Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Blaðsíða 38
Helgarblað 24.–27. febrúar 201730 Skrýtið Sakamál morð í paradís n Singh-hjónin glímdu við ýmsan vanda n Fjármál voru kornið sem fyllti mælinn Þ ann 4. febrúar, 2009, hóf Fídjeyingurinn Raymond Singh afplánun 18 ára dóms sem hann fékk fyrir að verða eiginkonu sinni, Wendy, að bana. Wendy var menntuð hjúkr- unarkona og hafði kynnst Raymond þegar hún var við nám á Fídjíeyjum á tíunda áratug síðustu aldar. Þegar þar var komið sögu var hún fráskilin tveggja barna móðir. Ekki er allt sem sýnist Wendy og Raymond felldu hugi saman, fluttu til Bretlands og gengu í hjónaband. Þau bjuggu um skeið í Great Yarmouth og síðar í Ipswich í Austur-Englandi og eignuðust tvö börn saman. Að sögn nágranna hjónanna í Great Yarmouth virtust Wendy og Raymond vera hæglætis- fólk. Raymond var sagður rólegheita náungi, blíðmáll og ljúfur og Wendy indæl og vingjarnleg, kannski svo- lítið til baka en íhugul. En ekki er allt sem sýnist því Raymond virðist hafa verið laus höndin og fékk tveggja ára dóm í formi samfélagsvinnu fyrir að ganga í skrokk á eiginkonu sinni. Fjárfest á Fídjíeyjum Allt um það. Tíminn leið, eins og tím- inn á til að gera, og árið 2008 keyptu hjónin sumardvalarsvæði á Fídjí- eyjum; Momi Bay Resort, og fluttu þangað með það fyrir augum að betrumbæta aðstöðuna þar og gera hana arðbæra. Fjárfesting hjónanna var þónokkur og hafði Wendy hugs- að sér að ánafna 15 ára, einhverfum syni sínum frá fyrra hjónabandi einhvern hluta. Með því vildi hún tryggja hag hans ef eitthvað kæmi fyrir hana. Vandræði í Paradís Það er engin nýlunda að fjármunir verði uppspretta ósættis og sú varð raunin hjá herra og frú Singh. Vand- ræðin hófust að kvöldi 10. maí 2008. Raymond og Wendy fóru með tvö lítil börn sín á Head Works-kaffihús- ið í Suva og skaust Raymond í hár- snyrtingu. Á meðan Raymond var fjar- verandi kom áður nefndur sonur Wendy og tyllti sér hjá henni og hálf- systkinum sínum. Raymond kom úr klippingu skömmu síðar og brást hinn versti við: „Hvað er hann að vilja hérna? Þetta er hugsað sem fjöl- skyldudagur.“ Wendy sagði brosandi við Raymond: „Elskan mín, hann er sonur þinn líka.“ En loft var lævi blandið. Leikar æsast Af kaffihúsinu fóru þau á veitinga- stað og settust að snæðingi með sameiginlegum vini sínum; var þeim frekar þungt í sinni. Wendy tilkynnti Raymond að hún ætlaði að gefa eldri börnum sínum eitthvað af eignum hennar og ekki urðu þær upplýsingar til að bæta andrúmsloftið. Upphófst mikil deila sem náði hámarki þegar Raymond og unglingssonur Wendy lentu í handalögmálum. Að máls- verði loknum fór fjölskyldan heim og ríktu litlir kærleikar með Raymond og Wendy. Háreysti að næturlagi Samkvæmt vitnisburði nágranna Singh-hjónanna dró til tíðinda næstu nótt. Nágranninn, Tomasi Bu- lai, sagði að eiginkona hans hefði kallað til hans af svölunum: „Hún sagðist hafa heyrt Wendy öskra „hættu, hættu!“. Ég gat séð Raymond á ferli inni í íbúðinni. Síðan sá ég hann koma út, með ungbarnið í fanginu og leiðandi það þriggja ára. Hann ók á brott með börnin.“ Bulai sagðist hafa gengið upp heimreiðina og séð Wendy liggjandi á bakinu á gólfinu innandyra: „Ég hringdi á lög- regluna.“ Annar nágranni hafði svip- aða sögu að segja. Blóðug dagrenning Það var í dagrenningu sem Raymond ók með börnin tvö heim til föður síns. Hann sagði föður sínum umbúða- laust að hann hefði banað Wendy. Sennilega hefur lögreglan rennt í hlaðið heima hjá Raymond um svip- að leyti. Ekki voru áhöld um að eitt- hvað hafði gengið á; blóðug spor um allt hús, síminn blóðugur og Wendy liggjandi í blóðpolli – á líkama hennar var að finna 79 sár og hafði hún nán- ast verið afhöfðuð. Raymond var handtekinn og á leiðinni á lögreglu- stöðina heyrðu lögregluþjónarnir hann muldra: „Þetta gerðist í bræði. Ég banaði eiginkonu minni í bræði.“ Ótrúverðugur framburður Við réttarhöldin kvað við annan tón. Raymond sagði að þau hjónin hefðu deilt og Wendy hefði að endingu gripið til hnífs. Hún hefði ógnað hon- um og börnunum og hann ekki átt annars úrkosti en að snúast til varn- ar. Þeirri útskýringu var fálega tekið og hafði dómarinn á orði að morðið væri þeim mun hrylliegra fyrir þá sök að Raymond hefði stungið Wendy ít- rekað fyrir framan börnin. „Þú getur ekki beitt börnunum fyrir þig með það fyrir augum að hljóta miskunn frá réttinum fyrir aðstæður sem þú hefur sjálfur skapað,“ sagði dómar- inn. Raymond mun dvelja á bak við lás og slá í 18 ár hið minnsta. n „ Þetta gerðist í bræði. Ég banaði eiginkonu minni í bræði. Wendy Singh Fjárhagslegt öryggi eldri barna hennar var henni hugleikið. Raymond Singh Var ekki allur þar sem hann var séður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.