Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 4
Hér ræður því
miður sú stefna að
leggja meiri áherslu á
misnotendur lyfja en að
tryggja sjúklingum aðgengi
að bestu lyfjameðferð.
Ólafur Adolfsson,
lyfsali
Afmælisbarn dagsins
Sigurður J. Stefánsson
40 ára
Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra
gekk á fund for-
seta Íslands,
Guðna Th.
Jóhannessonar,
á mánudaginn
og afhenti
honum þingrofs-
beiðni. Forsetinn
féllst á tillögu forsætisráðherrans
og gengið verður til kosninga
þann 28. október næstkomandi.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er
skammlífasta meirihlutastjórn í
sögu lýðveldisins.
Ragnheiður Bragadóttir
lagaprófessor
telur að aukin
áhersla á sam-
þykki í nauðg-
unarákvæði
almennra
hegningarlaga
gæti dregið úr
brotum. Hún vakti athygli á því
að núgildandi nauðgunarákvæði
væri tíu ára gamalt, eða frá 2007.
Þá gætu öflugar forvarnir einn-
ig dregið úr brotum af þessu tagi.
Hún ræddi sögu þessa lagaákvæðis
á fundi Rannsóknarstofnunar í
jafnréttisfræðum á fimmtudaginn.
Hildur Eir Bolladóttir
prestur á Akureyri
segir dæmi um
að pör hafi hætt
við að láta hana
gefa sig saman
í hjónaband
vegna ummæla
sem hún lét falla
um Sjálfstæðisflokkinn. Hildur
er hvergi bangin og segist ætla að
halda áfram að segja skoðun sína á
íslensku samfélagi.
Þrjú í fréttum
Þingrofsbeiðni,
nauðganir og
tjáningarfrelsi
Tölur vikunnar 17.09.2017-23.09.2017
væri fylgi Sjálfstæðis-
flokksins og VG sam-
kvæmt könnun í vikunni.
krónur voru laun kokkanna á
Sjanghæ.
konur eru
starfandi lög-
reglumenn hjá
lögreglunni á
höfuðborgar-
svæðinu. ferðamenn skoðuðu Selja-
landsfoss á síðasta ári.var hækkun tólf mánaða visitölu
íbúðaverðs í ágúst.
23%
465 þúsund milljónir króna kostaði kosninga-
barátta Bjartrar
framtíðar í fyrra.
27
66
telja Bjarta framtíð hafa haft
gilda ástæðu fyrir stjórnar-
slitunum.
64,3%
500
þúsund19,1%
Heilbrigðismál Það er sjálfsbjargar-
viðleitni foreldra barna, sem eru að
nota melatónín samkvæmt ávísun
læknis en fá ekki niðurgreiðslu á
Circadini, að útvega sér það með
öðrum leiðum. Margir hafa ekki
efni á að greiða allt að 80-100 þús-
und krónur á ári fyrir lyfin, segir
lyfsali. Margfalt ódýrara sé að flytja
melatónín inn ólöglega frá Banda-
ríkjunum.
Hér á landi getur 30 daga skammt-
ur af lyfinu Circadin (melatónín)
kostað allt að 8.600 krónum. Ströng
skilyrði eru fyrir greiðsluþátttöku í
Circadini og þarf fyrsta umsókn að
koma frá sérfræðingi í barnalækn-
ingum, barnageðlækningum eða
barnataugalækningum.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að sprenging hefði orðið í bæði
ávísun lækna á melatónín og hald-
lagðar póstsendingar lyfsins hjá
tollgæslu. Melatónín er náttúrulegt
hormón sem hefur svæfandi áhrif og
eykur svefnhneigð en það er meðal
annars notað fyrir börn sem fá lyf
við ADHD og eiga erfitt með svefn af
þeim sökum. Magnús Jóhannsson,
læknir hjá Embætti landlæknis og
prófessor í lyfjafræði, sagði í Frétta-
blaðinu í gær að mikil notkun á
melatóníni gæfi vísbendingar um
að í einhverjum tilfellum væri verið
slá á aukaverkanir örvandi lyfja
við ADHD eða að verið væri að gefa
lyfið á röngum tímum sólarhrings.
Ólafur Adolfsson lyfsali bendir þó
á að Embætti landlæknis geti ekki
fríað sig ábyrgð á aukinni notkun
melatóníns hjá börnum. Ástæðan
sé meðal annars sú að embættið
hafi beint þeim tilmælum til allra
lækna að ávísa frekar langverkandi
ofvirknilyfjum, með allt að 12 tíma
verkun, fyrir börn með ADHD sem
leiði óhjákvæmilega til aukinnar
tíðni svefntruflana með tilheyrandi
aukningu á notkun melatóníns.
Skammvirkari lyf séu til og ætti
frekar að nota á börn ef svefntrufl-
anir tengjast lyfjagjöf.
„Hér ræður því miður sú stefna
að leggja meiri áherslu á misnot-
endur lyfja en að tryggja sjúklingum
aðgengi að bestu lyfjameðferð,“
segir Ólafur. En líkt og fram kom í
Fréttablaðinu í gær er melatónín
flokkað sem fæðubótarefni í Banda-
ríkjunum en lyf hér á landi og í Evr-
ópu sem bannað er að flytja inn.
Og þó læknar ávísi melatóníni til
barna þá sé það í raun ekki hugsað
fyrir fólk yngra en 55 ára. Magnús
Jóhannsson hjá Embætti landlæknis
varaði sömuleiðis fólk við að panta
sér melatónín sem fæðubótarefni að
utan, enda sé fæðubótarefnismark-
aðurinn þar eftirlitslítill. Banda-
ríska lyfja- og matvælaeftirlitið
(FDA) er til dæmis aðeins haft með
í ráðum ef fæðubótarefni inniheldur
nýtt efni. Fólk getur því aldrei vitað
með vissu að það sé að fá það sem
það pantaði.
mikael@frettabladid.is
Foreldrar ungra barna leita í
ódýrara melatónín í neyð
Ólafur Adolfsson lyfsali segir að Embætti landlæknis geti ekki fríað sig ábyrgð á þeirri aukningu sem
orðið hefur á notkun melatóníns hjá börnum. Skiljanlegt sé að foreldrar leiti ódýrari og ólöglegra kosta á
netinu þar sem það geti reynst mörgum fjölskyldum dýrt að kaupa melatónín löglega hér á landi.
Það er margfalt ódýrara að flytja melatónín inn ólöglega frá Bandaríkjunum. FréttaBlaðið/EyÞór
langanesbyggð Sveitarstjórn Langa-
nesbyggðar ætlar ekki að áfrýja dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem
leigufélagið Heimavellir var sýknað af
kröfu sveitarfélagsins og það dæmt til
að greiða 650 þúsund krónur í máls-
kostnað. Losnar sveitarstjórnin því
ekki undan leigusamningum um sex
íbúðir á Þórshöfn sem gilda út 2021.
Fréttablaðið fjallaði í janúar um
málarekstur Langanesbyggðar en
héraðsdómur komst að niðurstöðu
þann 6. júlí. Taldi sveitarfélagið að
skýrt ákvæði væri í verðtryggðum
samningunum sem gerði því kleift að
segja þeim upp eftir að fasteignirnar
voru seldar öðru félagi. Íbúðirnar
sem um ræðir voru í eigu Laugavegs
ehf. þegar samningarnir voru undir-
ritaðir. Dótturfélag Heimavalla
keypti V Laugaveg árið 2015 og hefur
sveitarfélagið tapað yfir 20 millj-
ónum króna frá undirritun árið 2011.
Elías Pétursson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, sagði í samtali
við blaðið í janúar að leigutekjur
sveitarfélagsins, sem framleigir
íbúðirnar, væru talsvert lægri en upp-
hæðin sem það greiðir leigusalanum
Heimavöllum. Lögmaður Heimavalla
sagði þá að leigufélagið væri ósam-
mála túlkun sveitarfélagsins á upp-
sagnarákvæði samninganna.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
fjallaði um niðurstöður héraðs-
dóms á fimmtudag. Þar var lagt fram
minnisblað frá Lúðvík Bergvinssyni,
lögmanni sveitarfélagsins í málinu,
þar sem hann ráðleggur að málinu
verði ekki áfrýjað.
Samningarnir voru gagnrýndir af
sumum sveitarstjórnarmönnum og
íbúum Langanesbyggðar áður en
húsin voru byggð. Á fundi sveitar-
stjórnar í mars 2011 kom fram að
leigutekjur myndu einungis standa
undir 70 prósentum af greiddri leigu
til V Laugavegs. – hg
Mun ekki áfrýja eftir sigur Heimavalla í leigudeilu
Íbúðirnar í raðhúsum við götuna Miðholt á Þórshöfn. FréttaBlaðið/PjEtur
2 3 . s e p T e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-8
3
5
0
1
D
D
2
-8
2
1
4
1
D
D
2
-8
0
D
8
1
D
D
2
-7
F
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K