Fréttablaðið - 23.09.2017, Qupperneq 41
Levi’s í Kringlunni. Levi’s á Íslandi selur heitustu gallabuxur í heimi, gallaskyrtur, boli og gallajakka á lægstu verðum Levi’s í Norður-Evrópu. MYNDIR/HANNA
Því fylgir mikið stolt að vinna fyrir Levi’s enda er saga Levi Strauss & Co samofin sögu
heimsins, allar götur síðan fyrstu
gallabuxur veraldar litu dagsins
ljós árið 1873,“ segir Lilja Bjarna-
dóttir, eigandi Levi’s á Íslandi.
Saga frægasta gallabuxnamerkis
veraldar er sannarlega heillandi og
í blússandi takti við samtímann.
„Levi’s saumar ekki einungis
æðislegar gallabuxur heldur er
alltaf með hugann við náttúruna
og stendur í fremstu röð fatafram-
leiðanda þegar kemur að umhverf-
isvitund,“ segir Lilja um gallabuxn-
arisann sem er mjög umhugað um
vistvæna framleiðsluhætti. „Levi’s
vinnur í lausnum sem vernda
vistkerfi jarðar, enda liggur fyrir
að vatnsskortur blasi við í sumum
heimshlutum eftir fáein ár. Því
hefur Levi’s dregið verulega úr
notkun vatns við framleiðslu á
gallabuxum og notar eingöngu
endurunnið vatn við framleiðslu
á sumum gerðum gallabuxna. Að
auki sendir Levi’s bómullarbændur
í sinni þjónustu á námskeið til að
veita minna vatni á bómullarakr-
ana sem rækta bómull sem síðan
er notuð í vefnað.“
Í ást á Móður Jörð hefur Levi’s
notað meira en 12 milljón endur-
vinnanlegar plastflöskur í vefnað
fyrir Levi’s 511 Skinny-gallabuxur,
Levi’s Trucker-gallajakka og Levi’s
Boyfriend Skinny kvengallabuxur.
„Levi’s leggur ríka áherslu á
að neytendur lengi líftíma hvers
buxna pars með því að þvo buxurn-
ar sjaldnar, alltaf á röngunni, aldrei
á heitara þvottakerfi en 30°C, með
fljótandi þvottaefni og með því að
setja þær aldrei í þurrkara. Með því
endast gallabuxurnar mun lengur,
sem og liturinn, og þar með hefur
gallabuxnaeigandinn lagt sitt af
mörkum til umhverfisvitundar og
vatnssparnaðar,“ upplýsir Lilja.
Mannréttindi hafa frá upphafi
verið forgangsmál hjá Levi’s.
„Í kreppunni miklu, sem skall
á haustið 1929, varð gríðarlegt
atvinnuleysi í Bandaríkjunum en
þá tók Levi’s þann pól í hæðina að
segja engum upp heldur minnka
frekar starfshlutfall starfsfólksins.
Það var fáheyrt í þá daga þótt sú
nálgun sé algengari í dag,“ segir
Lilja.
Besta verð Levi’s í Evrópu
Levi’s rekur þrjár verslanir á
Íslandi; í Kringlunni, Smáralind og
á Glerártorgi á Akureyri.
„Mörgum kemur á óvart að
Levi’s er eitt af fáum heimsþekkt-
um vörumerkjum sem er hag-
stæðara að kaupa hér heima en í
Skandinavíu. Þannig kosta dýrustu
Levi’s gallabuxurnar 14.990 hér og
Levi’s gallajakkar eru á 13.900, sem
er mun ódýrara en í flestum Levi’s
verslunum í Norður-Evrópu,“ upp-
lýsir Lilja.
Hún segir Levi’s fyrst og fremst
vera unglingamerki en í því felist
ástæða þess að Levi’s sé sívinælt
um allan heim.
„Þegar einu sinni er farið í
Levi’s gallabuxur er erfitt að segja
bless við þær. Frægðarsól Levi’s
hefur heldur aldrei dofnað og eru
Levi’s-táknin þrjú: Levi‘s 501, Levi’s
Trucker gallajakkinn og Levi’s
gallaskyrtan alltaf til og vinsæl sem
aldrei fyrr, enda hæstmóðins nú að
klæðast gallaefni frá toppi til táar
(e. denim on denim).“
Levi’s er fyrirmynd annarra
gallabuxnaframleiðenda og braut-
ryðjandi í efnisnotkun og hönnun.
„Levi’s eltir ekki ólar við aðra
heldur ryður veginn með nýjung-
um sem aðrir taka svo upp. Merkið
er trútt sínum uppruna og fram-
leiðir enn Levi’s 501; upprunalega
sniðið sem lagði heiminn að velli.
Síðan hafa orðið til margar útgáfur
af þeim buxum, eins og Levi’s 501
fyrir konur, og nú er einnig hægt
að fá 501 með teygjuefni. Margar
aðrar buxnagerðir hjá Levi’s eru
einnig með teygju, sem gerir
Levi’s mýkri og þægilegri en áður
þekktist,“ útskýrir Lilja.
Nýjasta viðbótin við Levi’s í
Kringlunni er klæðskeraverk-
stæðið Levi’s Tailor Station.
„Þar styttum við gallabuxur
gegn vægu gjaldi en höfum líka
þjálfað starfsfólk okkar í að setja
göt, gadda, bætur eða hvaðeina á
fatnaðinn til að klæðskerasníða
hann að óskum eigandans. Besti
gallabuxnahvíslari landsins starfar
líka hjá Levi’s, til að velja það sem
passar hverjum og einum best.“
Gallabuxnahvíslari hjá Levi’s
Þær eru heitar, heimsfrægar og alltaf í tísku; allt frá árinu 1873 þegar Levi Strauss sigraði heiminn með
fyrstu gallabuxum heimsins, Levi’s 501. Levi’s snýst þó ekki bara um gallabuxur, heldur ást á jörðinni.
Gallabuxnahvíslarinn Joshua Reauben David kann á sniðin sem smellpassa
og meistarinn Reynaldo Cruz sér um að skreyta, gata og stytta á Tailor Station.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 3 . S e p t e m b e r 2 0 1 7
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-D
2
5
0
1
D
D
2
-D
1
1
4
1
D
D
2
-C
F
D
8
1
D
D
2
-C
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K