Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Blaðsíða 6
Helgarblað 24.–27. febrúar 20176 Fréttir Guðrúnartúni 4, 105 reykjavík Sími: 533 3999 www.betraGrip.iS Opið virka daga frá kl. 8–17 Smurdagar 15% afSláttur af vinnu Og efni daGana 15. janúar-28. Febrúar Stöðugildum þeirra sem sinna ferðamálum fjölgar S ett verður á fót sérstök skrif- stofa ferðamála í atvinnuvega- ráðuneytinu frá og með næstu mánaðamótum. Stöðugildum þeirra sem starfa að ferðamálum innan ráðuneytisins verður með því fjölgað úr einu og hálfu stöðugildi og upp í fimm. Þetta kom fram í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra, í sérstökum umræðum um stöðuna í ferðamálum á Alþingi á fimmtudag. Þórdís var þar að svara málshefjanda, Þórunni Egilsdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins. Þórdís minnti á að í stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar væri lögð áhersla á vægi ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar og að það endur- speglist í verkefnum stjórnsýslunnar og langtímastefnumótun. „Ég hef tekið ákvörðun um að frá og með næstu mánaðamótum verði til sérstök skrifstofa ferðamála í ráðu- neytinu og hún verði styrkt með mannafla umfram það sem er í dag. Þetta gerum við aðallega með því að forgangsraða innan ráðuneytisins og frá og með næstu mánaðamótum munu fimm starfsmenn helga sig ferðamálum, auk þess sem bætt verður við einum til tveimur stöðu- gildum þegar líður á árið. Með þeirri breyttu forgangsröðun gefst betra tækifæri til að sinna þeim brýnu verk efnum sem blasa við okkur með það að markmiði að ráðuneytið verði leiðandi í samvinnu við önnur ráðu- neyti og stofnanir um hin krefjandi viðfangsefni ferðaþjónustunnar sem varð á skömmum tíma undirstöðu- atvinnugrein á Íslandi. Því fylgja verk efni.“ n Stofnar skrifstofu ferðamála Eykur áherslu á ferðamál Ráðherra hyggst setja á stofn skrifstofu ferðamála í ráðuneytinu. Mynd Sigtryggur Ari J ón Ingi Gíslason, formaður kjördæmasambanda Reykja- víkur, KFR, braut 2. grein siða- reglna Framsóknarflokksins sem varða heiðarleika og hagsmuna- árekstra. Jón Ingi gegnir trúnaðarstörf- um fyrir Framsóknarflokkinn og á sæti í landsstjórn flokksins. Þá situr hann í tveimur nefndum á vegum Reykja- víkurborgar. Siðanefnd hefur sagt að Jón Ingi eigi að víkja úr trúnaðarstörf- um flokksins. Hann vildi ekki svara spurning- um DV þegar blaðamaður hafði sam- band við hann. „Ég er á hlaupum og hef ekki tíma,“ sagði Jón Ingi ítrekað við blaðamann, sem ætlaði að spyrja hann hvort hann hygðist víkja úr trún- aðarstörfum á vegum flokksins á með- an mál hans væri fyrir dómstólum. Áréttingu blaðamanns um að erindið væri mjög brýnt svaraði hann á sömu lund, áður en hann lagði á. Fyrir fjórum árum greindi DV frá því að Jón Ingi hefði verið ákærður af sérstökum saksóknara fyrir stórfelld skattsvik. Hélt saksóknari fram að Jón Ingi hefði vantalið fjármagnstekjur sínar um 110,5 milljónir og stungið 11 milljónum undan skatti. Í umfjöllun DV þann 29. maí 2013 var greint frá því að tekjurnar væru til komnar vegna skattskyldra afleiðuvið- skipta Jóns Inga með gengisvísitölu ís- lensku krónunnar en hann hagnaðist um 13,3 milljónir króna á þessum við- skiptum árið 2007. Árið eftir var hagn- aðurinn gríðarlegur, eða tæpar 97 milljónir króna. Jón Ingi neitaði sök við þingfestingu fyrir fjórum árum. Ákæran var dómtekin í byrjun janúar og fer aðalmeðferð fram í júní. Brást ókvæða við Þegar málið komst í hámæli ákvað Jón Ingi að stíga til hliðar sem for- maður Framsóknarfélags Reykjavík- ur. Í samtali við DV þann 4. júní 2013 sagði Jón Ingi að hann hefði starf- að lengi fyrir Framsóknarflokkinn og hann hygðist taka sér algjört frí frá öllum störfum fyrir flokkinn á meðan dómsmálið stæði yfir. Tveimur árum síðar var Jón Ingi orðinn formaður kjördæmasambanda Reykjavíkur og á sæti, eins og áður, segir í landsstjórn flokksins og í nefndum á vegum borg- arinnar þegar málið er óútkljáð. Hver er Jón ingi? Jón Ingi er þekkt stærð í Framsóknar- flokknum. Hann þykir mikill smali og er sagður hafa átt stóran þátt í skipuleggja mikinn kosningasigur Framsóknarflokksins 2013. Þá vöktu athygli og umtal fréttir þegar greint var frá því að Jón Ingi ræktaði bar- dagahana í Dóminíska lýðveldinu. Hanaat gengur út á að tveimur hönum er att saman, þar til annar haninn drepur hinn. Hanaat er ólög- legt á Íslandi, eins og í flestum vest- rænum ríkjum. Þorfinnur Guðnasona kvikmyndagerðarmaður framleiddi heimildamynd um Jón Inga. Í samtali við Stöð 2 vísaði Jón Ingi gagnrýni um dýraníð á bug. titringur á bak við tjöldin Jón Ingi var kosinn formaður KFR árið 2015 og endurkjörinn með minnsta mun þann 14. nóvember 2016. Sam- kvæmt heimildum DV var kosningin kærð og er sú kæra umfangsmikil. Hefur kæran valdið titringi sem og erindi ungs Framsóknarmanns til siðanefndar sem telur Jón Inga van- hæfan til að gegna embætti þar sem ekki hafi verið dæmt í máli hans. Jón Ingi, sem sagði í fjölmiðlum að hann ætlaði ekki að taka að sér ábyrgðarstörf innan flokksins á með- an mál hans væru útkljáð, var orðinn formaður KFR tveimur árum síð- ar. Lítil umræða var um þessi mál og töldu margir innan flokksins að mál- ið hefði verið látið niður falla eða um misskilning hefði verið að ræða. Jón Ingi var afar harðorður eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum árið 2013. Hann sagði m.a: „Það hljóta að vera undarlegar sakir að ákæra menn fyrir að telja ekki fram tap, peninga sem menn aldrei fengu, aldrei vissu af og höfðu engan ráðstöfunarrétt yfir. Þetta voru kallaðar galdrabrenn- ur hér áður fyrr.“ Erindi til siðanefndar Þann 11. febrúar barst siðanefnd Framsóknarflokksins formlegt er- indi þar sem vakin var athygli á stöðu Jóns Inga. Í skriflegu erindi til siðanefndar var vísað í 2. grein siða- reglnanna en þar segir um heiðar- leika og hagsmunaárekstra:„Öll- um störfum í þágu flokksins skal gegna af trúmennsku og heiðar- leika. Greina skal opinberlega frá öllum persónulegum hagsmunum sem geta haft óeðlileg áhrif á störf í þágu flokksins.“ Segir að þegar Jón Ingi hafi verið kosinn formaður kjördæma- sambandanna í Reykjavík á kjör- dæmaþingi í nóvember síðastliðn- um hefði honum borið, samkvæmt siðareglum, að geta þess að mál- inu væri ekki lokið svo fundarmenn gætu tekið upplýsta ákvörðun um val á formanni. Ákæran gæti skaðað Framsóknarflokkinn og traust á honum. Einar Gunnar Einarsson, fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokksins, fékk afrit af niðurstöðu siðanefnd- ar. Í niðurstöðunni segir með- al annars: „Jón Ingi valdi að greina ekki frá dómsmáli sem var í farvatn- inu gegn honum við kjör formanns kjördæmasambandanna í Reykja- vík þann 14. nóvember sl. Það er mat siðanefndar að Jóni Inga beri að stíga til hliðar úr öllum trúnað- arstörfum fyrir Framsóknarflokkinn á meðan mál hans er í meðferð hjá dómstólum.“ n Braut siðareglur Framsóknarflokksins Jóni inga ber að víkja úr trúnaðarstörfum á meðan mál hans vegna meintra skattsvika er fyrir dómstólum gegnir trúnaðarstörfum Jóni Inga ber að víkja úr trúnaðarstörfum, samkvæmt niður- stöðu siðanefndar flokksins. Mynd PrESSPHotoS.Biz Niðurstaða siðanefndar í heild sinni Eftir að hafa kynnt sér málavöxtu og með siðareglur Framsóknarflokksins að leiðarljósi kemst siðanefnd að þeirri niðurstöðu að Jón Ingi Gíslason hafi ekki farið að 2.gr. siðareglna flokksins. Hann valdi að greina ekki frá dóms- máli sem var í farvatninu gegn honum við kjör formanns kjördæmasamband- anna í Reykjavík þann 14. nóvember sl. Það er mat siðanefndar að Jóni Inga beri að stíga til hliðar úr öllum trúnaðarstörf- um fyrir Framsóknarflokkinn á meðan mál hans er í meðferð hjá dómstólum. Vert er að vekja athygli á 10.gr. um meðferð brota á siðareglum. Þar segir að siðanefnd skal halda trúnað um til- kynningar sem berast nefndinni. Einnig að hver sá einstaklingur sem á einhvern hátt er talinn hafa brotið siðareglurnar geti kært þá niðurstöðu til laganefndar flokksins sem kveður þá upp endan- legan úrskurð í málinu. Baldur guðmundsson Kristjón Kormákur guðjónsson baldur@dv.is / kristjon@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.