Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 46
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Ríkiskaup óska eftir að ráða innkaupafulltrúa í fullt starf á
Þjónustusvið. Starfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi og
felst m.a. í miklum samskiptum við viðskiptavini Ríkiskaupa.
Meðal helstu verkefna eru:
• Innflutningur, tollskýrslugerð og verðútreikningur
• Innkaup og gerð sölureikninga.
• Samskipti vegna innkaupaverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Að lágmarki 3 ára reynsla af innflutningi og innkaupaferlum
• Mjög gott tölvulæsi og tölvukunnátta
• Reynsla af innkaupa-, sölu- og tollakerfum nauðsynleg; t.d. Navision/Dynamics.
• Reynsla af Oracle kerfi er kostur
• Nákvæmni, skipulagshæfileikar og samskiptahæfni
Leitað er að einstaklingi sem er agaður, sjálfstæður og
nákvæmur í vinnubrögðum, sýnir frumkvæði og er fær um
að tjá sig í ræðu og riti. Tungumálakunnátta auk íslensku er
að lágmarki enska.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins
og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Davíðsson,
forstöðumaður Þjónustusviðs í síma: 530 1419 eða á net-
fanginu: ragnar.davidsson@rikiskaup.is.
Áhugasamir leggi inn umsókn í afgreiðslu Ríkiskaupa eða sendi
póst á ofangreint netfang fyrir eigi síðar en 9. október n.k.
Ríkiskaup er ráðgjafar- og þjónustustofnun sem veitir opinberum stofnunum
og fyrirtækjum almenna þjónustu og ráðgjöf á sviði innkaupa. Ríkiskaup an-
nast framkvæmd útboða, innkaupa, rammasamninga og eignasölu fyrir opin-
bera aðila. Ríkiskaup leggja metnað sinn í að ætíð séu við störf vel þjálfaðir
og hæfir starfsmenn sem sinna starfi sínu af fagmennsku, alúð og ánægju.
Ríkiskaup eru eftirsóttur vinnustaður fyrir metnaðarfulla einstaklinga með
menntun, reynslu og hæfni til að takast á við áhugaverð og krefjandi verkefni.
Innkaupafulltrúi
Trésmíðaverkstæði óskar eftir smið eða laghentum
manni í samsetningar á gluggum og hurðum.
Einnig ýmis tilfallandi störf .
Upplýsingar
í síma 894 3321
VERSLUNARSTJÓRI
JACK & JONES í Kringlunni leitar að kraftmiklum, skipulögðum
og jákvæðum einstaklingi til að gegna starfi verslunarstjóra.
Um er að ræða fullt starf í skemmtilegu og lifandi umhverfi.
Helsta hlutverk verslunarstjóra er að halda utan um daglegan
rekstur, bera ábyrgð á sölu og þjónustu við viðskiptavini og
ásýnd verslunarinnar og leiða hóp starfsmanna.
HÆFNISKRÖFUR:
• Reynsla af verslunarstjórn er kostur
• Þjónustulund
• Reynsla af sölustörfum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Framundan eru breytingar á versluninni þar sem hún
verður stækkuð og fær nýja ásýnd.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október nk. Hægt er að
sækja um starfið á www.bestseller.is. Allar frekari upplýsingar
veitir Sólrún Hjaltested mannauðsstjóri í síma 5754000.
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 3 . S e p T e m b e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-C
8
7
0
1
D
D
2
-C
7
3
4
1
D
D
2
-C
5
F
8
1
D
D
2
-C
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K