Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 78
Verslunin Ramen Lab á Grettisgötu í Reykja-vík vekur eftirtekt. Í versluninni sjá við-skiptavinir ferskar núðlur framleiddar í
þar til gerðum vélum. Þar er einnig
hægt að kaupa misoseyði og súrsað
grænmeti, framandi sælgæti frá Japan,
origamipappír og fallega keramik.
Að versluninni standa þau Kunsang
Tsering og Erna Pétursdóttir. Fyrir reka
þau veitingastaðinn Ramen Momo
við Tryggvagötu þar sem þau selja
ramennúðlusúpur og -rétti. Kunsang
nam listina að útbúa ramennúðlur og
-seyði í Osaka í Japan.
„Ramennúðlur og -súpur eru frá
Japan. Fyrsti ramenstaðurinn var
opnaður fyrir um hundrað árum í
Tókýó. Í dag eru um 30 þúsund slíkir
veitingastaðir í Japan,“ segir Kunsang
og nefnir að ramensúpur geti verið
afar misjafnar á milli landshluta í
Japan. Seyðið sé í ýmsum útgáfum en
súpurnar innihaldi allar seyði, núðlur,
meðlæti, egg.
Núðlurnar sjálfar eru gerðar úr
eggjum og hveiti. „Við notum lífrænt
hveiti, það sama og er notað í Brauð
og co hér rétt hjá,“ segir Erna frá.
Á Íslandi segir Kunsung vinsælastar
ramensúpur með tontoksuseyði og
kjúklingi eða svínakjöti og ramensúp-
ur með misoseyði og kimchi (súrsað
kál). Hann er hrifinn af íslensku hrá-
efni.
„Þegar ég fór til Japans að læra að
gera ferskar núðlur tók ég sýni af fersku
íslensku vatni með mér. Sýrustig vatns-
ins skiptir miklu máli og íslenskt vatn
er virkilega gott í ramennúðlur.
Fersk íslenskt vatn, íslenskt salt og
lífrænt hveiti verða að frábærri vöru
sem er á engan hátt hægt að bera
saman við þurrar pakkanúðlur,“segir
Kunsang.
Kunsang nefnir að mest krefjandi
við gerð ramennúðla séu einmitt gæði
núðlanna sjálfra. „Það var þess vegna
sem við ákváðum að opna Ramen Lab,
af einskærri nauðsyn. Seyðið þarf líka
að vera í miklum gæðum. Fólk sem vill
gera gott seyði með svína- eða kjúkl-
ingakjöti þarf að sýna því verki þolin-
mæði. En fyrir byrjendur þá mælum
við með því að kaupa misogrunn hjá
okkur í Ramen Lab. Þá tekur aðeins
nokkrar mínútur að undirbúa gerð
súpunnar og miso er líka mjög hollt.“
Erna tekur undir með Kunsang
að staðinn hafi þau opnað af nauð-
syn. „Þegar þú ert með lítinn veit-
ingastað á borð við Ramen Momo
og þú býrð á eyju, þá getur það skeð
einn daginn að báturinn sem átti
að færa þér núðlur til matargerðar
missir úr ferð. Staðurinn átti upphaf-
lega að vera vinnusvæði okkar en við
ákváðum að besta leiðin til að sýna
hvað við værum að gera væri að opna
hann fyrir fólki. Viðbrögðin hafa
verið mjög góð og þótt ekki allir skilji
hvernig eigi að elda núðlur þá finnst
okkur gaman að kenna og leiðbeina
fólki sem kemur til okkar,“ segir Erna.
Erna og Kunsang nefna að núðlurn-
ar sem þau framleiða séu bæði ódýrari
og hollari kostur en þær sem fást í
matvöruverslunum. „Við framleiðum
ferskar og lífrænar núðlur og þær eru
ódýrari en þær sem fást í matvöruversl-
unum eða 183 krónur skammturinn,“
segir Erna.
Hvað er gott að eiga í skápnum til að
útbúa ramennúðlur?
„Ef ætlunin er að gera súpu þá er
gott að eiga seyði, núðlur og meðlæti
svo sem kjúklingabringu, svínakjöt,
rækjur, tofu eða eitthvað slíkt, egg og
vorlauk. En svo er ágætt að muna að
það þarf ekki endilega að bera núðl-
urnar fram í súpu,“ segir Erna og þau
Kunsang gefa lesendum uppskrift að
núðlusúpu til að spreyta sig á heima.
Japönsk matargerðarlist í sókn
Verslunin Ramen Lab er ákaflega stílhrein og skemmti-
lega uppsett.
Núðlurnar eru gerðar nokkrum sinnum á dag.
Framandi japanskt sælgæti sem gaman er að bragða á.
Kit Kat með grænu tei.
Forvitnilegt frá Japan, origamipappír, skemmtilegir
matprjónar og fleira.
Erna Pétursdóttir í Ramen Momo á Tryggvagötu. FRéTTabLaðið/aNToN bRiNK
Heimalöguð ramennúðlusúpa:
Meðlæti í súpu:
Sjóðið kjúklingabringu með
sneið af engifer og klípu af salti.
Þegar bringan er soðin er hún
skorin í sneiðar. Þú þarft aðeins
100 grömm í hverja súpuskál.
Sjóðið egg í 8 mínútur og skerið
það til helminga.
seyði og núðlur:
Hitið vatn að suðu í tveimur
pottum.
Í annan pottinn setur þú
núðlurnar og sýður í eina og hálfa
mínútu.
Slökktu undir hinum pottinum,
settu stóra matskeið af miso-
grunni í vatnið og lokið yfir.
Í súpuskálina:
Hellið misoseyðinu í skál með
núðlunum. Bætið kjúklingnum
ofan á og soðna egginu til hliðar.
Það er gott að bæta við grænum
lauk.
Kunsang Tsering
og Erna Péturs
dóttir hafa opnað
nýstárlega verslun á
Grettisgötu í Reykja
vík. Staðurinn heitir
Ramen Lab og þar
eru seldar í fyrsta
sinn ferskar ramen
núðlur úr lífrænu
hráefni framleiddar á
staðnum. Fyrir reka
þau veitingastaðinn
Ramen Momo við
Tryggvagötu þar
sem þau selja ramen
núðlusúpur og rétti.
Kunsang nam listina
að útbúa ramennúðl
ur og seyði í Osaka í
Japan.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-C
D
6
0
1
D
D
2
-C
C
2
4
1
D
D
2
-C
A
E
8
1
D
D
2
-C
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K