Fréttablaðið - 23.09.2017, Síða 10

Fréttablaðið - 23.09.2017, Síða 10
Langflestir dómarar í landinu skipaðir af Sjálfstæðismönnum Þrír af hverjum fjórum dómurum í landinu eru skipaðir af Sjálfstæðismönnum sem hafa haft tögl og hagldir í ráðuneyti dómsmála undanfarna áratugi. Ögmundur Jónasson skipaði hins vegar langflesta sitjandi dóm- ara Hæstaréttar. Átta héraðsdómarar verða skipaðir á næstunni. Ekki er enn ljóst hver mun skipa þá. ✿ Ögmundur skipaði meirihluta Hæstaréttardómara Markús Sigur­ björnsson 63 ára Ólafur Börkur Þor­ valdsson 56 ára Karl Axelsson 55 ára Viðar Már Matthíasson 63 ára Greta Baldursdóttir 63 ára Benedikt Bogason 52 ára Þorgeir Örlygsson 65 ára Helgi Ingólfur Jónsson 62 ára Vegna mikils álags í kjölfar hrunsins var dómurum fjölgað tímabundið, sem skýrir fjölda þeirra dómara sem skip­ aðir voru í stuttri ráðherratíð Rögnu Árnadóttur. FRéttABlAðIð/Anton BRInK Skipanir dómara við íslenska dómstóla Héraðsdómstólar (42) l Ráðherrar Sjálfstæðisflokks: 30 l Ráðherra Vinstri grænna: 7 l Utanþingsráðherra: 5 landsréttur (15) l Ráðherra Sjálfstæðisflokks: 15 Hæstiréttur (8) l Ráðherra Vinstri grænna: 5 l Ráðherrar Sjálfstæðisflokks: 3 Átta héraðsdómarar eru á útleið, ekki liggur fyrir hver skipar þá. Olís er stoltur styrktaraðili úrvalsdeildar karla og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta. KOMDU Á VÖLLINN! 23. sept. 23. sept. 24. sept. 24. sept. OLÍSDEILD KVENNA Fram - Fjölnir Selfoss - ÍBV Valur - Grótta Haukar - Stjarnan 24. sept. 24. sept. 24. sept. 24. sept. 25. sept. 25. sept. OLÍSDEILD KARLA Grótta - ÍBV Víkingur - ÍR Fjölnir - Valur Afturelding - Stjarnan Fram - Selfoss Haukar - FH StjórnSýSla Sjálfstæðismenn hafa skipað þrjá af hverjum fjórum dóm- urum sem  sæti eiga við íslenska dómstóla, að sérdómstólum undan- skildum. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skipuðu 30 af 42 héraðsdómurum, alla fimmtán dómara Landsréttar og þrjá af átta dómurum Hæstaréttar. Þetta háa hlutfall dómaraskipana Sjálfstæðismanna skýrist af því að flokkurinn hefur stýrt ráðuneyti dómsmála nær sleitulaust frá lokum níunda áratugar síðustu aldar. Einu frávikin frá yfirstjórn flokksins á málaflokknum eru ráðherratíð Ögmundar Jónassonar og Rögnu Árnadóttur á árunum 2009 til 2013. Ögmundur sat ekki aðgerðarlaus í sinni ráðherratíð og skipaði fimm af þeim átta dómurum sem sitja í Hæstarétti. Þrír ráðherrar hafa setið í ráðuneyti dómsmála frá því Ögmundur lét af embætti; Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ólöf Nor- dal og Sigríður Andersen. Aðeins einn Hæstaréttardómari hefur verið skipaður á þessum tíma; Karl Axelsson, sem skipaður var af Ólöfu Nordal. Með nýjum lögum um dómstóla var dómurum í Hæstarétti fækkað úr tíu í sjö. Dómarar í Hæstarétti eru æviráðnir og fækkun dómara niður í sjö mun því gerast þannig að ekki verður skipaður dómari í Hæstarétt fyrr en réttum fjölda verður náð. Dómararnir eru átta í dag og því verður ekki skipað í stað þess sem næstur hverfur á braut úr réttinum, heldur þess sem yfirgefur dóminn þar á eftir. Hæstaréttardómurum hefur fækkað um þrjá í þessum mánuði. Eiríki Tómassyni var veitt lausn frá embætti fyrsta þessa mánaðar en hann er orðinn 67 ára gamall. Páll Hreinsson staðfesti við Vísi í vikunni að hann snúi ekki aftur í Hæstarétt en hann hefur verið í leyfi frá árinu 2011 vegna starfa sinna við EFTA-dómstólinn. Þá lét Ingveldur Einarsdóttir af störfum síðastliðinn föstudag en hún var settur Hæsta- réttardómari með tímabundna ráðningu. Hún hefur nú verið skip- uð dómari í Landsrétti. Átta héraðsdómarar verða skip- aðir á næstunni í stað þeirra dómara sem flytjast upp í Landsrétt. Ást- ráður Haraldsson er meðal umsækj- enda um eitt þessara embætta og vegna málaferla Ástráðs um skipun dómara í Landsrétt ákvað Sigríð- ur Andersen dómsmálaráðherra að víkja sæti og mun ekki skipa í umræddar dómarastöður. „Telur hún að fyrir hendi séu aðstæður sem séu til þess fallnar að umsækjendur dragi óhlutlægni hennar í efa,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins sem birt var í vikunni. Forsætisráð- herra mun því ákveða hvaða ráð- herra verður falið að skipa þessa átta dómara, ef til þess kemur áður en ný ríkisstjórn verður skipuð. adalheidur@frettabladid.is UtanríkiSmál Guðlaugur Þór Þórðar son utanríkisráðherra hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Fór hann um víðan völl í rúmlega stundarfjórðungs- langri ræðu sinni. „Það sem ég var einna helst að vekja athygli á er að við höfum aldrei haft betra tækifæri til að vinna bug á fátækt í heiminum. Ég ræddi þá líka önnur mál sem tengjast öll, það eru mannréttindamálin, umhverfismál- in, loftslagsmálin, fríverslunarmálin og öryggismálin,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við Fréttablaðið. Ráðherra lýsti jafnframt ánægju sinni með vinnu framkvæmda- stjórnar Sameinuðu þjóðanna og hvatti til þess að stofnunin yrði gerð skilvirkari svo hún ætti auðveldara með að takast á við þau verkefni sem hún á að sinna. Í ræðu sinni sagði Guðlaugur einn- ig frá því að í upphafi 20. aldar hefði Ísland verið með fátækari ríkjum Evrópu, nú sé Ísland eitt af þeim rík- ustu. „Leið Íslands frá fátækt til ríki- dæmis er skólabókardæmi um mátt fríverslunar. Við fengum aðgengi að stórum erlendum mörkuðum þar sem við gátum selt vörur okkar og þannig snerum við stöðunni okkur í hag.“ – þea Besta tækifærið til að vinna bug á fátækt Guðlaugur Þór Þórðar­ son, utan­ ríkis áðherra 2 3 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 3 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D 2 -A 5 E 0 1 D D 2 -A 4 A 4 1 D D 2 -A 3 6 8 1 D D 2 -A 2 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.