.
Íbúðin er á 432 Park Avenue í
New York. Samkvæmt söluyfirliti
er hún 373 fermetrar að stærð. Á
gólfum er eikarparket og af mynd-
um að dæma eru innréttingarnar
hinar glæsilegustu. Komið er inn í
stórt anddyri og við tekur glæsileg
setustofa og borðstofa. Íbúðin er í
96 hæða húsi, sem byggt var árið
2015. Þaðan er gott útsýni yfir
Central Park.
Róbert keypti íbúðina í gegnum
einkahlutafélag sem hann á 100
prósenta hlut í. Af láns-
skjölum að dæma hefur
hann tekið 14,5
milljóna dala veðlán
fyrir íbúðinni. Það
er andvirði 1,6 millj-
arða króna miðað
við gengi krónunnar
í desember. Svo virð-
ist sem engin önnur
lán hvíli á eigninni,
sem bendir til þess
að Róbert hafi reitt
fram jafnvirði 1,7 milljarða króna í
greiðslu.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst er þetta dýrasta íbúð sem
Íslendingur hefur átt. Árið 2009
sagði fasteignablað New York Times
frá því að Jón Ásgeir Jóhannesson
og Ingibjörg Pálmadóttir, eigandi
365 miðla, hefðu sett íbúð sína við
Gramercy Park North í New York
á sölu. Ásett verð var 25 milljónir
dala, eða um 3 milljarðar króna.
Róbert Wessman var forstjóri
Actavis áður en leiðir skildi með
honum og Björgólfi Thor Björgólfs-
syni í viðskiptum og Róbert stofnaði
Alvogen.
Hann er forstjóri síðarnefnda
fyrirtækisins í dag. Á vefsíðu Alvo-
gen segir að hann hafi á einungis sex
árum byggt Alvogen frá því að vera
lítið fyrirtæki í Bandaríkjunum upp
í að verða á meðal 15 stærstu sam-
heitalyfjafyrirtækja heimsins, með
starfsemi í 35 löndum.
Róbert var kvænt ur Sig ríði Ýri
Jens dótt ur lækni um árabil, en Séð
og heyrt greindi frá því í byrjun árs
að hann væri skilinn við eiginkonu
sína.
jonhakon@frettabladid.is
Dýrasta íbúð sem
Íslendingur hefur átt
Íbúð róberts Wessman er miðsvæðis á Manhattan og þaðan er gott útsýni
yfir Central Park. Íbúðin kostaði meira en þrjá milljarða króna.
Róbert Wessman keypti
íbúð á Manhattan í New
York í lok síðasta árs
fyrir rúma þrjá milljarða
króna. Lánsskjöl benda
til þess að hann hafi
einungis fengið 1,6
milljarða króna að láni.
LögregLumáL Erlendur karlmaður
var í gær úrskurðaður í vikulangt
gæsluvarðhald á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna. Úrskurðurinn var
kveðinn upp í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Maðurinn er grunaður um
að hafa orðið konu að bana í íbúð
hennar við Hagamel á fimmtudags-
kvöld.
Grímur Grímsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, segir
að stutt gæsluvarðhaldið segi
töluvert um hvað lögregla
telji sig vita um atburðinn.
Þó þarfnist málið töluverðrar
rannsóknar enda séu fjöl-
mörg atriði sem þurfi að
klára.
Viðkomandi gæti
þó verið leiddur
aftur fyrir dómara
eftir atvikum ef gerð
er krafa um áfram-
haldandi gæsluvarðhald. Hvort
sem það væri á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna eða með tilliti til
almannahagsmuna.
Málið er rannsakað sem mann-
dráp. Konan, sem var einnig af
erlendu bergi brotin og var á fimm-
tugsaldri, var flutt með alvarlega
áverka á slysadeild Landspítalans
á fimmtudagskvöld. Hún var
síðan úrskurðuð látin á spítal-
anum.
Íslendingur var einn-
ig handtekinn í íbúðinni
á Hagamel en honum var
sleppt í gær. Segir Grímur
að rannsókn málsins
í gær hafi sýnt að
aðild Íslendingsins
að málinu væri
engin. – þea
Lengd gæsluvarðhalds
endurspeglar vitneskju lögreglu
Grímur Grímsson,
yfirlögregluþjónn
3,3
milljarðar var verðmiðinn á
íbúð Róberts Wessman sem
hann keypti í desember
síðastliðnum.
ALþingi Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, telur
að hægt væri að ljúka þingstörfum á
tveimur dögum í næstu viku en segir
formenn annarra flokka ekki deila
þeirri skoðun með honum.
„Ég myndi vilja vinna að því að
þingið þyrfti bara að koma saman
í einn, tvo daga og svo væri hægt að
ganga til kosninga. En svo eru aðrir
sem vilja berjast fyrir einhverjum
einstökum málum. Það getur orðið
mjög flókið að ljúka þinginu þegar
þannig er,“ segir Bjarni.
Formenn flokka funduðu í gær til
að freista þess að ná samkomulagi
um þinglok en það tókst ekki eftir
nærri tveggja tíma fund. – hmp
Vill ljúka
þingstörfum á
þriðjudag
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A u g A r D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-6
F
9
0
1
D
D
2
-6
E
5
4
1
D
D
2
-6
D
1
8
1
D
D
2
-6
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K