Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Qupperneq 4
Vikublað 14.–16. febrúar 20174 Fréttir
HVAR ER SÓSAN?
Það er ekkert betra en steiktur fiskur í raspi og nýjar kartöflur.
Nema kannski steiktur fiskur í raspi, nýjar kartöflur og nóg af remolaði.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Bíða enn
Enn er beðið eftir niðurstöð-
um úr lífsýnarannsóknum vegna
dauða Birnu Brjánsdóttur. Þetta
sagði Grímur Grímsson, yfir-
maður rannsóknardeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, við RÚV á mánudag. Thomas
Frederik Møller Olsen situr í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um
aðild að dauða Birnu.
Umrædd lífsýni voru tek-
in úr fatnaði og munum sem
haldlagðir voru við leit í Polar
Nanoq eftir að skipinu var snúið
við til Íslands. Að sögn Gríms
var Thomas ekki yfirheyrður
um helgina og ekki liggur fyrir
hvenær hann verður yfirheyrður
næst. Gæsluvarðhaldsúrskurð-
urinn rennur út á fimmtudag og
þá verður tekin ákvörðun um
hvort farið verði fram á lengra
varðhald yfir honum.
Þ
etta er búin að vera mjög
sársaukafull vika,“ seg-
ir kokkaneminn Birkir Ívar
Gunnlaugsson sem lenti
í alvarlegu vinnuslysi fyr-
ir viku þegar rjómasprautu-gas-
hylki sprakk með þeim afleiðing-
um að hann brenndist illa í andliti,
á höndunum og skaddaðist á auga.
Betur fór en á horfðist í fyrstu og eru
læknar bjartsýnir á að Birkir nái full-
um bata með tímanum.
Gashylkið sprakk
Þegar slysið varð, um kvöldmatar-
leytið síðastliðinn þriðjudag, var
Birkir að útbúa sósu í stórum stálp-
otti en margir áttu pantað borð á
veitingastaðnum þar sem hann
vinnur umrætt kvöld.
Þegar sósan var nánast tilbúin,
orðin hnausþykk og mallaði á 240
gráðu hita, ákvað Birkir að byrja að
fylla á gashylki í sprautubrúsum
sem notaðir eru á staðnum fyrir hin-
ar ýmsu sósur, frauð og rjóma. Gas-
hylkin voru geymd í hillu fyrir ofan
eldavélina.
„Ég færði sósupottinn til hliðar og
rétti höndina upp til að sækja gas-
hylki. Við það dettur eitt hylkið ofan
í pottinn. Ég vissi strax að það gæti
sprungið og var að velta því fyrir mér
hvað ég ætti að að gera þegar það
sprakk, nokkrum sekúndum síðar.“
Sprengingin var gríðarlega kraft-
mikil. Sósan slettist um allt eldhús,
þrjá metra upp í loftið, og hellu-
borðið, þar sem potturinn stóð, möl-
brotnaði. Birkir, sem stóð beint fyrir
framan pottinn, brenndist mjög illa
þegar heit sósan fór yfir hann.
„Ég byrjaði bara að öskra. Sárauk-
inn var svo gríðarlega mikill og mér
fannst eins og það væri að kvikna í
andlitinu á mér. Um leið og þetta
gerist fer rafmagnið af svo við sem
vorum í eldhúsinu sáum ekkert.
Vinnufélagar mínir reyndu að gera
sitt besta til að hlúa að mér en það
var erfitt í myrkrinu.“
Augað bólgnaði
Uppi varð fótur og fit í eldhúsinu, þar
sem ekkert nema ópin í Birki heyrð-
ust í myrkrinu en hann hljóp sjálf-
ur beint undir vaskinn til að kæla
brunasárin. „Síðan byrjaði augað á
mér að bólgna og þá var ég alveg viss
um að ég væri orðinn blindur.“
Í framhaldinu kom lögregla og
sjúkrabíll á vettvang og Birkir var
fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi
en með viðkomu á Hvolsvelli
þar sem slysið varð úti á landi.
„Sjúkraflutningamennirn-
ir sem komu fyrstir á vettvang
voru lengi að átta sig á því
hvernig ætti að meðhöndla
brunasárin. Þeir fundu í fyrstu
heldur ekkert til að kæla mig,“
segir Birkir, sem er gríðarlega
ósáttur við þessa fyrstu hjálp.
„Ég þurfti að biðja þá ít-
rekað um að setja eitthvað
yfir andlitið á mér og held að
þeir hafi einfaldlega ekki vit-
að hvernig ætti að bregðast við
svona brunaáverkum. Að lok-
um fundu þeir þó Burn Free-
grisjur sem þeir lögðu yfir and-
litið á mér.“
Gleymdist að kæla hand-
legginn
Eftir að sjúkrabíllinn var kom-
inn á Hvolsvöll mat vakthaf-
andi læknir ástand Birkis svo
alvarlegt að hann þyrfti að
komast sem allra fyrst til Reykjavík-
ur. Áður en sjúkrabíllinn lagði aftur
af stað fékk Birkir morfín og áfram-
haldandi kælimeðferð en hann seg-
ir að á þessum tímapunkti hafi sárs-
aukinn verið orðinn óbærilegur.
Morfínið sló bara mjög takmark-
að á verkina. Þá gleymdist að kæla
handlegginn á Birki í öllum hama-
ganginum.
„Ég man ekki mikið eftir ferðinni
í bæinn, ég var á svo miklum lyfjum.
En ég fékk nett áfall þegar ég heyrði
sjúkraflutningamanninn segja í tal-
stöðina að ég væri annaðhvort með
annars- eða þriðjastigs brunasár. Þó
svo að ég viti ekki mikið um bruna
þá veit ég að það er ekki hægt að laga
ör eftir þriðja stigs brunasár.“
Núna, viku síðar, er Birkir kom-
inn heim af sjúkrahúsinu. Bruna-
sárin eru annars stigs svo læknar
eru bjartsýnir á að húðin grói alveg
á nokkrum mánuðum. Augað er
illa farið og hornhimnan skaddað-
ist í slysinu. Í fyrstu var Birkir aðeins
með 40 prósent sjón en með réttri
læknismeðferð vonast augnlækn-
irinn hans til þess að hann fái fulla
sjón með tímanum.“
Birkir kveðst enn vera í miklu
áfalli og finna mikið til. Hann ráð-
leggur fólki eindregið að huga að því
hvar gashylki eru geymd á heimil-
inu. „Ég held að ég muni aldrei nota
gashylki aftur. Ef svo verður verða
þau ekki geymd nálægt einhverju
heitu. Helst bara í öðru rými.“ n
„Síðan byrjaði augað á mér að bólgna og þá var ég alveg viss um að ég væri orðinn blindur“
Rjómasprautuhylki
sprakk framan í Birki
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Tveggja gráðu brunasár Andlitið er illa
farið. Mynd Úr einKAsAfni
Miklir áverkar Fyrst eftir slysið litu brunasárin svona út. Mynd Úr einKAsAfni
Læknar telja að Birkir eigi eftir að
ná fullum bata Hornhimnan á auganu
skaddaðist. Mynd Úr einKAsAfni
Ætlar í eigin
útgerð
„Ég er alger byrjandi í útgerð og
menn taka kannski tillit til þess er
þeir ræða við mig. En ég hef fulla
þekkingu á fullvinnslu og sölu á
ferskum fiski,“ segir Kristján Berg
Ásgeirsson, betur þekktur sem
Fiskikóngurinn. Kristján hefur nú
hug á að fara af stað í útgerð.
Kristján greinir sjálfur frá
þessu í auglýsingu á Facebook-
síðu Fiskikóngsins og óskar eftir
að kaupa bát og kvóta eða að
kaupa sig inn í útgerð. Kristján
segist vanta vana menn til að reka
og stjórna bátnum. Markmiðið er
að viðskiptavinir hans fái flottan
og splunkunýjan fisk.