Fréttablaðið - 23.09.2017, Qupperneq 80
Þann 22. febrúar árið 1942 sviptu rithöf-undurinn Stefan Zweig og kona hans Lotte Alt-mann sig lífi á heimili sínu í Brasilíu. Þangað
höfðu þau flust einu og hálfu ári
fyrr, landflótta undan uppgangi
þýskra nasista sem innlimað höfðu
heimaland skáldsins, Austurríki.
Zweig fylgdist úr fjarska með Evr-
ópu brenna í átökum seinni heims-
styrjaldarinnar og sökk sífellt dýpra
í þunglyndi sem að lokum leiddi til
þessa óyndisúrræðis.
Frægðarsól Stefans Zweig reis hæst
á þriðja og fjórða áratugnum. Á þeim
árum sendi hann frá sér ævisögur
nokkurra stórmenna úr mannkyns-
sögunni, sem nutu gríðarlegra vin-
sælda víða um lönd. Í seinni tíð er
hans þó einkum minnst fyrir endur-
minningabók sína „Veröld sem var“
og nokkrar sögur sem liggja einhvers
staðar á milli þess að vera stuttar
skáldsögur og langar smásögur.
Kunnust þeirra er sagan Schachno-
velle frá árinu 1941, sem hlaut nafnið
Manntafl í íslenskri útgáfu Þórarins
Guðnasonar árið 1951.
Manntafl fjallar um nasisma og
verður vart lesin öðruvísi en í ljósi
persónulegrar reynslu höfundarins.
Sagan hefst um borð í farþegaskipi
á leið til Buenos Aires. Meðal far-
þega er oflátungurinn Czentovic,
heimsmeistari í skák. Vellríkir
ferðafélagarnir vilja ólmir spreyta
sig gegn meistaranum, sem lætur til
leiðast gegn vænni þóknun. Skák-
meistarinn á ekki í neinum vand-
ræðum með andstæðinga sína, þar
til dularfullur farþegi blandar sér í
leikinn og kemur öllum á óvart með
skáksnilld sinni og leiftursnöggum
leikjum.
Í einangrun
Skákmaðurinn slyngi, sem aldrei er
kallaður annað er Dr. B, segir einum
ferðafélaganum sögu sína. Hann
hafði verið stuðningsmaður austur-
rísk-ungverska keisaraveldisins
og því tekinn höndum af Gestapo
þegar Austurríki var innlimað í
Þriðja ríkið. Við tók margra mánaða
einangrunarvist, þar sem Dr. B var
lokaður inni í galtómum fangaklefa
milli yfirheyrslna. Eftir nokkurra
mánaða innilokun tókst honum að
stela bók úr vasa eins fangavarðanna.
Það reyndist vera rit með frægum
skákum úr sögunni.
Til að halda sönsum í einangr-
uninni drekkur fanginn í sig efni
bókarinnar og innan skamms kann
hann sérhverja skák hennar utan-
bókar. Því næst fer hann að tefla
í huganum við sjálfan sig í sífellu.
Að lokum breytist skákin í hreina
þráhyggju, þar sem fanginn hugsar
ekki um annað en skák í vöku sem
draumi, uns hann fær taugaáfall og
er sendur á spítala, þaðan sem hann
losnar úr fangavistinni.
Viðmælandinn hlustar dolfallinn
á sögu Dr. B, en sannfærir hann um
að etja á nýjan leik kappi við heims-
meistarann hrokafulla. Þeir Czento-
vic setjast að tafli. Dr. B leikur sér-
hvern leik hratt og fumlaust, en
verður óþreyjufullur eftir því sem
lengra líður á milli leikja meistar-
ans, enda sér hann ótal leiki fram í
tímann. Czentovic skynjar óþolin-
mæði mótherjans og tekur að draga
skákina á langinn. Austurríkismað-
urinn verður að lokum gjörsamlega
viðþolslaus, hættir að greina á milli
stöðunnar á taflborðinu og stjórn-
lausra upprifjana sinna á gömlum
skákum. Hann missir stjórn á sér og
verður að lokum að játa sig sigraðan.
Söguþráður Manntafls er sterkur
og grípandi, enda er sagan oft talin
besta verk Zweig. Manntafl hefur
verið sett á svið víða um lönd og má
þar nefna eftirminnilega uppsetn-
ingu þess í Borgarleikhúsinu fyrir
rúmum áratug, þar sem Þór Tulinius
lék öll hlutverk. Í tengslum við þá
sýningu var rifjuð upp vinsæl tilgáta
um tengingu sögunnar við Ísland.
Árið 1964 komu út endurminn-
ingar landkönnuðarins Vilhjálms
Stefánssonar, sem þá var nýlega
látinn. Glöggir lesendur hnutu
um atriði í frásögn Vilhjálms sem
minntu á fléttuna í Manntafli og það
svo mjög að jafnvel væri ekki um til-
viljun að ræða. Kenning þessi gekk
manna á milli í Reykjavík næstu árin,
en vakti fyrst verulega athygli þegar
Gylfi Gröndal sendi frá sér viðtals-
bók árið 1981, þar sem Jón Ólafsson
hæstaréttarlögmaður greindi frá
henni og jók við frásögn Vilhjálms
Stefánssonar fleiri upplýsingum um
lífshlaup frænda síns Björns Páls-
sonar Kalmans.
Eftirsótt undrabarn
Björn, sem tók upp Kalmans-nafnið
á fullorðinsárum, var sonur Páls
Ólafssonar, skáldsins ástsæla, en Páll
var hálfsjötugur þegar Björn fædd-
ist árið 1883. Björn gekk í Latínu-
skólann í Reykjavík og útskrifaðist
þaðan vorið 1904. Þar fékk hann
áhuga á skák og tók skjótum fram-
förum. Útskriftarvorið tefldi hann
við erlendan ferðalang, William
Ewart Napier að nafni og hafði
betur. Napier þessi var þá einna
kunnastur skákmanna vestanhafs
og á leið til Bretlands, þar sem hann
sigraði einmitt á fyrsta Breska meist-
aramótinu í skák, sem haldið var þá
um sumarið.
Fregnin af óþekkta skólapiltinum
sem lagði stórmeistarann barst vita-
skuld víða og þar á meðal til rektors
Harvard-háskóla, Nathaniels Shaler.
Sá var mikill skákáhugamaður og
hafði mikinn hug á að gera Harvard
að stórveldi á skáksviðinu. Þegar
Vilhjálmur Stefánsson hélt á fund
Shalers til að afla fjárstuðnings fyrir
vísindaleiðangur til Íslands, kvikn-
aði því sú hugmynd að slá tvær flugur
í einu höggi: Vilhjálmur fengi styrk-
inn en í staðinn tæki hann að sér að
lokka Íslendinginn unga vestur um
haf gegn loforði um skólastyrk og
farareyri. Reyndist skákáhugi rekt-
orsins afdrifaríkur fyrir fræðimanns-
feril Vilhjálms Stefánssonar, sem hóf
í kjölfarið að beina athygli sinni að
norðurslóðum í rannsóknum sínum
í stað hitabeltisins sem flestir mann-
fræðingar voru uppteknir af.
Þegar hér var komið sögu hafði
Björn Pálsson innritast í verkfræði
við Kaupmannahafnarháskóla, en
féllst þó skjótt á að taka gylliboðinu
frá Harvard. Sigldu þeir Vilhjálmur
saman yfir Atlantshafið, en á leiðinni
mun Björn hafa teflt við tvo sterka
skákmenn og sigrað fyrirhafnarlítið.
Þegar til Harvard var komið reið
áfallið yfir. Skákmenn við skólann
voru lítt hrifnir af áformum Shalers
rektors og töldu ástæðulaust að
styrkja liðið með einhverjum lukku-
riddara ofan frá Íslandi. Þeir lögðust
yfir reglur og komust að þeirri niður-
stöðu að þar sem Björn hafði verið
skráður nemandi við annan háskóla,
gæti hann ekki orðið löglegur kepp-
andi fyrir hönd Harvard fyrr en að
ári liðnu.
Sem vænta mátti féll unga mann-
inum þetta afar þungt. Hann taldi
sig illa svikinn og gat ekki hugsað sér
að setjast á skólabekk þar sem hann
væri ekki velkominn. Þess í stað hélt
hann á Íslendingaslóðir í Kanada og
vann fyrir sér með ýmsum hætti,
bæði við blaðamennsku og verka-
mannavinnu. Síðar flutti Björn aftur
heim til Íslands, þar sem hann varð
sér úti um lögmannsréttindi og starf-
aði sem slíkur.
Eftir höfnunina í Harvard lagði
Björn taflmennskuna að mestu á
hilluna og töldu flestir að ástæðan
væri hin miklu vonbrigði með lyktir
mála varðandi skákliðið. Í æviminn-
ingum sínum sagði Vilhjálmur
Stefánsson þó að fleira hefði búið
að baki. Björn hafi játað fyrir sér að
hann hefði áhyggjur af geðheilsu
sinni, þar sem hann myndi hverja
einustu skák sem hann hefði teflt.
Skákirnar hrúguðust þannig upp í
kolli hans og leituðu sífellt meira á
allar hugsanir. Hafði Björn lesið sér
nokkuð til um sálfræði og taldi þetta
vísbendingu um að honum væri
hætt við að missa vitið.
Björn stóð að mestu við þessa
ákvörðun sína að koma ekki aftur
nálægt skák og lét íþróttina sig
litlu varða eftir að til Íslands kom.
Einhverjar sögur gengu meðal
Reykvíkinga um gömul skákafrek
kappans, en hann gaf aldrei neitt
út á það. Þannig fylgdi frásögn Jóns
Ólafssonar að dóttir Björns hafi fyrst
heyrt af skákafrekum föður síns að
honum látnum, þegar æviminningar
Vilhjálms Stefánssonar komu út.
Fyrirmynd eða tilviljun?
Þegar frásögn Vilhjálms er lesin
ásamt viðbótum Jóns Ólafssonar,
er ekki erfitt að sjá líkindin við ein-
staka þætti í sögunni Manntafli. Í
báðum tilvikum kemur óþekktur
skákmaður kunnum stórmeistara
í opna skjöldu og ferð í farþega-
skipi kemur við sögu. Lykilatriðið
er þó augljóslega að í báðum frá-
sögnum snýr afburðasnjall skák-
maður baki við íþrótt sinni af ótta
við að skákþráhyggjan leiði hann
til sturlunar.
Skömmu eftir útgáfu bókar Gylfa
Gröndal birti sagnfræðingurinn
og skákáhugamaðurinn Garðar
Sverrisson langa grein í Lesbók
Morgunblaðsins um sama efni og
annar skákforkólfur, Guðmundur
G. Þórarinsson, hefur skrifað í sömu
veru. Niðurstaða þeirra beggja er
sú að Stefan Zweig hafi líklega haft
örlög Björns Ólafssonar í huga
þegar hann ritaði Manntafl.
Á hitt ber þó að líta að líkindin
ná ekki nema til takmarkaðra þátta.
Saga Zweigs fjallar í raun ekki nema
að nokkru leyti um skák, en þeim
mun fremur um nasisma og sálfræði-
legar afleiðingar einangrunarvistar.
Erfitt er einnig að sjá hvað-
an Zweig hefði átt að fá hinar
nákvæmu upplýsingar um lífshlaup
Björns. Stuðningsmenn kenningar-
innar benda á að Zweig hafi ferðast
um Bandaríkin 1913-14 og dvalið
við nokkra háskóla, þar á meðal
Harvard. Jón Ólafsson stingur jafn-
vel upp á að Vilhjálmur og Zweig
gætu hafa kynnst.
En þá ber á það að líta að saga
Björns var flestum hulin, þar til ævi-
minningar Vilhjálms Stefánssonar
komu út. Shaler rektor var látinn
veturinn 1913-14, ólíklegt verður
að telja að Vilhjálmur hefði ekki
getið um kunningsskap við heims-
kunnan rithöfund í æviminningum
og fráleitt að hann hafi sleppt að
geta um meint tengsl sögu Bjarnar
við Manntafl, hvað þá ef hann var
heimildarmaðurinn. Rökréttast er
því að líta á líkindin með sögunum
tveimur sem hreina tilviljun, þótt
vissulega séu rökréttustu skýr-
ingarnar sjaldnast þær skemmti-
legustu.
Atskák hugans
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um uppruna
Manntafls.
…hann myndi hverja
einuStu Skák Sem hann
hefði teflt.
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r40 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-B
9
A
0
1
D
D
2
-B
8
6
4
1
D
D
2
-B
7
2
8
1
D
D
2
-B
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K