Fréttablaðið - 23.09.2017, Side 36
Þær Nína Rún Bergs-dóttir, Halla Ólöf Jóns-dóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Glódís Tara hafa staðið saman og rætt málin sín á milli
frá því í vor. Þær segja Robert ekki
hafa reynt að hafa samband við
þær til að tjá iðrun eða játa brot sín
síðan málið kom upp.
„Ekkert hefur heyrst frá honum
nema fyrst um sinn í gegnum lög-
fræðing hans Jón Steinar Gunn-
laugsson og þá óbeint í gegnum
fjölmiðla og samfélagsmiðla,“ segir
Anna.
Þær nefna að hins vegar hafi
nokkrir einstaklingar talað máli
hans á opinberum vettvangi. „Og
sagt okkur að hætta þessu væli og
læra að fyrirgefa,“ segir Glódís.
Hafði mörg tækifæri
Þær segja alltof fáa stjórnmála-
menn hafa lagt sig fram um að heyra
þeirra sjónarmið.
Sigríði Andersen dómsmálaráð-
herra segja þær hafa haft mörg tæki-
færi til þess að gera betur í málinu.
„Okkur finnst að hún hefði getað
með svo mörgum leiðum auðveldað
baráttu okkar. Hún hefði í fyrsta
lagi getað kynnt okkur þau rétt-
indi sem við höfðum á því að fá öll
þessi gögn opinber. Hún hefur gert
lítið úr þeim ráðamönnum sem
hafa spurt spurninga um þetta mál
og sérstaklega gagnvart Þórhildi
Sunnu Ævarsdóttur, þingmanni
Pírata, sem vildi fá svör við því hvað
verður gert ef gögn í máli Önnu
Katrínar væru týnd eða skemmd,“
segir Glódís og Anna tekur undir.
„Það er okkar upplifun að hún í
raun hefur barist gegn okkur. Hún
þakkar síðan sjálfri sér fyrir
að koma upp um hversu
gallað kerfið í kringum
uppreist æru sé og ofan
á það þá stærir hún sig
af því að hún hafi verið
fyrst til þess að gagn-
rýna það. Það skiptir
ekki máli hver er fyrst-
ur,“ segir Anna.
Einkennandi Nína
segir forsætisráð-
herra Bjarna
B e n e -
dikts-
s o n
vera í
m ó t s ö g n
við sjálfan sig. „Hann
telur sig vera að vernda
þolendur með því að birta
ekki gögnin á meðan það
voru einmitt við brotaþolar
sem óskuðum og kölluðum
hvað hæst eftir þessum gögnum.“
Þær segjast allar telja að um leið
og Bjarna hafi verið gefnar upplýs-
ingar um að faðir hans væri einn
af meðmælendum barnaníðings
hefði hann átt að láta vita og stíga
til hliðar. Ekki vegna laga eða reglna
um meðferð mála. Heldur af virð-
ingu við þolendur. „Nú þegar hann
er spurður um þetta mál þá svarar
hann því að því sé lokið og að ekki
verði rætt um það meir, svona svör
eru einkennandi fyrir þöggun og við
hörmum þau,“ segir Halla.
Á ekki að vera flokksbundið
Allar segjast þær ekki vilja taka þátt
í nokkurs konar pólitík. Þær geti
hins vegar ekki látið það ósagt
að framkoma Sjálfstæðismanna
hafi verið áberandi slök í þeirra
garð. „Við viljum ekki taka opin-
bera afstöðu gagnvart póli tískum
flokkum. Enginn Sjálfstæðisflokks-
maður hefur hins vegar séð sér fært
að hafa samband við okkur brota-
þola Roberts þrátt fyrir ítrekaðar
yfirlýsingar um samúð til okkar,“
segir Glódís.
Þeim þótti sárt að sjá hóp þing-
manna ganga út af fundi stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar til að sjá
ekki gögnin. „Okkur þótti það sárt
og óbein skilaboð um vanvirðingu
þegar allir Sjálfstæðismenn ásamt
Pawel hjá Viðreisn gengu út af fundi
þegar birta átti meðmælendabréfin
fyrir uppreist æru Roberts. Svona
mál á ekki að vera flokksbundið og
er mjög furðuleg staða fyrir sam-
félagið,“ segir Halla.
Anna segir að brotaþola eigi
heldur ekki nota í pólitískum til-
gangi. „Við sættum okkur ekki við
þannig umræðu og munum svara
henni um hæl.“
Vilja ábyrgð
Nína minnir á að það eigi ekki
að hræðast samtal við þolendur.
„Brotaþolar eiga heldur ekki að
gleymast, það á ekki að hræðast það
að tala við þá og leita eftir þeirra
skoðunum, við þurfum ekki þessa
vernd sem ráðamenn þykjast vera
að veita okkur sem er í raun bara
algjör þöggun á okkur og þöggun á
aldrei rétt á sér. Við óskum einungis
eftir að ráðamenn taki ábyrgð, að
þeir meðtaki fyrir alvöru stöðuna
sem þeir eru í og skilji alvarleika
hennar en geri ekki lítið úr henni
og öðrum eingöngu til þess að upp-
hefja sjálfa sig.“
Særandi og niðrandi
Særandi athugasemdir hafa birst
í þeirra garð. „Sérstaklega á vef-
miðlum, en við látum það ekki á
okkur fá og ef eitthvað er þá styrkir
það okkur enn frekar í að sýna fram
á hversu mikilvæg hún sé, þessi bar-
átta #höfumhátt,“ segir Nína.
Halla tekur þó fram að þær
athugasemdir sem þær hafi fengið
um að opinbera ætti öll gögn er
varða uppreist æru og upplýsingar
um meðmælendur hafi slegið þær
mest.
„Við upplifðum þessar athuga-
semdir sem bæði niðrandi og mikla
vanvirðingu við okkur sem brota-
þola,“ segir Halla og finnur til dæmi
um ummæli sem þær sættu sig ekki
við:
Hvað varðar
okkur um það Hver það
er og Hvers vegna? eina
ástæðan er sú að þeir sem
Hæst láta vilja berja á
þeim.
nú er Hálf þjóðin
að Heimta að fá upplýs-
ingar um Hvaða menn það
voru, eins og Hana varði
eittHvað um það.
það eru til alvar-
legri brot Heldur en
þessi.
„Þessi ummæli komu frá Brynj-
ari Níelssyni, fyrrverandi formanni
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,“
segir Halla. Glódís nefnir að Brynjar
hafi aldrei talað við þær. „Jafnvel
þó að ein okkar hafi skrifað honum
opinbert bréf á Facebook. En hann
gaf sér þó tíma í að svara föður einn-
ar okkar og finnst okkur það undir-
strika viðhorf hans til okkar sem
kvenkyns brotaþola,“ segir hún.
Stanslaus barátta
Þær glíma allar við alvarleg eftir-
köst ofbeldisins. „Þetta er stanslaus
barátta fyrir okkur allar, áfallið sem
við urðum fyrir situr í líkamanum
og við þurfum alltaf að vera við-
búnar því að það brjótist út á ein-
hvern hátt, hvort sem það er í líkam-
legum verkjum, andlegu ójafnvægi
eða þreytu og jafnvel uppgjöf.
Stuðningur frá okkar nánustu hefur
þó hjálpað okkur gífurlega í þessari
rússíbanareið sem seinustu þrír
mánuðir hafa verið,“ segir Glódís.
„Ég var nýbyrjuð á námskeiði í lok
ágúst þar sem ég ætlaði loksins að
sinna sjálfri mér og mínu áhugamáli,
en eftir því sem umræðan reis og þar
til ríkisstjórnin sprakk þá sprakk líka
eitthvað innra með mér en ég held að
líkaminn hafi sagt stopp, hingað og
ekki lengra og enn og aftur þá þarf ég
að taka mér pásu frá daglegu og eðli-
legu lífi og hugsa fyrst og fremst um
sjálfa mig,“ segir Anna.
„Áfallastreituröskunin hefur
blossað upp aftur eftir fréttirnar
sem við fengum í sumar. Hún lýsir
sér sem svakalegur kvíði, dapurleiki,
erfiðleikar með svefn, ég næ ekki að
halda fókus og ég á það til að gleyma
ýmislegu. Það var eitt skiptið sem ég
var að hafa mig til fyrir vinnuna að
ég byrjaði að kasta upp út af maga-
sárum sem höfðu myndast út af
kvíða. Svo hefur það gerst að ég hafi
brostið í grát upp úr þurru,“ segir
Nína.
„Ég upplifi aukinn kvíða yfir
hlutum sem reyndust mér ekki
erfiðir áður og ágerist það eftir því
sem tíminn líður, ég á erfiðara með
að sofa og þreytan og álagið hefur
vissulega áhrif á hugann og skapið
sem sveiflast meira upp og niður en
áður. Einnig finn ég fyrir einbeiting-
arskorti og hef töluvert minni þolin-
mæði dagsdaglega en ég er vön. Ég
kannast einnig við grátköst eins og
Nína talar um og hef oft hugsað um
að ég þyrfti að taka mér frí frá vinnu
þó það væri ekki nema til að ná að
hvílast betur. Ég var svo heppin að
vera í sumarfríi þegar málið kom
upp í sumar en ég hef aldrei upplif-
að áður að mæta þreyttari til vinnu
eftir sumarfrí en ég var fyrir fríið,“
segir Halla.
Baráttan þess virði
Það sem gerir baráttuna einhvers
virði í þeirra huga er að umræða um
kynferðisbrot er að opnast og breyt-
ast. „Það er ákveðinn heiður að fá að
vera þáttur í því að stíga þetta stóra
skref með samfélaginu. Að loksins
eftir öll þessi ár sé hlustað á brota-
þola kynferðisofbeldis á Íslandi,“
segir Nína.
„Sigurinn eða áfanginn er ekki
bara okkar sem stöndum á bakvið
#höfumhátt baráttuna heldur er
þetta í raun áralöng barátta sem
fékk loksins það pláss sem hún á
skilið. Allir þeir brotaþolar sem
hafa stigið fram og sagt sína sögu,
aðstandendur brotaþola sem hafa
sýnt stuðning í verki og orðum, allir
þeir sem komu að skipulagningu
druslugöngunnar síðan hún byrjaði
og gáfu okkur stelpunum allt það
rými sem við óskuðum eftir til þess
að flytja ræðu og hafa hátt á Austur-
velli í sumar, allir fréttamiðlar sem
hafa fjallað um málið á ópólitískan
hátt og dregið fram sannleikann í
þessum málum og allir þeir þing-
menn og -konur sem hafa stigið
fram og sýnt með gjörðum en ekki
fölskum orðum að þau standi á
bakvið okkur. KÞBAVD hópur öfga-
femínista sem vill brjóta feðraveldið
á bak aftur, Þórdís Elva hjá Fáðu já
og svo margir fleiri,“ segir Anna.
Þær nefna að baráttunni sé langt í
frá lokið. Núna eigi að nota tækifær-
ið til breytinga. Mikilvægast hefur
verið í þeirra huga að lögum verði
breytt sem snúa að uppreistri æru
barnaníðinga. Að barnaníðingar
geti ekki fengið lögmannsréttindi
sín aftur. Þá vilja þær að löggjöf um
kynferðisbrot verði endurskoðuð
í heild sinni. Markmið þeirra er að
svona lagað geti aldrei gerst aftur.
Halla nefnir að fjölmiðlar hafi
spilað stórt hlutverk í málalyktum.
Þær vilja hvetja brotaþola til að vera
óhrædda við að segja sína skoðun.
Þær séu einnig tilbúnar að tala við
aðra brotaþola, hvort sem það er
vegna Roberts eða annarra. Þær
heiti fullum trúnaði og stuðningi.
Vilja ekki taka þátt
í pólitískum slag
Glódís Tara, Halla Ólöf og Anna Katrín Snorradóttir tóku þátt í druslugöngunni í ár. Mynd/AníTA EldjÁrn
Nína Rún Bergsdóttir,
Halla Ólöf Jónsdóttir,
Anna Katrín Snorra-
dóttir og Glódís Tara,
sem Robert Downey
beitti kynferðisof-
beldi, lýsa upplifun
sinni af atburðarás
sem hófst í vor þegar
í ljós kom að hann
hefði hlotið uppreist
æru. Þær segjast ekki
vilja að brotaþolar
séu notaðir í pólitísk-
um tilgangi.
ég byrjaði
að kasta
upp út af
magasárum
sem Höfðu
myndast
út af
kvíða.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-D
2
5
0
1
D
D
2
-D
1
1
4
1
D
D
2
-C
F
D
8
1
D
D
2
-C
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K