Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 12
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2018
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og
tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Árangursríkar áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.
• Árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði svefni og hreyfingu.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
• Verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.
Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi –
með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016)
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila
framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017 og skal sótt um á vefsvæði
Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Bretland Theresa May, forsætisráð-
herra Bretlands, kynnti í gær áætlun
sína um tveggja ára aðlögunarferli
sem mun taka við þegar Bretland
gengur úr Evrópusambandinu í
mars árið 2019. BBC greinir frá því
að ræðu May hafi verið ætlað að
höggva á hnútinn sem hefur mynd-
ast í viðræðum Bretlands og ESB
en viðræður eiga að hefjast á ný á
mánudag.
May talaði meðal annars um
að Bretland yrði „besti vinur og
sterkasti bandamaður Evrópusam-
bandsins“ eftir útgönguna.
Þá lagði May til að Bretland
myndi greiða Evrópusambandinu
um 2,5 billjónir króna á tveggja ára
tímabilinu eftir útgönguna. Sagðist
forsætisráðherrann vona að hægt
væri að ná samkomulagi sem allra
fyrst. - þea
Bretland verði besti vinur
ESB í kjölfar útgöngunnar
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. FréTTaBlaðið/EPa
norður-Kórea Samskipti Banda-
ríkjanna og Norður-Kóreu hafa ef
til vill ekki verið stirðari síðan á
dögum Kóreustríðsins um miðja
síðustu öld. Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hefur uppnefnt Kim
Jong-un, einræðisherra Norður-
Kóreu, „Eldflaugamanninn“ en sá
síðarnefndi segir Trump elliæran.
Tvímenningarnir hafa jafnframt
hótað að gereyðileggja ríki hvor
annars.
Kim brást í gær við nýjum við-
skiptaþvingunum sem Trump
fyrirskipaði gegn einræðisríkinu
á fimmtudag sem og eldræðu for-
setans á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna frá því á mánudag þar
sem forsetinn hótaði fyrrnefndri
gereyðileggingu ef Kim-stjórnin
myndi ekki stöðva kjarnorkuáætlun
sína.
Sendi Kim frá sér fyrstu tilkynn-
inguna sem nokkur leiðtogi Norð-
ur-Kóreu hefur gefið út á ensku.
„Jómfrúarræða Bandaríkjaforseta
á sviði Sameinuðu þjóðanna veldur
alþjóðasamfélaginu áhyggjum og
er til þess fallin að auka á togstreit-
una á Kóreuskaga. Ég taldi að hann
myndi flytja ræðu ólíka þeim sem
hann flytur venjulega. En hann var
langt frá því að segja nokkuð sem
gæti slakað á togstreitunni heldur
var hann fádæma dónalegur og bull-
aði meira en nokkur Bandaríkjafor-
seti hefur nokkurn tímann gert.“
Norður-Kóreumaðurinn ráð-
lagði Trump að vanda orðaval sitt
og sagði hegðun hans á allsherjar-
þinginu „geðsjúka“. Ræða Trumps
hefði í raun verið stríðsyfirlýsing og
myndi stjórn Kims hugsa vandlega
um hvernig henni bæri að svara.
„Ég veit ekki við hvaða svari
Trump bjóst en svarið verður stærra
en hann hefði getað ímyndað sér. Ég
mun á afdráttarlausan hátt temja
þennan elliæra og geðsjúka Banda-
ríkjamann með eldi mínum,“ segir
enn fremur í yfirlýsingu Kims.
Trump svaraði Kim á Twitter
í gær. „Kim Jong-un frá Norður-
Kóreu, sem er augljóslega geð-
sjúklingur, er sama þótt hann svelti
og drepi þjóð sína. Nú mun reyna á
hann sem aldrei fyrr,“ tísti Banda-
ríkjaforseti.
Frá því Kim tók við taumunum
í Norður-Kóreu, eftir andlát föður
hans, hefur ríkið gert mun fleiri
kjarnorku- og eldflaugatilraunir
en áður. Ri Yong-ho, utanríkisráð-
herra Norður-Kóreu, sagði í gær að
svar Asíuríkisins gæti falist í kjarn-
orkutilraun á Kyrrahafi. „Þetta gæti
orðið aflmesta vetnissprengja sem
prófuð hefur verið á Kyrrahafinu,“
sagði Ri. Ráðherrann bætti því þó
við að hann hefði í raun ekki hug-
mynd um hvernig ætti að svara
Bandaríkjaforseta, það myndi Kim
einn fyrirskipa.
Japanar voru hins vegar ekki
hrifnir af orðum Ri, enda hefur
Norður-Kórea skotið tveimur eld-
flaugum í gegnum japanska lofthelgi
undanfarinn mánuð. „Orð Norður-
Kóreumanna ögra öryggi og stöðug-
leika á svæðinu. Þau eru algjörlega
óásættanleg,“ sagði Yoshihide Suga,
talsmaður ríkisstjórnarinnar.
En á meðan leiðtogar Bandaríkj-
anna og Norður-Kóreu hnakkrífast
reyna Kínverjar og Rússar að róa þá
niður.
„Allir aðilar ættu að halda aftur af
sér frekar en að reyna að ögra hvor
öðrum,“ sagði Lu Kang, talsmaður
utanríkisráðuneytis Kínverja, við
blaðamenn í gær.
Dmitry Peskov, talsmaður ríkis-
stjórnar Vladimírs Pútin í Rúss-
landi, tók í sama streng. Sagði
hann að yfirvöld í Moskvu hefðu
„miklar áhyggjur af þessari vaxandi
spennu“. thorgnyr@frettabladid.is
Eldflaugamaðurinn mætir þeim elliæra
Leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hóta hvor öðrum gereyðileggingu og uppnefna hvor annan. Norður-Kóreumenn segjast
ætla að svara Bandaríkjaforseta með eldi og brennisteini og hóta annarri kjarnorkutilraun. Rússar og Kínverjar reyna að stilla til friðar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafa átt í hatrömmum deilum undanfarið.
Þeir hóta hvor öðrum gereyðileggingu og kalla hvor annan geðsjúkan. NorDicPhoTos/aFP
ÞýsKaland Kristilegir demókratar
(CDU), flokkur Angelu Merkel
kanslara, verða fjölmennastir á
þýska þinginu ef marka má meðal-
tal skoðanakannana sem Financial
Times tekur saman.
Kosið er til þings á morgun en útlit
er fyrir að CDU muni fá 36 prósent
greiddra atkvæða.
Jafnaðarmannaflokkurinn, undir
forystu Martins Schulz, mælist næst-
stærstur með 22 prósenta fylgi. Fjórir
flokkar reka svo lestina með um tíu
prósenta fylgi hver.
Popúlistaflokkurinn AfD mælist
með ellefu prósent, Frjálslyndi
flokkurinn með tíu prósent, Vinstri-
flokkurinn með níu prósent og
Græningjar með átta prósenta fylgi.
Samkvæmt útreikningum Wahl-
recht.de stefnir í að CDU fái 38 pró-
sent þingsæta, Jafnaðarmannaflokk-
urinn 23 prósent og aðrir flokkar um
tíu prósent.
Það þýðir að ríkisstjórn Kristilegra
demókrata og Jafnaðarmannaflokks-
ins rígheldur en ekki er vitað hvort
samstarfið haldi áfram. – þea
Stefnir í öruggan sigur
angela Merkel,
Þýskalands-
kanslari
Allir aðilar ættu að
halda aftur af sér
frekar en að reyna að ögra
hvor öðrum.
Lu Kang, talsmaður utanríkis
ráðuneytis Kína
2 3 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 l a u G a r d a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-9
2
2
0
1
D
D
2
-9
0
E
4
1
D
D
2
-8
F
A
8
1
D
D
2
-8
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K