Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 42
Bananakúlur með
rjómasúkkulaði
(16 - 20 stykki)
1 pakki Haustkex (rúmlega 225 g)
1 banani
3-4 msk. niðursoðin karamellu-
mjólk (caramelized milk)
Pínulitlir sykurpúðar eftir smekk
250 g rjómasúkkulaði brætt yfir
vatnsbaði
Myljið Haustkex í matvinnsluvél
og hellið svo í skál. Stappið
bananann og setjið í skálina með
kexmylsnunni. Setjið 3 msk. af
karamellumjólk saman við, til að
byrja með. Síðast eru sykurpúðar
settir saman við. Blandið öllu
vel saman. Ef ykkur finnst þurfa,
má bæta annarri matskeið af
karamellu mjólk við.
Rúllið kúlur úr deiginu. Kælið
kúlurnar í ísskáp í tvær klukku-
stundir eða í frysti í klukkustund.
Bræðið rjómasúkkulaði yfir
vatnsbaði, veltið kúlunum upp úr
því, raðið á plötu með bökunar-
pappír og látið súkkulaðið harðna.
Skreyta má kúlurnar með fallegu
kökuskrauti og líka er hægt að
dreifa smá kexmylsnu yfir þær.
Gott er að gera það áður en súkku-
laðið verður hart.
Það kemur líka ljómandi vel út að
nota smátt saxað súkkulaði í þessar
kúlur og auðvitað má nota annað
súkkulaði en rjómasúkkulaði.
Geymið í frysti.
Samverustund yfir matarstússi í eldhúsinu er dýrmætur fjöl-skyldutími,“ segir Theodóra
sem í starfi sínu sem heimilis-
fræðikennari þekkir vel einskæran
áhuga barna á matargerð og
bakstri. „Börn njóta þess að búa til
eitthvað sem þeim þykir gott og
það eykur með þeim hugrekki að
smakka nýja hluti þegar þau hafa
sjálf handfjatlað hráefnið og átt
þátt í mat reiðslunni.“
Theodóra kennir 4. til 7. bekk-
ingum Melaskóla að elda sér mat
og segir staðreynd að flest börn
séu lítt gefin fyrir fisk. „Það er helst
að þau vilji þá fiskinn sem pabbi
eldar eða pabbi veiðir, en ég er að
byrja með fisklotur í skólanum til
að kenna þeim að matreiða fisk og
kynnast honum betur, og sjá hvort
það hafi áhrif.“
Á nammidögum er Theodóra
sjálf veik fyrir blandi í poka og
súkkulaðirúsínum, en hún bakar
reyndar upp á hvern dag.
„Ég baka á hverjum einasta degi
þegar ég kem heim úr bökunar-
kennslunni og er alltaf að prófa
eitthvað nýtt. Ég er víst bakari af
lífi og sál og forvitin um allt sem
tengist bakstri. Samkennarar mínir
og fjölskyldan njóta svo afrakst-
ursins,“ segir hún og brosir yfir
girnilegum sælgætiskúlum sem
hún gefur hér uppskrift að.
„Það sem ég geri er yfirleitt fljót-
legt og einfalt og flest hráefnin eru
til í skápunum heima. Það er smá-
vegis hollusta í þessum kúlum líka,
sem er banani. Athugið bara að
kúlurnar eru mjög ávanabindandi
og erfitt að hætta að úða þeim í sig.
Njótið vel!“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Ávanabindandi
fjölskyldugott
Nammidagur er
til að njóta, segir
Theodóra Sig-
urðardóttir, heim-
ilisfræðikennari
í Melaskóla. Hún
vonar að fjölskyld-
ur landsins dundi
sér saman í eld-
húsinu um helgar
og búi til heima-
gerð sætindi.
Theodóra gaf út bókina Matargatið árið 2014 þar sem hún sýndi hvernig börn geta matreitt gómsæta rétti með eða án aðstoðar. Hún vinnur nú að bók um sínar eigin gómsætu súkkulaðikökur.
MYNDIR/ANTON BRINK
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Sérblað um jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna
og viðskiptavina kemur út 30. september.
Áhugasamir hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel: +354 512 5429
jonivar@365.is
Í þessu blaði er hægt að kaupa auglýsingar sem og kynningar.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . s e P T e M B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-C
D
6
0
1
D
D
2
-C
C
2
4
1
D
D
2
-C
A
E
8
1
D
D
2
-C
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K