Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 6
Helgarblað 24.–27. febrúar 20176 Fréttir
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
Smurdagar
15% afSláttur
af vinnu Og efni
daGana 15. janúar-28. Febrúar
Stöðugildum þeirra sem sinna ferðamálum fjölgar
S
ett verður á fót sérstök skrif-
stofa ferðamála í atvinnuvega-
ráðuneytinu frá og með næstu
mánaðamótum. Stöðugildum
þeirra sem starfa að ferðamálum
innan ráðuneytisins verður með því
fjölgað úr einu og hálfu stöðugildi og
upp í fimm.
Þetta kom fram í máli Þórdísar
Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra, í sérstökum umræðum um
stöðuna í ferðamálum á Alþingi á
fimmtudag. Þórdís var þar að svara
málshefjanda, Þórunni Egilsdóttur,
þingmanni Framsóknarflokksins.
Þórdís minnti á að í stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar væri lögð
áhersla á vægi ferðaþjónustunnar
sem atvinnugreinar og að það endur-
speglist í verkefnum stjórnsýslunnar
og langtímastefnumótun.
„Ég hef tekið ákvörðun um að frá
og með næstu mánaðamótum verði
til sérstök skrifstofa ferðamála í ráðu-
neytinu og hún verði styrkt með
mannafla umfram það sem er í dag.
Þetta gerum við aðallega með því að
forgangsraða innan ráðuneytisins og
frá og með næstu mánaðamótum
munu fimm starfsmenn helga sig
ferðamálum, auk þess sem bætt
verður við einum til tveimur stöðu-
gildum þegar líður á árið. Með þeirri
breyttu forgangsröðun gefst betra
tækifæri til að sinna þeim brýnu
verk efnum sem blasa við okkur með
það að markmiði að ráðuneytið verði
leiðandi í samvinnu við önnur ráðu-
neyti og stofnanir um hin krefjandi
viðfangsefni ferðaþjónustunnar sem
varð á skömmum tíma undirstöðu-
atvinnugrein á Íslandi. Því fylgja
verk efni.“ n
Stofnar
skrifstofu
ferðamála
Eykur áherslu á ferðamál Ráðherra hyggst setja á stofn
skrifstofu ferðamála í ráðuneytinu. Mynd Sigtryggur Ari
J
ón Ingi Gíslason, formaður
kjördæmasambanda Reykja-
víkur, KFR, braut 2. grein siða-
reglna Framsóknarflokksins sem
varða heiðarleika og hagsmuna-
árekstra. Jón Ingi gegnir trúnaðarstörf-
um fyrir Framsóknarflokkinn og á sæti
í landsstjórn flokksins. Þá situr hann
í tveimur nefndum á vegum Reykja-
víkurborgar. Siðanefnd hefur sagt að
Jón Ingi eigi að víkja úr trúnaðarstörf-
um flokksins.
Hann vildi ekki svara spurning-
um DV þegar blaðamaður hafði sam-
band við hann. „Ég er á hlaupum og
hef ekki tíma,“ sagði Jón Ingi ítrekað
við blaðamann, sem ætlaði að spyrja
hann hvort hann hygðist víkja úr trún-
aðarstörfum á vegum flokksins á með-
an mál hans væri fyrir dómstólum.
Áréttingu blaðamanns um að erindið
væri mjög brýnt svaraði hann á sömu
lund, áður en hann lagði á.
Fyrir fjórum árum greindi DV frá
því að Jón Ingi hefði verið ákærður af
sérstökum saksóknara fyrir stórfelld
skattsvik. Hélt saksóknari fram að Jón
Ingi hefði vantalið fjármagnstekjur
sínar um 110,5 milljónir og stungið 11
milljónum undan skatti.
Í umfjöllun DV þann 29. maí 2013
var greint frá því að tekjurnar væru til
komnar vegna skattskyldra afleiðuvið-
skipta Jóns Inga með gengisvísitölu ís-
lensku krónunnar en hann hagnaðist
um 13,3 milljónir króna á þessum við-
skiptum árið 2007. Árið eftir var hagn-
aðurinn gríðarlegur, eða tæpar 97
milljónir króna. Jón Ingi neitaði sök
við þingfestingu fyrir fjórum árum.
Ákæran var dómtekin í byrjun janúar
og fer aðalmeðferð fram í júní.
Brást ókvæða við
Þegar málið komst í hámæli ákvað
Jón Ingi að stíga til hliðar sem for-
maður Framsóknarfélags Reykjavík-
ur. Í samtali við DV þann 4. júní 2013
sagði Jón Ingi að hann hefði starf-
að lengi fyrir Framsóknarflokkinn og
hann hygðist taka sér algjört frí frá
öllum störfum fyrir flokkinn á meðan
dómsmálið stæði yfir. Tveimur árum
síðar var Jón Ingi orðinn formaður
kjördæmasambanda Reykjavíkur og
á sæti, eins og áður, segir í landsstjórn
flokksins og í nefndum á vegum borg-
arinnar þegar málið er óútkljáð.
Hver er Jón ingi?
Jón Ingi er þekkt stærð í Framsóknar-
flokknum. Hann þykir mikill smali
og er sagður hafa átt stóran þátt í
skipuleggja mikinn kosningasigur
Framsóknarflokksins 2013. Þá vöktu
athygli og umtal fréttir þegar greint
var frá því að Jón Ingi ræktaði bar-
dagahana í Dóminíska lýðveldinu.
Hanaat gengur út á að tveimur
hönum er att saman, þar til annar
haninn drepur hinn. Hanaat er ólög-
legt á Íslandi, eins og í flestum vest-
rænum ríkjum. Þorfinnur Guðnasona
kvikmyndagerðarmaður framleiddi
heimildamynd um Jón Inga. Í samtali
við Stöð 2 vísaði Jón Ingi gagnrýni um
dýraníð á bug.
titringur á bak við tjöldin
Jón Ingi var kosinn formaður KFR árið
2015 og endurkjörinn með minnsta
mun þann 14. nóvember 2016. Sam-
kvæmt heimildum DV var kosningin
kærð og er sú kæra umfangsmikil.
Hefur kæran valdið titringi sem og
erindi ungs Framsóknarmanns til
siðanefndar sem telur Jón Inga van-
hæfan til að gegna embætti þar sem
ekki hafi verið dæmt í máli hans.
Jón Ingi, sem sagði í fjölmiðlum
að hann ætlaði ekki að taka að sér
ábyrgðarstörf innan flokksins á með-
an mál hans væru útkljáð, var orðinn
formaður KFR tveimur árum síð-
ar. Lítil umræða var um þessi mál og
töldu margir innan flokksins að mál-
ið hefði verið látið niður falla eða um
misskilning hefði verið að ræða. Jón
Ingi var afar harðorður eftir að fjallað
var um málið í fjölmiðlum árið 2013.
Hann sagði m.a: „Það hljóta að
vera undarlegar sakir að ákæra menn
fyrir að telja ekki fram tap, peninga
sem menn aldrei fengu, aldrei vissu
af og höfðu engan ráðstöfunarrétt
yfir. Þetta voru kallaðar galdrabrenn-
ur hér áður fyrr.“
Erindi til siðanefndar
Þann 11. febrúar barst siðanefnd
Framsóknarflokksins formlegt er-
indi þar sem vakin var athygli á
stöðu Jóns Inga. Í skriflegu erindi til
siðanefndar var vísað í 2. grein siða-
reglnanna en þar segir um heiðar-
leika og hagsmunaárekstra:„Öll-
um störfum í þágu flokksins skal
gegna af trúmennsku og heiðar-
leika. Greina skal opinberlega frá
öllum persónulegum hagsmunum
sem geta haft óeðlileg áhrif á störf í
þágu flokksins.“
Segir að þegar Jón Ingi hafi
verið kosinn formaður kjördæma-
sambandanna í Reykjavík á kjör-
dæmaþingi í nóvember síðastliðn-
um hefði honum borið, samkvæmt
siðareglum, að geta þess að mál-
inu væri ekki lokið svo fundarmenn
gætu tekið upplýsta ákvörðun um
val á formanni. Ákæran gæti skaðað
Framsóknarflokkinn og traust á
honum.
Einar Gunnar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins,
fékk afrit af niðurstöðu siðanefnd-
ar. Í niðurstöðunni segir með-
al annars: „Jón Ingi valdi að greina
ekki frá dómsmáli sem var í farvatn-
inu gegn honum við kjör formanns
kjördæmasambandanna í Reykja-
vík þann 14. nóvember sl. Það er
mat siðanefndar að Jóni Inga beri
að stíga til hliðar úr öllum trúnað-
arstörfum fyrir Framsóknarflokkinn
á meðan mál hans er í meðferð hjá
dómstólum.“ n
Braut siðareglur
Framsóknarflokksins
Jóni inga ber að víkja úr trúnaðarstörfum á meðan mál hans vegna meintra skattsvika er fyrir dómstólum
gegnir trúnaðarstörfum Jóni Inga ber að víkja úr trúnaðarstörfum, samkvæmt niður-
stöðu siðanefndar flokksins. Mynd PrESSPHotoS.Biz
Niðurstaða
siðanefndar
í heild sinni
Eftir að hafa kynnt sér málavöxtu og
með siðareglur Framsóknarflokksins
að leiðarljósi kemst siðanefnd að þeirri
niðurstöðu að Jón Ingi Gíslason hafi ekki
farið að 2.gr. siðareglna flokksins.
Hann valdi að greina ekki frá dóms-
máli sem var í farvatninu gegn honum
við kjör formanns kjördæmasamband-
anna í Reykjavík þann 14. nóvember sl.
Það er mat siðanefndar að Jóni Inga beri
að stíga til hliðar úr öllum trúnaðarstörf-
um fyrir Framsóknarflokkinn á meðan
mál hans er í meðferð hjá dómstólum.
Vert er að vekja athygli á 10.gr. um
meðferð brota á siðareglum. Þar segir
að siðanefnd skal halda trúnað um til-
kynningar sem berast nefndinni. Einnig
að hver sá einstaklingur sem á einhvern
hátt er talinn hafa brotið siðareglurnar
geti kært þá niðurstöðu til laganefndar
flokksins sem kveður þá upp endan-
legan úrskurð í málinu.
Baldur guðmundsson
Kristjón Kormákur guðjónsson
baldur@dv.is / kristjon@dv.is