Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 54
Lausar stöður hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
SÉRNÁMSSTAÐA Í HEIMILISLÆKNINGUM
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir sérnámsstöðu í heimilislækningum lausa til umsóknar.
Aðalstarfsstöð er á Egilsstöðum og yfirlæknir þar er næsti yfirmaður.
Frekari upplýsingar um stöður og umsókn
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags
Íslands. Umsóknum skal skila á eyðublöðum sem fást á vef
Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðs-
stjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og
starfsleyfi og ef við á um rannsóknir og greinaskrif.
Öllum umsóknum verður svarað. Tóbaksnotkun er ekki heimil á
vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá
Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm
heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
HSA hefur langa reynslu af kennslu læknanema, kandídata
og sérfræðinema í heimilislækningum. Námið verður byggt á
marklýsingu fyrir sérnámslækna í heimilislækningum. Við útfærslu
marklýsingarinnar verður lögð áhersla á þann fjölbreytileika
sem héraðslækningar kalla eftir og samtímis að tryggja aðgengi
nemans að skipulagðri hópkennslu / námi fyrir sérfræðinemana.
Staðan er auglýst til þriggja ára og á námstímanum er gert ráð
fyrir námsdvöl á heilsugæslu í Skotlandi og Norður-Noregi, eina
viku á hvorum stað. Kennslustjóri HSA aðstoðar nemann við
skipulag sjúkrahússhluta námsins með áherslur héraðslækningar
(Rural Medicine) í huga.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennar lækningar
• Heilsuvernd
• Vaktþjónusta
• Þátttaka í kennslu læknanema og kandídata
Hæfnikröfur
• Almennt lækningaleyfi er skilyrði
• Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni
og sveigjanleiki
• Vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu)
• Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og faglegur metnaður
• Íslenskukunnátta áskilin.
Nánari upplýsingar veita:
Hrönn Garðarsdóttir, heimilislæknir og kennslustjóri,
S. 470-3000 og 865-4710, netf. hronn@hsa.is
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga,
s. 470-3050 og 860-6830, netf. petur@hsa.is,
Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri,
s. 470-3050 og 895-2488, netf. emils@hsa.is.
Umsóknarfrestur er til 16.10. 2017
og staðan laus frá 01.01. 2018 eða eftir samkomulagi.
www.hsa.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2017.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna B. Hansen, framkvæmda-
stjóri umhverfissviðs, í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um
starfið.
Byggingarfulltrúi hjá Mosfellsbæ
MOSFELLSBÆR LEITAR AÐ BYGGINGARFULLTRÚA Á UMHVERFISSVIÐ
Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á framkvæmd opinbers byggingareftirlits í samræmi við gildandi lög (nr. 160/2010)
og reglugerðir. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi og hefur eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og
annast önnur verkefni sem kveðið er á um í mannvirkjalögum. Byggingarfulltrúi starfar á umhverfissviði og leiðir
faglega þróun byggingarmála innan sviðsins.
Helstu verkefni felast í samskiptum við hönnuði, verktaka og íbúa í tengslum við framkvæmdir í sveitarfélaginu.
Þá annast byggingarfulltrúi útgáfu byggingarleyfa, yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta, verkfræði- og
séruppdrátta og útgáfu vottorða og skráningu mannvirkja.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Prófgráða í verkfræði, tæknifræði, arkitektúr eða
byggingarfræði skilyrði
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
Að lágmarki fimm ára starfsreynsla skv. 25. gr.
mannvirkjalaganna
Byggingarfulltrúi skal hafa löggildingu sem
hönnuður sbr. 25. gr. mannvirkjalaga
Góð tölvukunnátta og þekking á forritum skilyrði
Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum
byggingarleyfum er æskileg
Framúrskarandi samskiptahæfileikar eru
nauðsynlegir
Hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
Sjálfstæð, frumkvæði og öguð vinnubrögð eru
nauðsynleg
Önnur skilyrði sbr. ákvæði mannvirkjalaga
Ráðgjafi í Hlaðgerðarkot,
meðferðarheimili Samhjálpar
Samhjálp óskar eftir að ráða áfengis- og vímuefnaráðgjafa
á meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot. Um er að ræða fullt starf.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga og metnað til að
sinna endurhæfingu áfengis- og vímuefnaneytenda.
Hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi og reynsla
af meðferðarstarfi.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún M. Einarsdóttir
í 566 6140 eða gudrun@samhjalp.is
Umsóknir sendist fyrir 9. október nk. á netfangið
samhjalp@samhjalp.is merkt Ráðgjafi í Hlaðgerðarkoti.
MÁLARI ÓskAst
Rótgróið fyrirtæki með trausta verkefnastöðu, óskar eftir
að ráða framtíðarstarfsmann.Gengur starfsmaðurinn til liðs
við samhentan hóp iðnaðarmanna, sem vinna að krefjandi
en jafnframt fjölbreyttum og spennandi verkefnum.
Áhugasamir eru beðnir um að hringja í Björgvin (897-7983)
eða senda ferilskrá/upplýsingar á retturmadur@gmail.com
Virkt starfsmannafélag og góður starfsandi.
100 % trúnaði er heitið. Heimasíða fyrirtækisins er
vatnstjon.is, en þar má kynna sér starfsemi fyrirtækisins.
Verkefnastjóri
Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) leitar að verkefna-
stjóra í hálft starf á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá og með
1. nóvember 2017. Verkefnastjóri sér um daglegan rekstur og
utanumhald um starfsemi félagsins, tekur virkan þátt í þróun
á nýju vinnuumhverfi forstöðumanna, annast upplýsingagjöf
og hefur umsjón með fundum og fræðslumálum, auk þess
að vinna að hagsmunamálum félagsmanna, þar með talið
kjaramálum.
Helstu verkefni
• Rekstur félagsins, innheimta félagsgjalda og félagatal
• Virk þátttaka í mótun og þróun á nýju vinnuumhverfi
forstöðumanna
• Miðlun upplýsinga og þjónusta við forstöðumenn varðandi
réttindamál og við úrlausn álitaefna
• Eftirlit með framkvæmd launasetningar, fylgjast með og kalla
eftir endurskoðun launa og kjara vegna breytinga á störfum
forstöðumanna eða launaþróun almennt
• Viðhald og þróun vefsíðu www.ffr.is
• Undirbúningur og utanumhald félags- og fræðslufunda með
samstarfsaðilum, ritun fundargerða
• Samstarf við Kjara- og mannauðssýslu ríkisins
Menntunar og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af verkefnastjórnun og á sviði mannauðs- og
kjaramála
• Þekking á starfsumhverfi forstöðumanna nauðsynleg
• Góð íslenskukunnátta
• Skipulagshæfileikar og hæfni til að sinna fjölbreyttum
verkefnum
• Öguð vinnubrögð og lipurð í mannlegum samskiptum,
• Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
• Góð tölvukunnátta, þekking á sviði vefumsjónar er kostur
Félag forstöðumanna ríkisstofnana er samstarfs- og
hagsmunafélag og tengiliður við stjórnvöld varðandi málefni
félagsmanna og stofnana. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur
reynslutími sé sex mánuðir frá ráðningu. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi aðildarfélags BHM.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir
hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með
6. október 2017 og sendist á ffr@ffr.is. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Upplýsingar veitir Björn Karlsson formaður Félags
forstöðumanna ríkisstofnana á ffr@ffr.is. Sjá einnig www.ffr.is
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-D
7
4
0
1
D
D
2
-D
6
0
4
1
D
D
2
-D
4
C
8
1
D
D
2
-D
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K