Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 10
Langflestir dómarar í landinu
skipaðir af Sjálfstæðismönnum
Þrír af hverjum fjórum dómurum í landinu eru skipaðir af Sjálfstæðismönnum sem hafa haft tögl og hagldir
í ráðuneyti dómsmála undanfarna áratugi. Ögmundur Jónasson skipaði hins vegar langflesta sitjandi dóm-
ara Hæstaréttar. Átta héraðsdómarar verða skipaðir á næstunni. Ekki er enn ljóst hver mun skipa þá.
✿ Ögmundur skipaði meirihluta Hæstaréttardómara
Markús Sigur
björnsson
63 ára
Ólafur
Börkur Þor
valdsson
56 ára
Karl Axelsson
55 ára
Viðar Már
Matthíasson
63 ára
Greta
Baldursdóttir
63 ára
Benedikt
Bogason
52 ára
Þorgeir
Örlygsson
65 ára
Helgi Ingólfur
Jónsson
62 ára
Vegna mikils álags í kjölfar hrunsins
var dómurum fjölgað tímabundið, sem
skýrir fjölda þeirra dómara sem skip
aðir voru í stuttri ráðherratíð Rögnu
Árnadóttur. FRéttABlAðIð/Anton BRInK
Skipanir dómara við
íslenska dómstóla
Héraðsdómstólar (42)
l Ráðherrar Sjálfstæðisflokks: 30
l Ráðherra Vinstri grænna: 7
l Utanþingsráðherra: 5
landsréttur (15)
l Ráðherra Sjálfstæðisflokks: 15
Hæstiréttur (8)
l Ráðherra Vinstri grænna: 5
l Ráðherrar Sjálfstæðisflokks: 3
Átta héraðsdómarar eru á útleið,
ekki liggur fyrir hver skipar þá.
Olís er stoltur styrktaraðili úrvalsdeildar karla
og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta.
KOMDU
Á VÖLLINN!
23. sept.
23. sept.
24. sept.
24. sept.
OLÍSDEILD KVENNA
Fram - Fjölnir
Selfoss - ÍBV
Valur - Grótta
Haukar - Stjarnan
24. sept.
24. sept.
24. sept.
24. sept.
25. sept.
25. sept.
OLÍSDEILD KARLA
Grótta - ÍBV
Víkingur - ÍR
Fjölnir - Valur
Afturelding - Stjarnan
Fram - Selfoss
Haukar - FH
StjórnSýSla Sjálfstæðismenn hafa
skipað þrjá af hverjum fjórum dóm-
urum sem sæti eiga við íslenska
dómstóla, að sérdómstólum undan-
skildum.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
skipuðu 30 af 42 héraðsdómurum,
alla fimmtán dómara Landsréttar og
þrjá af átta dómurum Hæstaréttar.
Þetta háa hlutfall dómaraskipana
Sjálfstæðismanna skýrist af því að
flokkurinn hefur stýrt ráðuneyti
dómsmála nær sleitulaust frá lokum
níunda áratugar síðustu aldar. Einu
frávikin frá yfirstjórn flokksins á
málaflokknum eru ráðherratíð
Ögmundar Jónassonar og Rögnu
Árnadóttur á árunum 2009 til 2013.
Ögmundur sat ekki aðgerðarlaus
í sinni ráðherratíð og skipaði fimm
af þeim átta dómurum sem sitja
í Hæstarétti. Þrír ráðherrar hafa
setið í ráðuneyti dómsmála frá því
Ögmundur lét af embætti; Hanna
Birna Kristjánsdóttir, Ólöf Nor-
dal og Sigríður Andersen. Aðeins
einn Hæstaréttardómari hefur
verið skipaður á þessum tíma; Karl
Axelsson, sem skipaður var af Ólöfu
Nordal.
Með nýjum lögum um dómstóla
var dómurum í Hæstarétti fækkað
úr tíu í sjö. Dómarar í Hæstarétti eru
æviráðnir og fækkun dómara niður
í sjö mun því gerast þannig að ekki
verður skipaður dómari í Hæstarétt
fyrr en réttum fjölda verður náð.
Dómararnir eru átta í dag og því
verður ekki skipað í stað þess sem
næstur hverfur á braut úr réttinum,
heldur þess sem yfirgefur dóminn
þar á eftir.
Hæstaréttardómurum hefur
fækkað um þrjá í þessum mánuði.
Eiríki Tómassyni var veitt lausn
frá embætti fyrsta þessa mánaðar
en hann er orðinn 67 ára gamall.
Páll Hreinsson staðfesti við Vísi í
vikunni að hann snúi ekki aftur í
Hæstarétt en hann hefur verið í leyfi
frá árinu 2011 vegna starfa sinna við
EFTA-dómstólinn. Þá lét Ingveldur
Einarsdóttir af störfum síðastliðinn
föstudag en hún var settur Hæsta-
réttardómari með tímabundna
ráðningu. Hún hefur nú verið skip-
uð dómari í Landsrétti.
Átta héraðsdómarar verða skip-
aðir á næstunni í stað þeirra dómara
sem flytjast upp í Landsrétt. Ást-
ráður Haraldsson er meðal umsækj-
enda um eitt þessara embætta og
vegna málaferla Ástráðs um skipun
dómara í Landsrétt ákvað Sigríð-
ur Andersen dómsmálaráðherra
að víkja sæti og mun ekki skipa í
umræddar dómarastöður. „Telur
hún að fyrir hendi séu aðstæður sem
séu til þess fallnar að umsækjendur
dragi óhlutlægni hennar í efa,“ segir
í tilkynningu á vef stjórnarráðsins
sem birt var í vikunni. Forsætisráð-
herra mun því ákveða hvaða ráð-
herra verður falið að skipa þessa
átta dómara, ef til þess kemur áður
en ný ríkisstjórn verður skipuð.
adalheidur@frettabladid.is
UtanríkiSmál Guðlaugur Þór
Þórðar son utanríkisráðherra hélt
ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í gær. Fór hann um víðan
völl í rúmlega stundarfjórðungs-
langri ræðu sinni.
„Það sem ég var einna helst að
vekja athygli á er að við höfum aldrei
haft betra tækifæri til að vinna bug á
fátækt í heiminum. Ég ræddi þá líka
önnur mál sem tengjast öll, það eru
mannréttindamálin, umhverfismál-
in, loftslagsmálin, fríverslunarmálin
og öryggismálin,“ segir Guðlaugur
Þór í samtali við Fréttablaðið.
Ráðherra lýsti jafnframt ánægju
sinni með vinnu framkvæmda-
stjórnar Sameinuðu þjóðanna og
hvatti til þess að stofnunin yrði gerð
skilvirkari svo hún ætti auðveldara
með að takast á við þau verkefni sem
hún á að sinna.
Í ræðu sinni sagði Guðlaugur einn-
ig frá því að í upphafi 20. aldar hefði
Ísland verið með fátækari ríkjum
Evrópu, nú sé Ísland eitt af þeim rík-
ustu. „Leið Íslands frá fátækt til ríki-
dæmis er skólabókardæmi
um mátt fríverslunar.
Við fengum aðgengi
að stórum erlendum
mörkuðum þar sem
við gátum selt vörur
okkar og þannig snerum
við stöðunni okkur í
hag.“ – þea
Besta tækifærið
til að vinna
bug á fátækt
Guðlaugur
Þór Þórðar
son, utan
ríkis áðherra
2 3 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-A
5
E
0
1
D
D
2
-A
4
A
4
1
D
D
2
-A
3
6
8
1
D
D
2
-A
2
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K