Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 24.–27. febrúar 201724 Fólk Viðtal
B
laðamaður hittir Helga
í höfuðstöðvum Góu og
Kentucky Fried í Hafnar
firði. Helgi hefur lengi haft
brennandi áhuga á málefn
um lífeyrissjóðanna og hag lífeyris
þega og þetta eru vitanlega málefn
in sem viðtalið snýst um. „Það er
engin smáupphæð sem er tekin af
okkur í lífeyrissjóð. Lífeyrissjóðirnir
vita ekkert hvað þeir eiga að gera
við peningana, þeir eiga svo mikið
af þeim. En ef eldri borgarar vilja
að fá eitthvað af sínum eigin pen
ingum til baka þá blæðir þeim hjá
lífeyrissjóðunum alveg óskaplega.
Lífeyrissjóðir eiga að fjárfesta í hús
næði sem hentar öldruðum,“ segir
Helgi. „Mér finnst leiðinlegt að það
skuli hafa farið framhjá öllum að
í hruninu sögðust lífeyrissjóðirnir
hafa tapað 500 milljörðum. Hvernig
stóð á því? Það var ekki skoðað. Ég
hef spurt: Af hverju töpuðu lífeyris
sjóðirnir með alla sína sérfræðinga?
Sjálfur tapaði ég engu í hruninu. Ég
vil fá svar við þessari spurningu en
það virðist enginn hafa tíma til að
kafa ofan í það mál. Hvernig væri að
fjölmiðlar sinntu því.“
Lífeyrissjóðir eiga að byggja
fyrir aldraða
Þú hefur lengi látið þig málefni eldri
borgara miklu varða. Hefur eldra
fólk mikið samband við þig?
„Ég má varla hitta mann án þess
að hann nefni þetta á nafn og segi:
„Helgi, þú verður að halda áfram!“
Ég segi: stundum: „Jú, jú, ég held
áfram að berjast en þið verðið að
standa á bak við mig.“ Við ellilíf
eyrisþegar eigum eitt sterkt vopn,
þótt við notuðum það ekki í síðustu
kosningum. Þetta vopn er kosn
ingarétturinn. Við getum merkt við
þann sem ætlar að gera eitthvað.“
Hverjir eru það sem þú treystir
helst til þess gera eitthvað í málefn-
um ellilífeyrisþega?
„Maður verður að sjá til með það.
Maður kýs þá sem maður heldur að
muni koma hlutunum í rétt far en
svo virðast þeir ekki hafa áhuga á
því. Sjáðu ungu Sjálfstæðismenn
ina. Þeir eru æstir í að koma brenni
víni inn í allar búðir en þeim er al
veg sama um okkur eldri borgarana.
Ég vil sjá þá eins æsta í að gamla
fólkinu líði vel í ellinni. Svo mega
þeir ekki gleyma því að þeir verða
sjálfir gamlir einn góðan veðurdag.
Þeir ættu að huga að því frekar en að
leggja alla áherslu á að koma rauð
víninu sínu inn í Hagkaup.“
Hvað viltu að verði helst gert í
málefnum eldri borgara?
„Ég ítreka það að lífeyrissjóðirnir
eiga að byggja yfir aldraða. Við eldri
borgarar eigum ekki að þurfa að
bíða í tvö til fjögur ár eftir að kom
ast úr íbúðinni okkar í hentugt hús
næði fyrir aldraða. Það gleymist
alveg að tala um það að ef við för
um úr okkar íbúð þá losnar um leið
íbúð fyrir fjölskyldufólk. Ég lét einu
sinni teikna snyrtilega 27 fermetra
einstaklingsíbúð með baðherbergi.
Þegar ég gerði þetta sögðu ein
hverjir menn að þetta væri allt of
lítið rými, þetta yrðu að vera alla
vega 40 fermetrar. Það getur alveg
verið rétt en ég var að reyna að brúa
ákveðið bil því stundum eru tveir
einstaklingar í 12 fermetrum þar
sem er hvorki klósett né snyrtiað
staða. Eldri borgarar eiga rétt á því
að hafa að minnsta kosti aðgang
að því sem er nauðsynlegt, eins og
klósetti og vaski, þó maður sé ekki
að biðja um mikið meira. Af því að
ég er orðinn eldri borgari sjálfur þá
veit ég hvers virði það er að hafa að
gang að þessum hlutum.“
Hvernig finnst þér að eldast?
„Mér finnst það allt í lagi enda
ekki hægt að koma í veg fyrir það.
Ég á mitt einbýlishús skuldlaust og
hef alla tíð reynt að skulda lítið. Þess
vegna hef ég kannski lifað af. En mér
finnst hræðilegt þegar fólk sem er
búið að þjóna landi og þjóð þarf að
hafa áhyggjur og neyðist til að fara
á biðlista og bíða í nokkur ár eftir að
komast í þjónustuhúsnæði fyrir aldr
aða. Manni finnst líka skelfilegt að
hjón geti ekki fengið að vera saman
síðasta ævikvöldið, jafnvel er annað
þeirra sent út á land á stofnun fyr
ir aldraða. Svona hlutir eiga ekki að
gerast.
Það verður að gera eitthvað fyrir
okkur eldri borgarana, þetta nær
engri átt. Og hvernig stendur á því
að ef við eigum rétt á lífeyrissjóði þá
megum við varla vinna? Af hverju
breytist fólk í annan skattborgara
þegar það er orðið 67 ára. Hvaða
rugl er það?“
Bankar eiga að leysa málin
Það eru ekki einungis málefni
ellilífeyrisþega sem Helgi hefur
brennandi áhuga á. Hann hefur
miklar áhyggjur af húsnæðisvanda
ungs fólks. „Ég fór að heiman 15
Kannski stjórnar maður ósköp litlu
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Helgi Vilhjálmsson,
eða Helgi í Góu, eins og
hann er venjulega kallað
ur, er ötull talsmaður líf
eyrisþega og sömu leiðis
ungs fólks sem á í erfið
leikum með að koma
sér þaki yfir höfuðið.
Kolbrún Bergþórsdóttir
hitti Helga og ræddi við
hann um þessi málefni
og forvitnaðist auk þess
um fyrirtækjareksturinn
og lífshlaupið.
„Ef ég ræki lífeyrissjóð
myndi ég segja við fólk:
Ef þið borgið til mín þá skal ég
hugsa um ykkur. En þeir sem reka
lífeyrissjóðina þegja allir.