Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Qupperneq 18
Vikublað 14.–16. febrúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þarf ekki að banna allt
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
boðar frumvarp þar sem lagt er
til að sömu reglur gildi um rafsí-
garettur og tóbak. Ekki eru allir
sammála um nauðsyn þess. Einn
þeirra er Helgi Hrafn Gunnarsson,
fyrrverandi þingmaður Pírata og
fyrrverandi reykingamaður. Hann
er viðkvæmur fyrir tóbaksreyk en
einnig fyrir rafsígarettum. En þótt
Helgi Hrafn finni fyrir óþægind-
um vegna rafsígarettna þá er hann
ekki fylgjandi banni á þeim. „Mín
reynsla af fólki sem notar rafsí-
garettur innanhúss er sú að þetta
sé ekkert vandamál. Maður ein-
faldlega biður það um að passa að
blása ekki í andlitið á manni og þá
er vandinn næstum því alfarið far-
inn“, segir hann á facebook.
„Það þarf ekki að banna allt
sem er óþægilegt,“ segir Helgi
Hrafn, Píratinn sem margir
sakna að skuli ekki sitja á þingi,
þar sem þörf er á viðhorfum eins
og þessum.
Fyrsti alvarlegi
ágreiningurinn
Frá upphafi hafa ýmsir spáð því
að ríkisstjórnin verði ekki lang-
líf, enda hefur hún afar nauman
meirihluta. Nú
er fyrsta alvar-
lega ágreinings-
efnið komið fram
en það snýr að
lögfestingu jafn-
launavottun-
ar sem Þorsteinn
Víglundsson félagsmálaráðherra
boðar. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins eru sumir hverjir ekki
hrifnir af því. Þar eru á ferð „the
usual suspects“, Óli Björn Kárason,
Sigríður Andersen og Brynjar Ní-
elsson. Ekkert bendir til að þing-
menn Viðreisnar ætli að gefa eftir
og búast má við hörðum deilum
milli Viðreisnar og Sjálfstæð-
isflokks vegna málsins. Hverjir
sögðu að þessir tveir flokkar væru
bara sami flokkurinn?
Sennilega er ég
heldur forn í mér
Eva María Jónsdóttir starfar hjá Stofnun Árna Magnússonar. – DV
Þú ert ekki í lagi,
Jakob minn
Gunnar Smári Egilsson vandar Jakobi Bjarnari ekki kveðjurnar. – Facebook
Eitt það rosalegasta
sem ég hef lent í
Unnar hljóp með börnin út úr brennandi húsi. – DV
Vond ímynd stórútgerðarinnar
S
jómannaverkfallið hefur ver-
ið langt og strangt. Það er ljóst
að gríðarlegir peningar hafa
tapast, svo miklir reyndar að
undrun sætir að ekki var samið
fyrir löngu. Enginn hefur grætt á þessu
verkfalli. Sjómenn, sem hafa verið
samningslausir í sex ár, slökuðu nokk-
uð á kröfum sem þeir segja þó hafa
verið hógværar og sanngjarnar. Stór-
útgerðin sýndi strax frá byrjun þrjósku,
enda er það víst helst þar sem menn
hafa efni á að tapa. Lítil útgerðarfélög
mega þó örugglega ekki við tapinu og
þar hljóta menn að vera mjög uggandi.
Stórútgerðin ætti að íhuga sinn
gang. Í hugum fjölmargra Íslendinga
er ímynd hennar ekki góð. Í daglegu
tali er iðulega talað um „útgerðarauð-
valdið“ – sem segir sitt um viðhorfið.
Stóru sjávarútvegsfyrirtækin græða á
tá og fingri og eigendur þeirra fá ríf-
legar arðgreiðslur. Ljóst er að fyrirtæk-
in gætu greitt mun hærri veiðigjöld til
ríkisins en þau gera. Á sama tíma hefur
verið lítill áhugi á að leiðrétta kjör sjó-
manna. Það er ekki skrýtið þótt hvar-
fli að einhverjum að útgerðin hafi ver-
ið að draga deiluna á langinn og þreyta
þannig sjómenn svo þeir gæfu eftir.
Ólíkt stórútgerðinni njóta sjómenn
ómældrar virðingar landsmanna. Í
gegnum aldir hafa þeir verið lofaðir
og um þá ort kvæði og af þeim sagð-
ar sögur. Þjóðin er vel meðvituð um
að starf sjómanna er erfitt og áhættu-
samt og kostar jafnframt mikla fjar-
veru frá fjölskyldu. Fáir eru hins vegar
til að mæra útgerðina, ef einhver gerir
slíkt er hann samstundis sakaður um
að ganga götu hagsmunaaðila. Stór-
útgerðin í landinu mætti vel leggjast
í naflaskoðun og spyrja sig hvort ekki
sé ástæða fyrir því illa umtali sem hún
mætir svo víða.
Deilur eins og þessa ber ætíð að
leysa við samningaborðið. Þegar þetta
er ritað hefur samkomulag enn ekki
náðst en vonandi gerist það sem fyrst,
ef það hefur ekki þegar gerst. Sjómenn
hafa gefið nokkuð eftir og vonandi sér
útgerðin sóma sinn í því að gera hið
sama. n
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Stórútgerðin sýndi
strax frá byrjun
þrjósku, enda er það víst
helst þar sem menn hafa
efni á að tapa.
Myndin Vorveður Það hefur verið vorlegt víða um land að undanförnu og laukar sums staðar byrjaðir að senda skeyti upp úr moldinni. Langtímaspár gera engu að síður ráð
fyrir kólnandi veðri um og upp úr næstu helgi. MyNd SiGtryGGUr Ari
V e g a m ó t a s t í g u r 4 | 1 0 1 R e y k j a v í k | s í m i 5 1 1 3 0 4 0 | v e g a m o t @ v e g a m o t . i s
FRÁ 11–16