Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 90
Lestrarhestur vikunnar Auður Hilda, 7 ára
Konráð og félagar höfðu
heldur betur komist í
feitt. Þau fundu bláberja
móa þar sem krökkt var
af berjum. Allan daginn
voru þau búin að vera
að tína ber og nú var
komið að því að skoða
afraksturinn. Kata horfði
ofan í hálftóma fötuna
hjá Róberti og svo á
berjabláan munninn
hans. „Þú hefur nú bara
tínt berin upp í þig
sýnist mér,“ sagði hún
hneyksluð. Róbert fitjaði
upp á nefið og sagði: „Ég
er stór og sterkur og þarf
mikið að borða.“ „Eða ert
bara gráðugur,“ muldraði
Kata en Róbert heyrði
það ekki.
Það var mismikið í
fötunum svo Konráð
stakk upp á því að þau
skiptu öllum berjunum
jafnt á milli sín svo allir
fengju jafn mikið.
„Hann líka?“ sagði
Kata og benti á Róbert.
„Já, allir,“ sagði Konráð.
Kata var bersýnilega ekki
mjög sátt við þá tilhögun
en samþykkti hana þó
með semingi.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
268
Róbert hafði tínt
4 kíló, Lísaloppa 13 kíló,
Kata 11 kíló og Konráð
12 kíló.
Hversu mörg kíló fær
þá hvert þeirra í sinn
hlut ef þau skipta öllum
berjunum jafnt
á milli sín?
Getur þú
hjálpað þeim
að reikna
þetta út
?
?
?
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Mér finnst gaman að dansa ballett
og hipphopp, spila á fiðluna mína,
gera hárgreiðslur og teikna og ég er
mjög mikill dýravinur. Mig langar
mest af öllu í hvolp.
Áttu þér uppáhaldslag? Uppá-
haldslögin mín eru Áhrifin með Átt-
unni, B.O.B.A. með JóaPé og Króla,
og Ég vil það með JóaPé og Chase.
En uppáhaldssöngvara eða -söng-
konu? Ég held mest upp á Sonju Rut
Valdin í Áttunni.
Er langt síðan þú byrjaðir í ballett?
Ég byrjaði í Klassíska listdansskól-
anum þegar ég var að verða fjögurra
ára.
Æfir þú þig stundum að dansa
heima? Já, ég bý til mína eigin dansa
sem ég sýni fjölskyldunni við klass-
íska balletttónlist. Einu sinni fór
mamma að gráta af því henni fannst
dansinn svo fallegur.
Hvað er það skrítnasta sem hefur
komið fyrir þig? Það skrítnasta
var fyrir jólin 2015 þegar ég vakn-
aði um nótt og sá jólasvein teygja
sig inn um gluggann minn til að
setja mandarínu í skóinn. Ég þótt-
ist vera sofandi og þorði ekki að
segja neitt, því þá hefði honum
getað brugðið og dottið niður úr
stiganum sínum.
Hvað gerðir þú skemmtilegast í
sumar? Mér fannst skemmtilegast
að fara á reiðnámskeið og í sumar-
bústað í Fnjóskadal. Þar er húsdýra-
garður sem heitir Dalalíf og þar
mátti halda á kanínum.
Hvar finnst þér fallegast á Íslandi?
Hjá Skógafossi. Mér finnst fossinn
svo fallegur og það er oft regnbogi
í honum. Það leynist líka gullkista á
bak við Skógafoss. Ef ég næði henni,
sem ég get alveg, mundi ég gefa
öllum fátækum gullið.
Bý til mína
eigin dansa
Elna Mattína Matthíasdóttir er átta ára
nemandi í Hólabrekkuskóla. Henni finnst
langskemmtilegast að læra stærðfræði.
Elnu Mattínu finnst fallegast á Íslandi við Skógafoss og veit af gullkistu á bak
við hann. Fréttablaðið/Eyþór ÁrnaSon
Það skrítnasta var
fyrir jólin 2015
ÞEgar ég vaknaði uM nótt
og sá jólasvEin tEygja sig
inn uM gluggann Minn til að
sEtja Mandarínu í skóinn.
ég Þóttist vEra sofandi og
Þorði Ekki að sEgja nEitt.
Nú er sumarlestri barna á vegum
Borgarbókasafnsins, Bókmennta-
borgarinnar og Forlagsins lokið
þetta árið og að endingu var
dregið út nafn eins þátttakanda
sem hlaut veglegan vinning. Í
lukkupottinn datt hún Auður
Hilda Magnúsdóttir. Hún fékk les-
tölvu að gjöf.
auður Hilda, ertu búin að lesa
margar bækur í sumar? Já, ég er
búin að lesa eina bók um kanínur,
Oliver Tvist svo las ég Amma
óþekka og Súper amma líka.
Hver var skemmtilegust? Oliver
Twist.
Hvernig finnst þér dýrabækur?
Góðar. Maður getur séð svo
margt um dýrin og sum af þeim
eru mjög krúttleg. Mér finnst
bækur um dýr skemmtilegar út af
því að ég á hund sem heitir Brúnó
og hann er rosa mjúkur og sætur.
Ef þú mundir skrifa barnabók,
um hvað yrði hún? Börn sem eru
alltaf glöð.
Hefur þú skrifað bók? Já, hún var
um risaeðlutímann.
langar þig að verða rithöfundur
þegar þú verður stór? Mig langar
ekkert sérstaklega að verða rit-
höfundur en kannski. Mest langar
auður Hilda alsæl með lesbrettið.
Lausn á gátunni
tíu kíló??
mig að vera leikskólakennari eða
dýralæknir.
Hlakkar þú til að lesa á lestölv-
unni? Já, ég ætla að lesa barna-
bækur og svo unglingabækur
þegar ég verð stærri.
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r50 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
krakkar
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-A
F
C
0
1
D
D
2
-A
E
8
4
1
D
D
2
-A
D
4
8
1
D
D
2
-A
C
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K