Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 82

Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 82
551 3485 • udo.is Davíð útfararstjóri Óli Pétur útfararstjóri Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, dr. Frosti Sigurjónsson læknir, Þinghólsbraut 68, Kópavogi, lést á heimili sínu 7. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu. Jón Valur Frostason María Hrafnsdóttir Fáfnir Frostason Edda Freyja Frostadóttir Guðmundur R. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Húnbogi Þorsteinsson lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 14. september. Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 25. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið – Endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. Erla Ingadóttir Þorsteinn Húnbogason Védís Húnbogadóttir Snorri Bergmann barnabörn og langafabörn. Þó ég hafi unnið lengst sem auglýsingamyndateiknari sýni ég ekkert frá þeim ferli, bara því sem ég hef tekið fyrir sjálfan mig,“ segir Guðmundur Ingólfsson ljós- myndari, staddur í sal á Þjóðminjasafn- inu þar sem sýning á völdum verkum hans verður opnuð í dag klukkan 14. Samtímis kemur út bók með mynd- unum. Á eigin vegum. Ljósmyndir 1967-2017 er heiti hvorutveggja, sýningar og bókar. Ein sería er að hluta til úr bók sem Torfu- samtökin gáfu út 1986 og sýnir gömlu húsin í miðbænum. „Svo nýtti ég tæki- færið, af því ég átti það efni, og smellti af sömu húsum 25 árum seinna, til að sýna framfarir og afturfarir,“ segir Guð- mundur. Þaðan sem við stöndum blasir við ein af gangnamanni. „Ég fór í réttir norður í Svartárdal fyrir 46 árum. Þetta er eina myndin úr þeirri seríu. Svona úlpur áttu allir,“ segir myndasmiðurinn. „Allar myndir segja sitt,“ bendir hann á. „Það er kosturinn við ljósmyndina að því eldri sem hún verður því merkilegra verður skráningarhlutverk hennar.“ Meðal þess sem Guðmundur mynd- aði eru sjoppur. „Sjoppur urðu til á stríðsárunum til að þjóna hermönn- unum, enda er orðið komið úr ensku. Í enda áttunda áratugarins voru sumar orðnar fræg óðul, eins og Simmasjoppa á Grímsstaðaholtinu. Árin '88 og '89 tók ég mig til og festi nokkrar þeirra á stórar filmur. En sjoppurnar liðu undir lok af því 10/11 tók þeirra hlutverk yfir.“ Enn er Guðmundur að og ástríðan er fyrir hendi. „Maður dugir ekki í þessu starfi ef maður hefur ekki áhuga, annars finnur maður sér eitthvað annað,“ segir hann. Á baksíðu bókarinnar er mynd af honum með fyrstu myndavélina. „Ég byrjaði 16 ára. Keypti mér Leicu, það flottasta sem til var. Var í sveit og vann fyrir vélinni í fjóra mánuði,“ rifjar hann upp og kveðst enn nota filmuvélar. „Mér finnst ég vera að svíkjast um ef ég nota ekki filmur. Framkalla sjálfur? Já, auð- vitað, það er ekki flóknara en að baka köku!“gun@frettabladid.is Allar myndir segja sitt Sýningin Á eigin vegum, með ljósmyndum eftir Guðmund Ingólfsson, verður opnuð í dag í Þjóðminjasafninu í tilefni 50 ára ferils hans. Einnig kemur út bók með sömu myndum. Maður dugir ekki í þessu starfi ef maður hefur ekki áhuga, annars finnur maður sér eitthvað annað. segir Guðmundur. Fréttablaðið/Hanna Úr eldhúsglugga á Grettisgötu. Ástkær móðir okkar, Elísabet Matthildur Árnadóttir Meistaravöllum 19, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. sept. sl. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 28. september kl. 13.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Jökull Már Valdimarsson Gróa Jóna Valdimarsdóttir Olsen Jóna Gróa Valdimarsdóttir Guðný Þóra Valdimarsdóttir Guðrún Valdimarsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Anna Björgúlfsdóttir frá Neskaupstað, lést á heimili sínu, Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut, mánudaginn 18. september. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 28. september kl. 13.00. Óliver Úlfar Hermannsson Sigrún Eyjólfsdóttir Margrét Jónsdóttir Marteinn Steinar Jónsson Hjalti H. Hjaltason Úlfhildur S. Úlfarsdóttir og fjölskyldur. 2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r42 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót 2 3 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D D 2 -7 9 7 0 1 D D 2 -7 8 3 4 1 D D 2 -7 6 F 8 1 D D 2 -7 5 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.