Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 57

Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 57
Starf sérfræðings á meðferðar- og fóstursviði Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf sem felur meðal annars í sér: • Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturfor- eldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra fagaðila vegna skipulags og framkvæmdar þjónustu við börn í tilteknum úrræðum. • Umfjöllun og afgreiðslu umsókna sem felur meðal annars í sér mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra fagaðila um umönnunar-/meðferðarþörf barna og viðeig- andi þjónustu. • Leiðbeiningar og gæðaeftirlit við gerð og framkvæmd meðferðarmarkmiða og -áætlana vegna barna á fóstur- eða meðferðarheimilum, m.a. börn sem glíma við alvarlega hegðunar- og/eða tilfinningaerfiðleika. Menntun og reynsla: • Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði. • Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga, matsaðferðum, greiningarhugtökum og -tækjum og fjölbreyttum aðferðum í meðferðarvinnu með börnum og foreldrum. • Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi, sem og af gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur er æskileg. Persónulegir eiginleikar: • Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnarmiðað. • Lögð er áhersla á góða samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila. • Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli. • Krafa um góða enskukunnáttu og æskileg kunnátta í einu Norðurlandamáli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndar- stofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttar- félags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna. Umsóknarfrestur er til og með 15. október n.k. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Barnaverndarstofu í síma 530 2600 (www.bvs.is). Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða netfangið bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Barnaverndarstofa Leikskóli Seltjarnarness • Deildarstjóri á leikskóladeildina Holt í Seltjarnarneskirkju, fullt starf. • Leikskólakennari, fullt starf. • Leikskólaleiðbeinandi, fullt starf. Grunnskóli Seltjarnarness • Þroskaþjálfi, fullt starf í skóla og frístundaheimili. • Stuðningsfulltrúar, fullt starf og hlutastörf. Nánari upplýsingar um störfin og skil umsókna má finna á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is – Störf í boði Umsóknarfrestur er til 1. október næstkomandi. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Seltjarnarnesbær Laus störf seltjarnarnes.is Ljósleiðarinn er nútímalegur vinnustaður þar sem fagmennska og góður starfsandi er í fyrirrúmi. Við leitumst við að vera í fremstu röð hvað varðar jafnrétti, öryggi, vinnuumhverfi og möguleikum til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð. Ljósleiðarinn býður upp á frábær verkfæri fyrir starfsmenn eins og háþróuð kerfi, snjalltæki, öpp og sjálfsafgreiðslu. Sem þjónustustjóri yrðir þú hluti af teymi sem ber ábyrgð á tæknilegri þjónustu við viðskiptavini Ljósleiðarans. Þú myndir leiða og styðja við teymið, þróa þjónustuferla, veita tæknilega aðstoð og eiga samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila Ljósleiðarans. Ef þú hefur ástríðu fyrir tækni, leysir mál og og gengur í verkin þá viljum við heyra í þér. Áhugi á fjarskiptum og menntun sem nýtist í starfi er kostur. Við tökum á móti umsóknum á ljosleidarinn.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Umsóknarfrestur er til og með 2.október. Frekari aðstoð og upplýsingar veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@ljosleidarinn.is. Ljósleiðarinn er vörumerki Gagnaveita Reykjavíkur þar sem fjölbreyttur hópur 60 starfsmenn auk ótal verktaka vinna saman að því að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum aðgengi að hágæða þjónustu á opnu aðgangsneti Ljósleiðarans. BRENNUR ÞÚ FYRIR NÝJUSTU TÆKNI OG ÞJÓNUSTU? —— ÞJÓNUSTUSTJÓRI 2 3 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D 2 -C 3 8 0 1 D D 2 -C 2 4 4 1 D D 2 -C 1 0 8 1 D D 2 -B F C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.